Skessuhorn


Skessuhorn - 06.09.2017, Side 4

Skessuhorn - 06.09.2017, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 20174 Nú er búið að steypa upp inntaks- mannvirki Urðarfellsvirkjunar í landi Húsafells í Borgarfirði. Mann- virkið sjálft verður síðan að hluta niðurgrafið og fellt inn í landslagið þannig að sem minnst beri á því. Frá inntakshúsinu er lögð 3,1 kílómetra fallvatnslögn niður í stöðvarhús sem reist verður í Reyðarfellsskógi. Það mun hýsa túrbínu, rafal og spenni, en auk þess verður gert ráð fyrir gestasvæði þannig að ferðafólk og áhugasamir gestir geti séð hvern- ig rafmagnið verður til við eins um- hverfisvænar aðstæður og hugsast getur. Á meðfylgjandi myndum er annars vegar inntakshúsið en á hinni myndinni er horft niður eftir hlíð- inni þar sem búið er að leggja rör í sand og síðan verður mokað yfir. Í fjarska sést hluti Hallmundarhrauns og heim að hinu fagra bæjarstæði á Gilsbakka í Hvítársíðu. Að sögn Bergþórs Kristleifsson- ar á Húsafelli gerir hann ráð fyr- ir að framkvæmdum ljúki í haust. Rarik hefur gert samning um kaup á orkunni sem framleidd verður og má því búast við að rafmagn úr Urðarfellsvirkjun verði notað þegar landsmenn elda jólasteikina. mm/ Ljósm. es. Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Aðskilnaðarkvíði samtímans Vafalítið hafa flestir tekið eftir því að veruleg breyting hefur orðið í notk- un hinna svokölluðu snjallsíma, sem í eðli sínu eru miklu fremur hand- hægar tölvur en góðir símar. Aukin notkun þeirra er á engan hátt sérís- lenskt fyrirbrigði, heldur alþjóðlegt. Við sjáum það best á þeim erlendu ferðamönnum sem hingað koma. Þeir eru afar háðir þessum tækjum og algjörlega „týndir“ ef þeir aka inn í íslenska sveit án netsambands. Í þess- um tækjum eru myndavélar, stafræn landakort sem ekið er eftir með leið- sögn frá Google maps og þar bóka menn næstu gistingu eða mat. Því er eins gott að staðir séu rétt merktir í leiðsagnarforritin. Í Skessuhorni í dag er einmitt sagt frá ferðamönnum sem endurtekið villast inn í sumar- húsahverfi í landi Beigalda í Borgarhreppi, en ætluðu í Svignaskarð, sem er tíu kílómetrum ofar í héraðinu. Margir muna einnig eftir ferðamann- inum sem ók í blindni frá Keflavík og á Laugarveg á Siglufirði, en hugð- ist fara á Laugaveg í Reykjavík. Þessi dæmi sanna hversu mjög fólk er orðið háð þessum tækjum, trúir þeim í blindni og ekur bara eitthvað! Nútíma notkun á snjallsímum og handhægum spjaldtölvum hefst gjarnan þegar börn eru ómálga en oftast þegar þau eru búin að læra að sitja upprétt. Til að hafa ofan af fyrir þeim er slíku tæki stillt framan við þau jafnvel strax við morgunverðarborðið og stillt á teiknimynd. Um leið eru foreldrarnir jafnvel að kaupa sér stundarfrið til annarra verka, nú eða eru sjálfir í sínum tækjum. Í leikskólum eru slík tæki einnig að finna og í grunnskólum eru þau beinlínis talin nauðsynleg. Forritun nútíma kennslugagna felst í að sem mest af kennsluefni sé hægt að nálgast með öppum í þessi tæki og á æðri skólastigum heldur þetta svo áfram. Ég ætla alls ekki að fordæma notkun nútíma snjalltækja, öðru nær. Tæknin heldur vissulega áfram að þróast, hvernig sem okkur líkar, og hana þurfum við að tileinka okkur til að vera fullgildir þátttakendur í nú- tíma samfélagi. En engu að síður benda nýlegar rannsóknir til að of mikil og oft á tíðum hömlulaus notkun þessara tækja sé að afvegaleiða ýmsa og skapa ýmis vandamál í heilsufari sem ekki var séð fyrir. Slíkar vísbending- ar ber að taka alvarlega og bregðast við eins og skynsömu fólki sæmir. Tölvufíkn er alþekkt vandamál, löngu fyrir tíma snjalltækjanna, sem virðast heldur auka á vandann. Nýlega