Skessuhorn


Skessuhorn - 06.09.2017, Síða 9

Skessuhorn - 06.09.2017, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2017 9 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir landbúnaðarráðherra kynnti á mánu- dag tillögur sínar til að bregðast við vanda sauðfjárbænda. Meginmark- ið þeirra er að draga úr framleiðslu dilkakjöts um 20%, mæta kjara- skerðingu bænda, styðja við sauð- fjárbúskap á jaðarsvæðum og gera úttekt á birgðum sauðfjárafurða og afurðastöðvakerfinu. Jafnframt boð- ar ráðherra að tillögur um aðgerðir og áherslur fara nú til umfjöllunar og ákvörðunar á vettvangi Alþingis og hjá samtökum bænda. Forysta Bænda- samtaka Íslands og Landssamtaka s a u ð f j á r b æ n d a sendi samdæg- urs frá sér yfirlýs- ingu vegna máls- ins. Í henni segir m.a. „Tillögurnar eru settar fram á ábyrgð ráðherra. Ekki er um að ræða samkomu- lag stjórnvalda og samtaka bænda. Tillögurnar verða teknar til umfjöll- unar á vettvangi samtaka bænda, m.a. á aukafundi Landssamtaka sauðfjár- bænda. Hvað varðar efni tillagnanna þá telja BÍ og LS að í þeim sé vissu- lega margt sem hægt er að taka undir og mun verða sauðfjárbændum til að- stoðar, nú þegar þeir standa frammi fyrir þriðjungslækkun afurðaverðs. Hins vegar vantar þær aðgerðir sem taka á fyrirsjáanlegum birgðavanda eftir sláturtíðina, sem nú er hafin. Samtökin telja því að tillögurnar leysi ekki vandann að fullu þó þær séu í rétta átt.“ Aðgerðir ráðherra til að draga úr framleiðslu kindakjöts „Markmiðið með þessum aðgerð- um er að fé verði fækkað um 20% með því að gefa bændum kost á því að hætta sauðfjárframleiðslu en halda 90% greiðslum samkvæmt sauðfjár- samningi í fimm ár, 2018-2022, þ.e. greiðslum samkvæmt 3.-8. grein samningsins, sbr. viðaukatöflu 1. með samningnum. Greiðslur til hvers bónda miðist við greiðslu- mark, innlegg, fjárfjölda og aðrar for- sendur fyrir greiðslum, eins og þær voru á viðkomandi búi að meðal- tali árin 2016 og 2017. Val verði um það hvort framleiðandi fái greiðsl- una greidda í eingreiðslu (núvirt) eða með jöfnun greiðslum á 5 ára tíma- bili. Þá eiga þeir kost á greiðslu slát- urálags sem taka ákvörðun um fækk- un að lágmarki um 50 kindur haust- ið 2017. Þeir sem ákveða að nýta sér þessi úrræði geri um það samninga. Matvælastofnun verði falið að annast gerð þeirra. Þeir sem kjósa að hætta á árinu 2018 geta gert samskonar samninga en eiga þá kost á 70% greiðslum skv. framangreindu í þrjú ár, 2019-2021. Skal sú ákvörðun liggja fyrir eigi síð- ar en 1. júlí 2018. Greitt verði 4.000 kr. sláturálag á ær sem koma til slátr- unar haustið 2017 á grundvelli ofan- greindra samninga, sem yrði fjár- magnað með framlagi ríkisins á fjár- aukalögum 2017. Gert er ráð fyrir að verja 250 m.kr. til þessa verkefnis. Ekki verður greitt sláturálag eftir slát- urtíð 2017. Styrkur verði greiddur að hámarki fyrir 62.500 ær. Verði óskað eftir sláturálagi á fleiri ær gildi regl- an fyrstur kemur fyrstur fær. Þó skuli þeir njóta forgangs sem taka ákvörð- un um að hætta sauðfjárbúskap alfar- ið. Jafnframt verði ásetningshlutfall lækkað í 0,6. Þeir framleiðendur sem gera samninga um að hætta á grund- velli ofangreinds skuldbinda sig til að taka ekki upp sauðfjárframleiðslu að nýju á gildistíma núverandi sauðfjár- samnings. Þeir sem gera samninga um fækkun skuldbinda sig til að auka ekki framleiðslu sína á gildistíma nú- verandi sauðfjársamnings. Kvöðin verði bundin við framleiðanda og tengda aðila. Aðgerðir til að draga