Gistiskýrslur - 01.06.1999, Síða 5

Gistiskýrslur - 01.06.1999, Síða 5
Formáli Gistiskýrslur 1998 er sjötta rit Hagstofu íslands um niður- stöður talningar á gistinóttum og gestakomum á gisti-stöðum í landinu. Hagstofan hóf reglubundna söfnun upplýsinga um framboð á gistirými og fjölda gistinátta á gististöðum í júní 1984. Söfnunin hefur tekið til allrar seldrar gistiþjónustu að orlofshúsum félagasamtaka undanskildum. Arið 1995 var byrjað að afla upplýsinga um gestaijölda auk gistinátta í því skyni að kanna meðallengd dvalar á gististað. Skýrsluskil ffá hótelum, gistiheimilum, farfuglaheimilum og orlofshúsabyggðum hafa verið góð og sama má segja um flest vinsælustu tjaldsvæðin. Eigendur nýrra gististaða eru greinilega vel upplýstir um mikilvægi gagnasöfnunar-innar því frá þeim hafa gistiskýrslur yfirleitt borist fljótt og vel. Skýrsluskil seljenda annarrar gistiþjónustu voru við-unandi á síðasta ári en kostuðu þó tímafrekan eftirrekstur. Arið 1996 var í fyrsta skipti hægt að áætla heildafjölda gistinátta íyrir allar tegundir gististaða sem gistináttatalningin nær til. Af samtölum við þá sem ekki skila skýrslum hefur ósjaldan komið í ljós að þeir telja starfsemi sína svo veigalitla að ekki svari fyrirhöininni að útbúa skýrslur. Þessar upplýsingar eru engu að síður mikilvægar því Hagstofunni er ekki kunnugt um annað en að gististaðurinn sé opinn og í fullum rekstri. Fáir gestgjafar hika nú orðið við að senda Hagstofunni upplýsingar um gistinætur enda er þeim greinilega vel kunnugt um að með allar upplýsingar sem Hagstofan safnar til hagskýrslugerðar og varða einstaka rekstraraðila, er farið sem trúnaðarmál. Meginregla Hagstofunnar er að hag- skýrsluupplýsingar, er varða einstaklinga eða fyrirtæki, eru aldrei látnar öðrum í té , hvorki opinberum aðilum né einka- aðilum, og eru aðeins birtar samandregnar í töfluyfirlitum. Töflugerðin miðast við það að upplýsingamar verði ekki raktar beint eða óbeint til einstakra aðila. Þá má benda á að upplýsingar þær sem gestgjafar láta Hagstofu Islands í té koma ekki síst þeim sjálfum til góða við skipulagningu starfseminnar og markaðsrannsóknir. Á Hagstofunni hefur Rut Jónsdóttir haft umsjón með öflun og úrvinnslu gistiskýrslna og gerð þessa rits. Ásamt henni hefur Sigrún Sigurjónsdóttir unnið að söfnun og úrvinnslu gistiskýrslna. Uppsetningu og umbrot annaðist Sigurborg Steingrímsdóttir. Hagstofú Islands í júní 1999 Hallgrímur Snorrason Preface Tourist Accommodation 1998 is the sixth report issued by Statistics Iceland on the subject. In June 1984 Statistics Iceland began collecting data on a regular basis on the supply and use of tourist accommodation. The data collection extended to ovemight stays and arrivals in all types of tourist accommodation with the exception of trade-union summer houses. In 1995 the data collection was extended to cover guest arrivals in order to acquire information on average length of stay. Response rates from hotels and guesthouses, youth hostels and summer houses have been very satisfactory and the same applies to the most popular camping sites. The data collection from other purveyors of tourist accommodation proved more time consuming but rendered satisfactory fmal response rates. Owners ofnew tourist accommodation have tumed out to be well informed of the importance of tourist accommodation statistics and have responded well to requests for data. On the whole, the data collection has improved and coverage has increased appreciably. In 1996 it became possible for the first time to make an estimate of the number of ovemight stays for all types of accommodation covered by the tourist accommodation statistics. At Statistics lceland, Rut Jónsdóttir has been in charge of the collection of tourist accommodation reports and the subsequent data processing besides compiling the present statistical report. Sigrún Sigurjónsdóttir assisted her in collecting the reports. The lay-out was in the hands of Sigurborg Steingrímsdóttir. Statistics Iceland in June 1999 Hallgrímur Snorrason
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Gistiskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.