fréttir, meðal annars í breska blaðinu The Guardian, herma að fyrirbærið nomophoba sé orðið alvar- legur kvilli. Nomophobia er stytting á No-Mobile Phobia, sem mætti útleggja sem símaaðskilnaðarkvíði og lýsir sér þannig að fólk er orðið svo háð snjalltækinu sínu að það óttast mest af öllu að verða viðskila við tæk- ið. Óttast það jafnvel meira en að missa nákominn ættingja. Í ljósi þess að almenn notkun á snjalltækjum hófst fyrir einungis örfáum árum eru allar rannsóknir sem þetta snertir á algjöru frumstigi og ber að taka með fyrirvara. Hins vegar er margt sem bendir til þess að fólk á öllum aldri sé langt frá því að höndla þá breytingu í lífinu sem felst í taka svo kærkom- inn félaga inn á gafl hjá sér. Allavega er margt í daglegri hegðun fólks sem ég get ekki skilið með öðrum hætti en það megi flokka sem vandamál. Allavega get ég ekki réttlætt símanotkun bílstjóra við akstur, farsíma í greipum fólks við jarðarför eða að fólk sé í símum eða snjalltækjum í tíma og ótíma þegar það á að vera að vinna ótengd störf. Af þessum sökum vil ég hvetja alla sem eiga svona snjalltæki að íhuga vel notkunarmynstur sitt á tækjunum og hugsa með sér hvort tímabært sé að hvíla þau oftar, líta upp og njóta augnabliksins án rafræns áreitis. Látum allavega ekki aðskilnaðarkvíða við dautt tæki verða okkur að ald- urtila. Magnús Magnússon Leiðari Framkvæmdir við Urðarfellsvirkjun ganga vel Eins og greint hefur verið frá stendur fyrir dyrum bygging lauga í grjótgarðinum við Langasand á Akranesi, en framkvæmdin nefnist einu nafni Guðlaug. Útsýnispallur verður á efstu hæð, en tvær laugar undir. Ístak hefur tekið að sér gerð lauganna. Í gær var stórvirk vinnu- vél byrjuð að athafna sig á svæðinu og færði til grjót þar sem laugarnar munu rísa á næstu mánuðum. mm Jarðvegsvinna hafin vegna byggingar Guðlaugar Framkvæmdir hófust í grjótvarnargarðinum í gær. Ljósm. mg. Þannig mun Guðlaug líta út að framkvæmdum loknum, skv. teikningum arkitekta. Unglingalandsmót UMFÍ fór fram venju samkvæmt um verslunarmannahelg- ina. Að þessu sinni var mótið haldið á Egilstöð- um. Þykir mótshald hafa tekist vel til og hafa ver- ið til fyrirmyndar æsku landsins. Ekki vantaði Vestlend- inga á unglingalandsmót að þessu sinni frekar en fyrri daginn, því öll fjögur íþróttabandalög og ung- mennasambönd landshlut- ans áttu fulltrúa á mótinu. Þau eru; Héraðssamband Snæfells og Hnappadals- sýslu, Íþróttabandalag Akraness, Ungmennsamband Borgarfjarðar og Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga. UMSB sendi 35 keppendur til leiks í fjölda íþróttagreina. Flestir félagsmenn UMSB kepptu í frjáls- um íþróttum og sundi en næst þar á eftir kom knattspyrnan og körfubolt- inn. UMSB átti enn fremur tvo full- trúa sem kepptu í sundi og frjálsum íþróttum fatlaðra og einnig fulltrúa í óhefðbundnari keppnisgreinum eins og kökuskreytingum og stafsetn- ingu. Keppendur HSH voru 19 að þessu sinni og kepptu þeir flestir í knatt- spyrnu og körfubolta. Einnig átti HSH fulltrúa í keppni í ólympískum lyftingum og glímu. Geta má þess að HSH færði öllum keppendum sínum hettupeysu og húfu að gjöf fyrir mótið. UDN átti 16 fulltrúa á unglingalandsmóti. Langflestir kepptu þeir í frjálsum íþróttum en næstflestir í knattspyrnu. Þá átti UDN einnig fulltrúa í keppni í frisbígolfi, glímu og stafsetningu. Einn keppandi unglingalandsmóts keppti í sundi undir merkjum ÍA, en að því er fram kemur í upplýsingum frá UMFÍ sendi íþróttabandalagið ekki fleiri keppendur til leiks. kgk Fjöldi Vestlendinga á Unglingalandsmóti UMFÍ Fulltrúar UMSB á setningarathöfn mótsins. Ljósm. UMFÍ.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.