Skessuhorn - 06.09.2017, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 36. tbl. 20. árg. 6. september 2017 - kr. 750 í lausasölu
Loratadin
LYFIS
- fæst án lyfseðils
Yfir ��� tilboð
Allir viðskiptavinir Arion banka
eru í Einkaklúbbnum
Náðu í appið og nýttu þér tilboðin
Til alþingismanna
Tökum upp
US Dollar
Pétur Geirsson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Haustplöntur
komnar
Opnunartími
Mánudaga – föstudaga
kl. 12-18
Laugardaga
kl. 11-15
Skagabraut 17, Akranes
Nýtt kvótaár hófst síðastliðinn föstudag þegar Fiskistofa úthlutaði aflamarki fyrir komandi vertíð. Rétt um 90 bátar og skip
með heimahöfn á Vesturlandi fengu úthlutað aflamarki. Dreifast þau um hafnir á Vesturlandi, en flestir gera út frá Ólafsvík
og Rifi, 19 á hvorum stað. Aflamark skipa í landshlutanum er um 55 þúsund tonn, sem er 14,6% af heildaraflamarki íslensku
skipanna. Ítarlega er fjallað um nýtt kvótaár í Skessuhorni í dag. Á meðfylgjandi mynd er Emil Freyr Emilsson, skipstjóri á
línubátnum Guðbjarti SH, með tvær vænar ýsur sem hann landaði í Rifi á sunnudaginn. Ljósm. af.
Fyrstu göngur og réttir á Vesturlandi
voru um helgina. Fyrst var réttað í
Nesmelsrétt í Hvítársíðu á laugardag-
inn en Kaldárbakkarétt í Kolbeins-
staðarhreppi á sunnudag. Næstu daga
halda bændur og búalið svo almennt
til fjalla og er fjöldi réttardaga á dag-
skrá um og eftir næstu helgi. Á með-
fylgjandi mynd er ungur herramað-
ur úr Hvítársíðu, Bergur Guðmunds-
son frá Háafelli, staddur í Nesmels-
rétt. Hér heilsar hann upp á eina af
spöku kindunum frá Sámsstöðum en
sú skilaði sér sæl og ánægð af Síðu-
fjallinu eftir gott og grasgefið sumar.
Því má við þetta bæta að land-
búnaðarráðherra lagði á mánudag-
inn fram tillögur sem leysa eiga hluta
þess vanda sem sauðfjárbændur glíma
við vegna boðaðs verðfalls á kjöti í
haust. Sagt er frá tillögum ráðherra
á bls. 9.
mm/ Ljósm. Þuríður
Guðmundsdóttir.
Fyrstu réttir afstaðnar
Síðastliðinn fimmtudag var skrifað
undir kaupsamnings Ísfisks hf. í Kópa-
vogi á fiskvinnsluhúsi HB Granda við
Bárugötu 8-10 á Akranesi. Nokkrum
mínútum áður hafði síðasti starfs-
maður HB Granda kvatt sinn gamla
vinnustað, en bolfisksvinnsla fyrir-
tækisins hefur eins og kunnugt er öll
verið flutt á Norðurgarð í Reykja-
vík. Ísfiskur hf. sérhæfir sig í vinnslu
á ýsu og þorski í neytendapakkningar
á markað í USA og Kína. Fyrirtæk-
ið vinnur úr fjögur þúsund tonnum
af fiski sem allur er keyptur á mark-
aði. Með kaupunum skapast rými til
að tvöfalda vinnslugetu fyrirtækisins
og er því búist við aukinni starfsemi
eftir flutning á Akranes. Um fjörutíu
störf fylgja starfsemi fyrirtækisins nú
en þeim gæti fjölgað.
Í Skessuhorni í dag er ítarlega
greint frá kaupunum en auk þess litið
í heimsókn til Ísfisks sem undanfarin
37 ár hefur haft starfsemi sína á Kárs-
nesinu í Kópavogi. mm
Ísfiskur flytur á
Akranes
Í liðinni viku birtist heldur óvenju-
leg auglýsing á samfélagsmiðl-
um. Þar auglýsti Rebecca Cathrine
Kaad Ostenfeld, bóndi á Hólum í
Hvammssveit, eftir trampolíni fyrir
geiturnar sínar. Þetta vakti að von-
um mikla athygli og kátínu lesenda
enda líklegast fæstir sem tengja geit-
ur og trampolín saman. Rebecca
rekur lítinn dýragarð að Hólum
sem hefur að geyma ýmsar dýrateg-
undir og þar á meðal eru geiturnar;
tveir kiðlingar sem ítrekað hafa sótt
á trampolín barnanna. Það varð til
þess að Rebecca fékk þá hugdettu
að prófa að auglýsa eftir trampolíni
fyrir geiturnar. Svörin létu ekki á sér
standa og nú hafa henni borist fjöl-
mörg boð um trampolín svo geit-
urnar geti hoppað að vild og börnin
fá væntanlega að hafa sitt trampolín
í friði. sm
Geitur elska trampólín