Gistiskýrslur - 01.04.1997, Qupperneq 5
Formáli
Gistiskýrslur 1996 er fjórða rit Hagstofu íslands um niður-
stöður talningar á gistinóttum á gististöðum í landinu.
Hagstofan hóf reglubundna söfnun upplýsinga um fram-
boð á gistirými og fjölda gistinátta á gististöðum íjúní 1984.
Söfnunin hefur tekið til allrar seldrar gistiþjónustu að
orlofshúsum félagasamtaka undanskildum. Arið 1995 var
byrjað að afla upplýsinga um gestafjölda auk gistinátta í því
skyni að kanna meðallengd dvalar á gististað og fjölda
ferðamanna eftir landsvæðum. Eins og vænta mátti var við
ýmsa byrjunarörðugleika að etja við þessa nýju upplýsinga-
öflun, bæði vegna misskilnings við útfyllingu eyðublaða og
aukins álags á gestgjafa við talningu á gestakomum. I þessu
riti eru því í fyrsta skipti birtar tölur um gestaijölda og meðal-
dvalarlengd á gististað, þær ná til ársins 1996.
Skýrsluskil frá hótelum, gistiheimilum, farfuglaheimilum
og sumarhúsa-/smáhýsahverfum eru góð og sama má segja
um flest vinsælustu tjaldsvæðin. Eigendur nýrra gististaða
eru greinilega vel upplýstir um mikilvægi gagnasöfnunar-
innar því frá þeim hafa gistiskýrslur yfirleitt borist fljótt og
vel. Skýrsluskil seljenda annarrar gistiþjónustu voru við-
unandi á síðasta ári en kostuðu þó tímafrekan eftirrekstur.
Árið 1996 var í fyrsta skipti hægt að áætla heildafjölda gisti-
nátta fyrir allar tegundir gististaða sem gistináttatalningin
nær til. Af samtölum við þá sem ekki skila skýrslum hefur
ósjaldan komið í ljós að þeir telja starfsemi sína s vo veigalitla
að ekki svari fyrirhöfninni að útbúa skýrslur. Þessar upp-
Tourist Accommodation 1996 is the fourth report issued by
Statistics Iceland on the subject. In June 1984 Statistics Ice-
land began collecting data on the supply and use of tourist
accommodation on a regular basis. The data collection ex-
tended to overnight stays in all types of tourist accommoda-
tion with the exception of trade-union summer houses. In
the 1995 the data collection was extended to cover guest
arrivals. The purpose of this was to acquire information on
average length of stay and on the number of tourists by re-
gions. This new collection encountered some difficulties at
the outset and as a result the available data on guest arrivals
in 1995 was fragmentary. The present publication, however,
is the first in the series to present statistics on the average
length of stay in all types of tourist accommodation, cover-
ing 1996.
Response rates from hotels and guesthouses, yöuth hos-
tels and summer houses remained very satisfactory as in 1995
and the same applies to the most popular camping sites.
Although the collection of reports from other purveyors of
tourist accommodation required a good deal of effort their
lýsingar eru engu að síður mikilvægar því Hagstofunni er
ekki kunnugt um annað en að gististaðurinn sé opinn og í
fullum rekstri.
Fáir gestgjafar hika nú orðið við að senda Hagstofunni
upplýsingar um gistinætur enda er þeim greinilega vel
kunnugt um að með allar upplýsingar sem Hagstofan safnar
til hagskýrslugerðar, og varða einstaka rekstraraðila, er farið
sem trúnaðarmál. Meginregla Hagstofunnar er að hag-
skýrsluupplýsingar, er varða einstaklinga eða fyrirtæki, eru
aldrei látnar öðrum í té, hvorki opinberum aðilum né einka-
aðilum, og eru aðeins birtar samandregnar í töfluyfirlitum.
Töflugerðin miðast við það að upplýsingarnar verði ekki
raktar beint eða óbeint til einstakra aðila. Þá má benda á að
upplýsingar þær sem gestgjafar láta Hagstofu Islands í té
koma ekki síst þeim sjálfum til góða við skipulagningu
starfseminnar og markaðsrannsóknir.
Á Hagstofunni hefur Rut Jónsdóttir haft umsjón með öflun
og úrvinnslu gistiskýrslna og samið þetta rit. Ásamt henni
hefur Guðný Ragnarsdóttir unnið að söfnun og úrvinnslu
gistiskýrslna. Uppsetningu og umbrot annaðist Sigurborg
Steingrímsdóttir.
Hagstofa Islands í aprfl 1997
Hallgrímur Snorrason
final response rates were satisfactory as well. Owners of
new tourist accommodation have turned out to be well in-
formed of the importance of tourist accommodation statis-
tics and have responded well to requests for data. On the
whole, the data collection has improved and coverage has
increased appreciably. For the first time in 1996 it became
possible to make an estimate of the number of overnight
stays for all types of accommodation covered by the tourist
accommodation statistics.
At Statistics Iceland, Rut Jónsdóttir has been in charge of
the collection of tourist accommodation reports and the sub-
sequent data processing besides compiling the present sta-
tistical report. Guðný Ragnarsdóttir assisted her in collect-
ing the reports. The lay-out was in the hands of Sigurborg
Steingrímsdóttir.
Statistics Iceland in April 1997
Hallgrímur Snorrason