Gistiskýrslur - 01.06.1999, Blaðsíða 9

Gistiskýrslur - 01.06.1999, Blaðsíða 9
Inngangur Introduction 1. Gistináttatalning Hagstofu íslands 1. Overnight stays statistics Gistiskýrslur 1998 er sjötta ritið sem Hagstofan gefur út í ritröðinni Gistiskýrslur. I inngangi ritsins eru yfirlitstöflur ásamt skýringartexta og myndum. Yfírlitin ná sum hver aftur til ársins 1985 en þá hófst gistináttatalning Hagstofunnar. Önnur ná skemur aftur í tímann eða tvö til fjögur ár. Töfluhlutiritsinsnærtiláranna 1996-1998. í töfluhlutanum er talnaefnið sundurliðað eftir landsvæðum, ríkisfangi og tímabilum. Upplýsingaöflun Hagstofunnar fer þannig fram að gististöðum og öllum þeim sem selja gistiþjónustu eru send skýrslueyðublöð til útfyllingar en á þau skal færa fjölda gesta og gistinátta sundurliðaðan eftir ríkisfangi. Rfkisfongin eru auk íslands 14 Evrópulönd, þaðan sem flestir ferðamenn koma, Bandaríkin, Kanada og Japan. Aðrir gestir teljast aðrir Evrópubúar eða íbúar annarra landa. Fram til ársins 1995 var einungis safnað tölum um fjölda gistinátta en í júní árið 1995 var auk þess byrjað að safna upplýsingum urn fjölda næturgesta. Byrjunarörðugleikar háðu talningu gestakoma framan af og því er ekki hægt að birta tölur um þær fyrr en frá og með árinu 1996. Réttur Hagstofu til að krefja seljendur gistiþjónustu upplýsinga er byggður á 10. gr. laga um veitinga- og gististaði nr. 67/1985. Þar segir: „Rekstraraðilar, er undir þessi lög falla, skulu veita stjómvöldum upplýsingar skv. nánari fyrirmælum Hagstofu Islands. Slíkar upplýsingar skulu einungis notaðar til könnunar og skipulagningar á ferðaþjónustunni almennt og/eða rekstri veitinga- og gistihúsa sérstaklega sem atvinnu- greinar.“ I samræmi við þessa lagagrein og venjur skuldbindur Hagstofan sig til að fara með alla vitneskju um starfsemi einstakra gististaða sem trúnaðarmál og lætur aðeins í té upplýsingar í töflum eins og fram kemur í þessu riti. Skýrslueyðublöð þau sem Hagstofan sendir seljendum gistiþjónustu til útfyllingar eruþrjú. Tvö þeirra em svokölluð hjálparblöð, annað er fyrir gestakomur en hitt fyrir gistinætur. Þessi blöð eru einungis ætluð til notkunar á gististöðunum og er hægt að fylla þau út eftir hvem dag. Þriðja eyðublaðið „Gistiskýrsla til Hagstofu" er eina blaðið sem senda skal Hagstofunni. A það skal færa samtölur mánaðarins af hjálparblöðunum ásamt upplýsingum um gistirými. Eyðublöðin eru einnig til í tölvutæku formi fyrir töflureikni (Excel). 2. Flokkun gististaða 2. Classification of tourist accommodation Gistiþjónusta í landinu er fjölbreytt. 1 úrvinnslu Hagstofunnar er henni skipt í sex meginílokka. Fyrsti flokkur erhóteloggistiheimili. Nánartiltekið hótel, hótelíbúðir og gistiheimili starfandi allt árið, sumarhótel og sumargistiheimili. í þessum flokki eru öll hótel og gisti- heimili sem eru með sérstaka gestamóttöku og bjóða upp á lágmarks hótelþjónustu, þ.e. dagleg þrif á herbergjum og salemum. Auk þess eru í þessum flokki gistiheimili þar sem gistirými er 16 rúm eða fleiri og/eða 8 herbergi eða fleiri. Þessi viðmiðun er samkvæmt 26. gr. reglugerðar nr. 288/ 1987 um veitinga- og gististaði. Þessi flokkur gistiþjónustu tekur til mest allrar gistiþj ónustu í landinu. Tveir þriðju hlutar gistinátta sem gistináttatalning Hagstofunnar nær til em á gististöðum í þessum flokki. Arið 1997 var fyrst byrjað að flokka þá gististaði sérstaklega sem uppfylla skilyrði um aðbúnað og þjónustu til þess að geta kallast hótel. A hóteli er gestamóttaka opin alian sólarhringinn og morgunverður framreiddur. Fullbúin snyrting skal vera á a.m.k. 75% herbergja. I þessu riti eru birtar sérstakar töflur og yfírlit um gistirými og fjölda gistinátta á hótelum árin 1997-1998. Annar flokkur gististaða er orlofshúsabyggðir. Þá er átt við sumarhúsa- eða smáhýsahverfi með a.m.k. þremur húsum. Umfang orlofshúsagistingar er mun umfangsmeira en heimagistingar í þeim tilvikum þegar þessar tvær tegundir gistingar eru reknar samhliða. Einungis er átt við sumarhús sem leigð eru út í hagnaðarskyni, ekki t.d. sumarhús stéttar- og starfsmannafélaga. Hús innan orlofshúsabyggða sem eru leigð út til stéttar- og starfsmannafélaga eru ekki heldur meðtalin. Þriðji flokkurgististaðaerheimagististaðir. Framtil ársins 1995 var hluti þessa flokks kallaður bœndagististaðir en var þá skipt í annars vegar hótel eða gistiheimili og hins vegar heimagististaði. Fyrrum bændagististaðir, sem voru árið 1995 með gistirými við áðurnefnd viðmiðunarmörk eða stærra, flokkast nú sem hótel eða gistiheimili, hinir minni sem heimagististaðir. Til heimagististaða telst öll gisting á einka- heimilum hvort sem er í kaupstöðum eða á sveitabýlum. Bændur eru ósjaldan með eitt til tvö sumarhús að auki og þar sem erfítt hefur reynst að fá þessa gistingu nákvæmlega sundurliðaða frá hinni hefðbundnu heimagistingu er sú gisting talin með heimagistingunni. Leigi bændur sumarhús sín út til stéttar- eða starfsmannafélaga er sú gisting ekki meðtalin hér. Fjórði flokkur gististaða er farfuglaheimili. Farfugla- heimili bjóða upp á gistingu í rúmum með sæng og kodda en gestir þurfa að hafa með sér sængurfot eða leigja þau á staðnum. Gestir geta einnig notað eigin svefnpoka. Öll farfuglaheimili eru í Bandalagi íslenskra farfugla sem á aðild að Alþjóðasamtökum farfugla (IYHF). Fimmti flokkur gististaða er svefnpokagististaðir. Þeir geta verið sumarhótel, félagsheimili og skólar sem selja gistingu í svefnpokum á gólfdýnum í stórum vistarverum. Ýmis gistiheimili bjóða upp á svefiipokagistingu í rúmum en sú gisting telst með gistingu í uppbúnum rúmum gistiheimilanna. Sjötti flokkur gististaða er tjaldsvœði og skálar. Til hans teljast öll tjaldsvæði og gistiskálar þar sem er varsla og/eða gjaldtaka. Fram til ársins 1998 voru skálar og tjaldsvæði á miðhálendi ekki fíokkaðir eftir hinum hefðbundnu land- svæðum heldur voru í sér flokki, miðhálendi. Árið 1998 var
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Gistiskýrslur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.