Gistiskýrslur - 01.07.2001, Síða 9

Gistiskýrslur - 01.07.2001, Síða 9
Inngangur Introduction 1. Gistináttatalning Hagstofu íslands 1. Overnight stays statistics Gistiskýrslur 2000 er áttunda ritið sem Hagstofan gefur út í ritröðinni Gistiskýrslur. I inngangi ritsins eru yfirlitstöflur ásamt skýringartexta og myndum. Yfirlitin ná sum hver aftur til ársins 1985 en þá hófst gistináttatalning Hagstofunnar. Önnur ná skemur aftur í tímann eða tvö til fjögur ár. Töflu- hluti ritsins nær til áranna 1997-2000. I töfluhlutanum er talnaefnið sundurliðað eftir landsvæðum, ríkisfangi og tíma- bilum. Upplýsingaöflun Hagstofunnar fer þannig fram að gististöðum og öllum þeim sem selja gistiþjónustu eru send skýrslueyðublöð til útfyllingar en á þau skal færa fjölda gesta og gistinátta sundurliðaðan eftir rfkisfangi. Ríkisföngin eru auk Islands 14 Evrópulönd, þaðan sem flestir ferðamenn koma, Bandaríkin, Kanada og Japan. Aðrir gestir teljast aðrir Evrópubúar eða íbúar annarra landa. Fram til ársins 1995 var einungis safnað tölum um fjölda gistinátta en í júní árið 1995 var auk þess byrjað að safna upplýsingum um fjölda næturgesta. Byrjunarörðugleikar háðu talningu gestakoma framan af og því er ekki hægt að birta tölur um þær fyrr en frá og með árinu 1996. Réttur Hagstofu til að krefja seljendur gistiþjónustu upplýsinga er byggður á 10. gr. laga um veitinga- og gististaði nr. 67/1985. Þar segir: „Rekstraraðilar, er undirþessi lög falla, skulu veita stjómvöldum upplýsingar skv. nánari fyrirmælum Hagstofu Islands. Slíkar upplýsingar skulu einungis notaðar til könnunar og skipulagningar á ferðaþjónustunni almennt og/eða rekstri veitinga- og gistihúsa sérstaklega sem atvinnu- greinar.“ í samræmi við þessa lagagrein og venjur skuldbindur Hagstofan sig til að fara með alla vitneskju um starfsemi einstakra gististaða sem trúnaðarmál og lætur aðeins í té upplýsingar í töflum eins og fram kemur í þessu riti. Skýrslueyðublöð þau sem Hagstofan sendir seljendum gistiþjónustu til útfyllingar eru þrjú. Tvö þeirra em svokölluð hjálparblöð, annað er fyrir gestakomur en hitt fyrir gistinætur. Þessi blöð eru einungis ætluð til notkunar á gististöðunum og er hægt að fylla þau út eftir hvem dag. Þriðja eyðublaðið „Gistiskýrsla til Hagstofu“ er eina blaðið sem senda skal Hagstofunni. Á það skal færa samtölur mánaðarins af hjálpar- blöðunum ásamt upplýsingum um gistirými. Eyðublöðin eru einnig til í tölvutæku formi fyrir töflureikni (Excel). 2. Flokkun gististaða 2. Classification of tourist accommodation Gistiþjónusta í landinu er fjölbreytt. I úrvinnslu Hagstofunnar er henni skipt í sex meginflokka. Fyrsti flokkur er hótel og gistiheimili. Nánar tiltekið hótel, hótelíbúðir og gistiheimili starfandi allt árið, sumarhótel og sumargistiheimili. I þessum flokki em öll hótel og gistiheimili sem eru með sérstaka gestamóttöku og bjóða upp á lágmarks hótelþjónustu, þ.e. dagleg þrif á herbergjum og salernum. Auk þess em í þessum flokki gistiheimili þar sem gistirými er 16 rúm eða flehi og/eða 8 herbergi eða fleiri. Þessi viðmiðun er samkvæmt 26. gr. reglugerðar nr. 288/1987 um veitinga- og