Gistiskýrslur - 01.06.1999, Qupperneq 9
Inngangur
Introduction
1. Gistináttatalning Hagstofu íslands
1. Overnight stays statistics
Gistiskýrslur 1998 er sjötta ritið sem Hagstofan gefur út í
ritröðinni Gistiskýrslur. I inngangi ritsins eru yfirlitstöflur
ásamt skýringartexta og myndum. Yfírlitin ná sum hver aftur
til ársins 1985 en þá hófst gistináttatalning Hagstofunnar.
Önnur ná skemur aftur í tímann eða tvö til fjögur ár.
Töfluhlutiritsinsnærtiláranna 1996-1998. í töfluhlutanum
er talnaefnið sundurliðað eftir landsvæðum, ríkisfangi og
tímabilum. Upplýsingaöflun Hagstofunnar fer þannig fram
að gististöðum og öllum þeim sem selja gistiþjónustu eru
send skýrslueyðublöð til útfyllingar en á þau skal færa fjölda
gesta og gistinátta sundurliðaðan eftir ríkisfangi. Rfkisfongin
eru auk íslands 14 Evrópulönd, þaðan sem flestir ferðamenn
koma, Bandaríkin, Kanada og Japan. Aðrir gestir teljast aðrir
Evrópubúar eða íbúar annarra landa. Fram til ársins 1995
var einungis safnað tölum um fjölda gistinátta en í júní árið
1995 var auk þess byrjað að safna upplýsingum urn fjölda
næturgesta. Byrjunarörðugleikar háðu talningu gestakoma
framan af og því er ekki hægt að birta tölur um þær fyrr en
frá og með árinu 1996.
Réttur Hagstofu til að krefja seljendur gistiþjónustu
upplýsinga er byggður á 10. gr. laga um veitinga- og gististaði
nr. 67/1985. Þar segir: „Rekstraraðilar, er undir þessi lög falla,
skulu veita stjómvöldum upplýsingar skv. nánari fyrirmælum
Hagstofu Islands. Slíkar upplýsingar skulu einungis notaðar
til könnunar og skipulagningar á ferðaþjónustunni almennt
og/eða rekstri veitinga- og gistihúsa sérstaklega sem atvinnu-
greinar.“ I samræmi við þessa lagagrein og venjur skuldbindur
Hagstofan sig til að fara með alla vitneskju um starfsemi
einstakra gististaða sem trúnaðarmál og lætur aðeins í té
upplýsingar í töflum eins og fram kemur í þessu riti.
Skýrslueyðublöð þau sem Hagstofan sendir seljendum
gistiþjónustu til útfyllingar eruþrjú. Tvö þeirra em svokölluð
hjálparblöð, annað er fyrir gestakomur en hitt fyrir gistinætur.
Þessi blöð eru einungis ætluð til notkunar á gististöðunum
og er hægt að fylla þau út eftir hvem dag. Þriðja eyðublaðið
„Gistiskýrsla til Hagstofu" er eina blaðið sem senda skal
Hagstofunni. A það skal færa samtölur mánaðarins af
hjálparblöðunum ásamt upplýsingum um gistirými.
Eyðublöðin eru einnig til í tölvutæku formi fyrir töflureikni
(Excel).
2. Flokkun gististaða
2. Classification of tourist accommodation
Gistiþjónusta í landinu er fjölbreytt. 1 úrvinnslu Hagstofunnar
er henni skipt í sex meginílokka.
Fyrsti flokkur erhóteloggistiheimili. Nánartiltekið hótel,
hótelíbúðir og gistiheimili starfandi allt árið, sumarhótel og
sumargistiheimili. í þessum flokki eru öll hótel og gisti-
heimili sem eru með sérstaka gestamóttöku og bjóða upp á
lágmarks hótelþjónustu, þ.e. dagleg þrif á herbergjum og
salemum. Auk þess eru í þessum flokki gistiheimili þar sem
gistirými er 16 rúm eða fleiri og/eða 8 herbergi eða fleiri.
Þessi viðmiðun er samkvæmt 26. gr. reglugerðar nr. 288/
1987 um veitinga- og gististaði. Þessi flokkur gistiþjónustu
tekur til mest allrar gistiþj ónustu í landinu. Tveir þriðju hlutar
gistinátta sem gistináttatalning Hagstofunnar nær til em á
gististöðum í þessum flokki. Arið 1997 var fyrst byrjað að
flokka þá gististaði sérstaklega sem uppfylla skilyrði um
aðbúnað og þjónustu til þess að geta kallast hótel. A hóteli
er gestamóttaka opin alian sólarhringinn og morgunverður
framreiddur. Fullbúin snyrting skal vera á a.m.k. 75%
herbergja. I þessu riti eru birtar sérstakar töflur og yfírlit um
gistirými og fjölda gistinátta á hótelum árin 1997-1998.
Annar flokkur gististaða er orlofshúsabyggðir. Þá er átt
við sumarhúsa- eða smáhýsahverfi með a.m.k. þremur
húsum. Umfang orlofshúsagistingar er mun umfangsmeira
en heimagistingar í þeim tilvikum þegar þessar tvær tegundir
gistingar eru reknar samhliða. Einungis er átt við sumarhús
sem leigð eru út í hagnaðarskyni, ekki t.d. sumarhús stéttar-
og starfsmannafélaga. Hús innan orlofshúsabyggða sem eru
leigð út til stéttar- og starfsmannafélaga eru ekki heldur
meðtalin.
Þriðji flokkurgististaðaerheimagististaðir. Framtil ársins
1995 var hluti þessa flokks kallaður bœndagististaðir en var
þá skipt í annars vegar hótel eða gistiheimili og hins vegar
heimagististaði. Fyrrum bændagististaðir, sem voru árið 1995
með gistirými við áðurnefnd viðmiðunarmörk eða stærra,
flokkast nú sem hótel eða gistiheimili, hinir minni sem
heimagististaðir. Til heimagististaða telst öll gisting á einka-
heimilum hvort sem er í kaupstöðum eða á sveitabýlum.
Bændur eru ósjaldan með eitt til tvö sumarhús að auki og
þar sem erfítt hefur reynst að fá þessa gistingu nákvæmlega
sundurliðaða frá hinni hefðbundnu heimagistingu er sú
gisting talin með heimagistingunni. Leigi bændur sumarhús
sín út til stéttar- eða starfsmannafélaga er sú gisting ekki
meðtalin hér.
Fjórði flokkur gististaða er farfuglaheimili. Farfugla-
heimili bjóða upp á gistingu í rúmum með sæng og kodda
en gestir þurfa að hafa með sér sængurfot eða leigja þau á
staðnum. Gestir geta einnig notað eigin svefnpoka. Öll
farfuglaheimili eru í Bandalagi íslenskra farfugla sem á aðild
að Alþjóðasamtökum farfugla (IYHF).
Fimmti flokkur gististaða er svefnpokagististaðir. Þeir geta
verið sumarhótel, félagsheimili og skólar sem selja gistingu í
svefnpokum á gólfdýnum í stórum vistarverum. Ýmis
gistiheimili bjóða upp á svefiipokagistingu í rúmum en sú
gisting telst með gistingu í uppbúnum rúmum gistiheimilanna.
Sjötti flokkur gististaða er tjaldsvœði og skálar. Til hans
teljast öll tjaldsvæði og gistiskálar þar sem er varsla og/eða
gjaldtaka. Fram til ársins 1998 voru skálar og tjaldsvæði á
miðhálendi ekki fíokkaðir eftir hinum hefðbundnu land-
svæðum heldur voru í sér flokki, miðhálendi. Árið 1998 var