Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.2000, Síða 20
18
Sveitarsjóðareikningar 1999
í 12. yfirliti er sýnd tekjuöflun á íbúa hjá hverjum einstökum
flokki sveitarfélaga samanborið við meðaltal allra sveitar-
félaga landsins árin 1998 og 1999. Bæði árin voru heildar-
tekjur á íbúa hæstar hjá sveitarfélögum með 400-999 íbúa en
þærhækkuðu um 5,5% að raungildi milli ára. Tekjurþessara
sveitarfélaga reyndust 11,0% hærri en landsmeðaltalið fyrra
árið og 9,3% hærri það seinna. Arin 1982-1988 voru tekjur
á ibúa jafnan einna hæstar hjá sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu, 4,5-9,5% hærri en á landinu öllu. Eins og fram
hefur komið urðu talsverð umskipti hjá sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu árið 1990. Árin 1990-1992 voru
heildartekjur á íbúa á höfuðborgarsvæðinu 0,7-1,7% undir
landsmeðaltali, en árin 1993-1995 reyndust þær svipaðar
meðaltekjum allra sveitarfélaga. Árin 1996-1998 voru
tekjur höfuðborgarsvæðisins á íbúa á bilinu 1,5-2,4% undir
landsmeðaltali. Árið 1999 voru meðaltekjur á fbúa lægstar á
höfuðborgarsvæðinu þriðja árið í röð og reyndust 2,3% undir
landsmeðaltalinu.
Á níunda áratugnum voru meðaltekjur á íbúa jafnan lægstar
hjá minnstu sveitarfélögunum og námu aðeins um tveimur
þriðjuaflandsmeðaltali.Eftir 1990rættisttöluvertúrtekjuöflun
þeirra, ekki síst vegna breytinga á reglum Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga sem tóku gildi í byrjun þess árs. Meðaltekjur á
íbúa hjá minnstu sveitarfélögunum námu rösklega 88% af
landsmeðaltali árið 1993 og tæplega 87% árið 1994. Meðal-
tekjur þeirra hækkuðu töluvert á árinu 1995 og voru þær aðeins
3,3% undir landsmeðaltali, en árið 1996 reyndust þær 5,0%
fyrir neðan. Árið 1997 náðu tekjur minnstu sveitarfélaganna
landsmeðaltalinu í fyrsta skipti og árið 1998 jukust þær enn
frekar og voru 6,6% yfir landsmeðaltalinu. Árið 1999jukust
tekjur þessara sveitarfélaga um 6,5% að raungildi frá árinu á
undan og voru þær þá 6,0% yfir landsmeðaltalinu.
12. yfirlit. Hlutfallslegur samanburður á tekjum sveitarfélaga á hvern íbúa 1998-1999
Summary 12. Comparíson oflocal government revenue per inhabitant by size of municipalities 1998-1999
Höfuð- Önnur sveitarfélög eftir íbúafjölda
borgar- Other municipalities by number of inhabitants
Allt landið svæðið
Whole Capital 1.000- 400-
country region > 3.000 3.000 999 <400
Árið 1998 1998
Heildartekjur 100,0 97,6 100,3 105,3 111,0 106,6 Total revenue
Skatttekjur 100,0 96,7 100,3 107,0 111,5 116,0 Tax revenue
Beinir skattar 100,0 101,4 102,3 98,0 92,1 83,1 Direct taxes
Óbeinir skattar 100,0 78,9 92,6 140,5 184,0 238,9 Indirect taxes
Þar af Jöfnunarsjóður Ofwhich: Municipal
sveitarfélaga 100,0 23,7 110,4 244,8 369,6 474,9 Equalization Fund
Þjónustutekjur 100,0 97,3 118,6 93,7 97,4 72,6 Service revenue
Framlög til fjárfestingar 100,0 106,3 54,1 122,3 144,9 106,6 Capital transfers received
Árið 1999 1999
Heildartekjur 100,0 97,7 102,4 102,6 109,3 106,0 Total revenue
Skatttekjur 100,0 97,4 96,4 108,5 114,3 116,7 Tax revenue
Beinir skattar 100,0 104,8 96,0 92,8 88,9 77,1 Direct taxes
Óbeinir skattar 100,0 69,9 97,8 167,5 209,2 264,9 Indirect taxes
Þar af Jöfnunarsjóður Ofwhich: Municipal
sveitarfélaga 100,0 18,6 112,7 283,3 388,9 461,6 Equalization Fund
Þjónustutekjur 100,0 95,0 124,6 91,5 103,8 75,5 Service revenue
Framlög til fjárfestingar 100,0 106,7 99,5 79,8 80,7 75,2 Capital transfers received