gististaði. Þessi flokkur gistiþjónustu tekur til mest allrar gistiþjónustu í landinu. Tveir þriðju hlutar gistinátta sem gisti- náttatalning Hagstofunnar nær til eru á gististöðum í þessum flokki. Árið 1997 var fyrst byrjað að flokka þá gististaði sérstaklega sem uppfylla skilyrði um aðbúnað og þjónustu til þess að geta kallast hótel. Á hóteli er gestamóttaka opin allan sólarhringinn og morgunverður framreiddur. Fullbúin snyrting skal vera á a.m.k. 75% herbergja. Annar flokkur gististaða er orlofshúsabyggðir. Þá er átt við sumarhúsa- eða smáhýsahverfi með a.m.k. þremur húsum. Umfang orlofshúsagistingar er mun meira en heima- gistingar í þeim tilvikum þegar þessar tvær tegundir gistingar eru reknar samhliða. Einungis er átt við sumarhús sem leigð eru út í hagnaðarskyni, ekki t.d. sumarhús stéttar- og starfs- mannafélaga. Hús innan orlofshúsabyggða sem leigð eru út til stéttar- og starfsmannafélaga eru ekki heldur meðtalin. Þriðji flokkur gististaða er heimagististaðir. Fram til ársins 1995 var hluti þessa flokks kallaður bœndagististaðir en var þá skipt í annars vegar hótel eða gistiheimili og hins vegar heimagististaði. Fyrmm bændagististaðir, sem voru árið 1995 með gistirými við áðurnefnd viðmiðunarmörk eða stærra, flokkast nú sem hótel eða gistiheimili, hinir minni sem heimagististaðir. Til heimagististaða telst öll gisting á einka- heimilum hvort sem er í kaupstöðum eða á sveitabýlum. Bændur eru ósjaldan með eitt til tvö sumarhús að auki og þar sem erfitt hefur reynst að fá þessa gistingu nákvæmlega sundurliðaða frá hinni hefðbundnu heimagistingu er sú gisting talin með heimagistingunni. Leigi bændur sumarhús sín út til stéttar- eða starfsmannafélaga er sú gisting ekki meðtalin hér. Fjórði flokkur gististaða er farfuglaheimili. Farfugla- heimili bjóða upp á gistingu í rúmum með sæng og kodda en gestir þurfa að hafa með sér sængurföt eða leigja þau á staðnum. Gestir geta einnig notað eigin svefnpoka. OU faifuglaheimili eru í Bandalagi íslenskra farfugla sem á aðild að Alþjóðasamtökum farfugla (IYHF). Fimmti flokkur gististaða er svefnpokagististaðir. Þeir geta verið sumarhótel, félagsheimili og skólar sem selja gistingu í svefnpokum á gólfdýnum í stórum vistarverum. Ymis gisti- heimili bjóða upp á svefnpokagistingu í rúmum en sú gisting telst með gistingu í uppbúnum rúmum gistiheimilanna. Sjötti flokkur gististaða er tjaldsvœði og skálar. Til hans teljast öll tjaldsvæði og gistiskálar þar sem er varsla og/eða gjaldtaka. Fram til ársins 1998 voru skálar og tjaldsvæði á miðhálendi ekki flokkaðir eftir hinum hefðbundnu land- svæðum heldur voru í sér flokki, miðhálendi. Árið 1998 var þessu breytt og gististaðir á hálendi eru nú flokkaðir eins og aðrir gististaðir, þ.e. eftir landsvæðum. Fram til ársins 1998 er greint frá skálum á miðhálendi, nú skálum í óbyggðum, en til þess flokks teljast einnig skálar í óbyggðum sem liggja utan miðhálendisins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Gistiskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gistiskýrslur
https://timarit.is/publication/1383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.