Gistiskýrslur - 01.04.1997, Síða 13
Gistiskýrslur 1996
11
nóttum um 4—10% en mest fjölgaði í nóvember um 21%, í
september um 20% og desember um 14%. Þegar bera á
saman gistitölur sumarmánaðanna við árin fyrir 1995 er
mikilvægt að hafa í huga þær breytingar sem gerðar voru á
flokkun bændagististaða árið 1995, sjá hér að framan.
Breytingarnar höfðu óveruleg áhrif á gistináttatalninguna
utan sumartímans en fjöldi gistinátta sem rekja má til fyrrum
bændagististaða var 5.800 í júní árið 1995, í júlí 13.300 og í
ágúst 10.900. Athyglisvert er að sjá hve gistinóttum hefur
fjölgað utan háannatímans frá árinu 1994. Mánuðinajanúar
til aprfl árið 1993 voru gistinætur 125.300, árið 1994 128.400
eða rúmum 2% fleiri. Mánuðina október til desember sömu
ár var fjöldi gistinátta 89.500 árið 1993 en einungis 500 fleiri
árið 1994 eða 90.000. Árið 1996 var fjöldi gistinátta fyrsta
þriðjung ársins 150.700 eða 17% fleiri en árið 1994 og
mánuðina október til desember voru gistinætur 118.900 eða
32% fleiri en árið 1994.
Erlendir gestir eiga drjúgan þátt í því að gistinóttum hefur
fjölgað utan háannatíma. Hlutfall útlendinga hefur verið um
og yfir 80% í júlímánuði á tímabilinu 1993-1996. I júní og
ágúst hefur hlutfallið hækkað dálítið eða úr 74-75% árið
1993 í 76-78% árið 1996. Aðra mánuði ársins hefur hlut-
fallið hækkað mun meira, mest í desember, úr 55% árið 1993
í 63% árið 1996. Hlutfall útlendinga er ævinlega lægst í
janúar og nóvember og var um 50% árið 1996 en það ár var
hlutfallið í fyrsta skipti yfir 50% í öllum mánuðum ársins.
Mynd 3 sýnir fjölda gistinátta eftir mánuðum árin 1995-
1996. Greinilegt er hve hlutfall útlendinga er hátt.
4. yfirlit. Summary 4. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum á höfuðborgarsvæðinu eftir mánuðum 1993-1996 Ovemight stays at hotels and guesthouses in the capital region by month 1993-1996
Gistinætur alls, þús. Overnight stays, thous. Hlutfall útlendinga, % Foreigners, %
1993 1994 1995 1996 1993 1994 1995 1996
Alls Total 376,1 416,3 447,2 470,2 79,7 82,0 84,0 83,6
Janúar 16,3 13,2 15,4 17,3 60,5 60,8 63,3 65,4
Febrúar 18,4 17,9 23,6 24,3 60,7 61,8 68,0 63,8
Mars 26,7 27,9 31,3 32,2 60,9 61,6 70,3 65,7
Apríl 27,3 31,4 33,6 33,3 72,6 74,1 80,5 80,5
Maí 35,7 43,2 42,4 41,6 78,7 84,4 88,1 84,4
Júní 46,4 52,3 57,6 54,1 91,4 92,2 93,2 93,6
Júlí 52,5 67,0 66,7 70,2 95,1 95,0 95,4 96,3
Ágúst 51,7 61,3 63,8 67,6 91,4 93,6 93,2 94,8
September 37,4 39,9 39,3 44,9 85,9 88,1 87,9 89,3
Október 28,5 26,4 32,9 34,3 71,4 72,7 77,3 77,7
Nóvember 21,1 20,9 24,3 30,3 63,8 57,9 63,2 64,1
Desember 14,2 14,8 16,4 20,0 64,9 65,8 70,3 72,4
4. yfirlit sýnir fjölda gistinátta á hótelum og gistiheimilum
á höfuðborgarsvæðinu árin 1993-1996. Gistinætur á
höfuðborgarsvæðinu voru 5% fleiri árið 1996 en árið á undan
og er þetta nokkru minni aukning en var á sama tíma á landinu
i' heild. Gistinætur voru 447.200 árið 1995 en 23.000 fleiri
árið 1996 eða 470.200. Árið 1993 voru gistinætur á
höfuðborgarsvæðinu 376.100 en 94.100 eða 25% fleiri árið
1996 eða 470.200 gistinætur. Hlutfall útlendinga hækkaði
úr 79,7% árið 1993 í 84% árið 1995 en lækkaði aftur í 83,6%
árið 1996. Þangað til í febrúar árið 1996 hafði hlutfall út-
lendinga hækkað svo til undantekningalaust í öllum mánuð-
um hvers árs miðað við sama mánuð ári áður. I febrúar, mars
og maí árið 1996 lækkaði hlutfallið töluvert miðað við sömu
mánuði árið 1995 eða um 4 prósentustig að meðaltali hvem
mánuð. Hlutfall útlendinga var hæst í iúlímánuði árið 1996,
96,3%.
Mynd 4 sýnir gistinætur á hótelum og gistiheimilum á
höfuðborgarsvæðinu 1995-1996. I samanburði við mynd 3
sem sýnir niðurstöður fyrir allt landið sést að á höfuðborgar-
svæðinu er hlutfall útlendinga mun hærra yfir sumartímann
en á landinu í heild. Þá er einnig greinilegt að utan háanna-
tímanns fækkar gistinóttum á höfuðborgarsvæðinu ekki nærri
eins mikið og gerir á landinu í heild.