Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.2000, Qupperneq 29

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga - 01.10.2000, Qupperneq 29
Sveitarsjóðareikningar 1999 27 2. Bókhaldslykill sveitarfélaga, úrvinnsla gagna og skýringar við töflur Local government chart of accounts, processing ofdata and explanatory notes to the tables Bókhaldslykill Sambands íslenskra sveitarfélaga Grundvallarlykill hins samræmda bókhalds hefur 8 sæti. Fyrstu tvö sætin sýna málaflokka og bókhaldseiningar sveitarsjóðs. Þau eru bundin fyrir öll sveitarfélög. Næstu tvö sæti eru notuð til sundurliðunar í deildir og starfsemisþætti. Næstu þrjú sæti lykilsins (5.-7.) skipta útgjöldum og tekjum eftir tegundum. Loks er síðasta sæti lykilsins notað til flokkunar á tekjum og gjöldum á rekstur, gjaldfærða fjár- festingu eða eignfærða fjárfestingu. Ársreikningsform Hagstofu íslands fylgir bókhalds- lyklinum en er ekki jafn sundurliðað. Það sýnir fyllstu sundurgreiningu á fyrstu tvö sæti lykilsins og það síðasta. Hins vegar er ekki beitt fyllstu sundurliðun á 3. og 4. sæti og formið gerir ekki ráð fyrir greiningu á tegundir samkvæmt 5.-7. sæti lykilsins. Eftirtöldum meginreglum er beitt í uppgjöri Hagstofunnar um færslu bókhalds og reikningsskil sveitarfélaga. Allar tekjur og gjöld sem tilheyra hverju uppgjörstímabili, þ.e. almanaksárinu, eru færð á því tímabili án tillits til hvenær greiðsla fer fram. Með öðrum orðum þá er um svonefndan rekstrargrunn að ræða. Óinnheimtar tekjur færast til tekna á rekstrarreikningi og til eignar í efnahagsreikningi. Á sama hátt færast ógreidd gjöld til gjalda í rekstrarreikningi og til skuldar í efnahagsreikningi. í einu heildaryfirliti, rekstrar- og framkvæmdayfirliti, er greint á milli rekstrar sveitarfélaga, gjaldfærðrar fj árfestingar og eignfærðrar fjárfestingar þeirra. Á rekstur færast allar tekjur og gjöld sem varða rekstur sveitarsjóðs. kgjaldfœrða fjárfestingu færast útgjöld vegna framkvæmda og eigna- breytinga, sem ekki eru eignfærð í efnahagsreikningi. Liðir eins og götur, holræsi, leikvellir, skrúðgarðar, innan- stokksmunir og áhöld teljast til gjaldfærðrar fjárfestingar. I tekjuhlið er færð bein þátttaka annarra aðila í viðkomandi gjaldfærðri fjárfestingu svo sem gatnagerðargjöld og þétt- býlisvegafé. Til eignfœrðrarfjárfestingar teljast útgjöld til kaupa á fasteignum, vinnuvélum, bflum og vélasamstæðum. Þessar eignir eru færðar í eignahlið efnahagsreiknings. Bein þátttaka annarra í eignfærðri fjárfestingu, t.d. framlög úr rfldssjóði, eru færð í tekjuhlið eignfærðrar fjárfestingar. Ekki er reiknað með árlegri afskrift húseigna eða annarra varanlegra rekstrarfjármuna sveitarsjóðs, heldur er verðmæti eigna fært í samræmi við mat eins og það er á hverjum tíma. Gert er ráð fyrir að breyting á matsverði sé fœrð á endurmatsreikning undir liðnum eigið fé í efnahagsreikningi. Breytingar ársreikninga sveitarfélaga 1990. í VIII. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 er fjallað um fjármál sveitarfélaga. Reglugerð samkvæmt 81. gr. laganna, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, var sett á árinu 1989. í I. kafla reglugerðarinnar eru ákvæði um bókhald sveitarfélaga. Þar segir m.a. að gefin skuli út handbók um reikningshald sveitarfélaga og fyrirtækja þeirra þar sem fram komi leiðbeinandi reglur um flokkun og greiningu á tekjum og gjöldum, eignum og skuldum sveitarfélaga á hverjum tíma.Slíkurbókhaldslykillfyrirreikningasveitarfélagahefur eins og áður sagði verið í notkun frá reikningsárinu 1979. Setning reglugerðarinnar breytti litlu hvað þetta varðar og breytingar á málaflokkum rekstrar- og framkvæmdayfirlits voru óverulegar. III. kafla reglugerðarinnar eru ákvæði um ársreikninga sveitarfélaga. I 9. gr. hennar segir að sveitarfélög, stofnanir þeirra og fyrirtæki skuli beita eftirtöldum reikningsskila- aðferðum: a) Sértækum reikningsskilum fyrir sveitarsjóði og stofn- anir sveitarfélaga sem reknar eru á sambærilegum grundvelli. b) Almennri reikningsskilaaðferð hjá fyrirtækjum í atvinnurekstri. Með þessu er kveðið á um að reikningar sveitarsjóða eigi að fylgja sértækri reikningsskilaaðferð en ekki almennri. Þróun í þá átt var hafin áður og með upptöku bókhaldsly kilsins 1979 var stigið stórt skref í þá átt, sérstaklega hvað varðar færslu bókhaldsins (rekstrar- og framkvæmdayfirlit í stað hreins rekstrarreiknings) en í uppgjöri var í efnahagsreikn- ingnum áfram stillt upp samkvæmt almennri reikningsskila- aðferð (áhersla á eiginfjárstöðu frekar en peningalega stöðu) og einföldu sjóðsstreymi. I handbók bókhaldsnefndar Sambands íslenskra sveitar- félaga, sem gefin var út samkvæmt reglugerðinni (Handbók um bókhald og reikningsskil sveitarfélaga, nóvember 1991), eru sveitarfélög hvött til að endurskoða þær reikningskila- aðferðir sem beitt hafði verið hjá sveitarsjóðum og fyrirtækjum þeirra fram til ársins 1990. Til leiðbeiningar við ákvörðun um val á reikningsskilaaðferð er meðal annars bent á að rétt sé að hafa í huga hvort rekstraryfirliti sé ætlað að gefa glögga mynd af hagnaði eða tapi á viðkomandi tímabili og einnig h vort eiginfjárstaða í efnahagsreikningi eigi að vera í samræmi við almennt viðurkenndar reikningsskilaaðferðir fyrirtækja í atvinnurekstri. Bókhaldsnefndin gefur út eftirfarandi aðalreglur varðandi reikningsskilaaðferðir hjá sveitarsjóði og algengustu fyrir- tækjum sveitarfélaga (Handbók, kafli 5.1 bls. 1): Sveitarsjóður og fyrirtæki Reikningsskila- aðferð sbr. 9. gr. Sveitarsjóður.................... sértæk Hafnarsjóður..................... sértæk Vatnsveita....................... sértæk Rafveita......................................... almenn Hitaveita........................................ almenn Félagslegar íbúðir............... sértæk Strætisvagnar.................................... almenn Félagsheimili.................... sértæk Framkvæmdasjóður................................. almenn Lífeyrissjóður - eftirlaunasjóður... almenn Ljóst er að í ársreikningi sveitarsjóðs er rekstraryfirliti ekki ætlað að gefa glögga mynd af hagnaði eða tapi á viðkomandi tímabili heldur ráðstöfun tekna hans til hinna ýmsu verkefna samanborið við fjárhagsáætlun. I efnahags-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um sveitarsjóðareikninga
https://timarit.is/publication/1126

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.