úr kjaraskerðingu Greiðslur vegna kjaraskerðingar: Bændur eigi kost á greiðslum sem miðist við fjölda kinda á vetrarfóðr- um samkvæmt skráningu Matvæla- stofnunar haustið 2016. Skilyrði fyrir þessum greiðslum verði m.a. að við- komandi bóndi búi á lögbýli og hafi fleiri en 150 vetrarfóðraðar kindur. Þetta yrði einskiptisaðgerð og hugs- uð til að bæta að hluta kjaraskerðingu þeirra sem halda áfram sauðfjárfram- leiðslu. Til þessa verkefnis verði varið 250 m.kr. með sérstöku framlagi rík- isins. Svæðisbundinn stuðningur Samkvæmt gildandi samningi er 99 m.kr. varið í svæðisbundinn stuðning á árinu 2017 en sú fjárhæð hækkar í 145 m.kr. á næsta ári. Þessar greiðslur koma fyrst og fremst þeim bændum til góða sem eiga erfitt með að sækja atvinnu utan búsins vegna fjarlægðar frá þéttbýli. Til þessa verkefnis verði varið 150 m.kr. kr. til viðbótar því fé sem áskilið er í samningnum. Aðrar aðgerðir Aftenging framleiðsluhvata Miðað við núverandi ástand verða gæðastýringagreiðslur frystar árið 2018 til tveggja ára, sbr. þó tilmæli til endurskoðunarnefndar. Aðgerðir vegna skuldamála Byggðastofnun kanni þörf á endur- fjármögnun eða lengingu lána, sér- staklega hjá ungum skuldsettum sauðfjárbændum. Stofnuninni verði falið að meta stöðuna, gera tillögur að aðgerðum og kostnaðarmeta þær. Hagræðing í sauðfjárslátrun Ráðist verði í úttekt á afurðastöðva- kerfinu sem verði grundvöllur við- ræðna stjórnvalda, sláturleyfishafa og bænda um breytingar til hagsbóta fyrir neytendur og bændur. Mark- mið þessarar vinnu er að leita leiða til að lækka sláturkostnað, auka hag- ræðingu í greininni og skoða hvern- ig hægt er að koma á beinna samba ndi milli bænda og neytenda. Nánari skilgreining og útfærsla á verkefninu verði unnin í samvinnu viðkomandi aðila. Niðurstöður framangreindra athugana verði m.a. nýttar við end- urskoðun samnings um starfsskilyrði sauðfjárræktar sem nú er hafin. Birgðir Stjórnvöld beita sér fyrir að fram fari úttekt á birgðum sauðfjár- afurða svo sem um samsetningu þeirra, líklegt verðmæti og eignar- hald. Slík úttekt er gerð í því skyni að fá fyllri upplýsingar um stöðuna á kjötmarkaði og meta líklegan ár- angur af þeim aðgerðum sem rík- ið og sauðfjárbændur hafa og munu sammælast um. Niðurstaða slíkrar athugunar leiðir ekki sjálfkrafa til inngripa á markaðinn. Það er sam- eiginlegur skilningur að æskilegt sé að ná jafnvægi á markaði til langs tíma. Áherslur til frekari útfærslu Aðstoð við bændur er hætta bú- skap: Þeim tilmælum verði beint til Framleiðnisjóð landbúnaðarins að útfæra sérstaka markáætlun til að aðstoða þá bændur sem hætta sauð- fjárbúskap til að takast á við ný verk- efni á búum sínum, svo sem umhverf- isverkefni. Kolefnisjöfnun og önnur um- hverfisverkefni: Bændur sem stjórn- völd hafa lýst áhuga sínum á verkefn- um á sviði kolefnisjöfnunar. Mark- miðið er að nýta krafta og þekkingu bænda til að vinna að markmiðum Íslands í loftslagsmálum og kolefnis- jafna íslenska sauðfjárrækt með sam- drætti í losun og aukinni bindingu með uppgræðslu, skógrækt, endur- heimt votlendis og öðrum aðgerðum. Haft verði samráð við stofnanir ríkis- ins á þessu sviði, líkt og Landgræðslu ríkisins og Skógræktina. Sameining nýsköpunarsjóða: Hafinn verði undirbúningur að end- urskipulagningu og eflingu nýsköp- unarumhverfis sjávarútvegs- og land- búnaðar. Þetta verði gert með því að skoða fýsileika þess að sameina Fram- leiðnisjóð landbúnaðarins og AVS (rannsóknarsjóðs um aukið verðmæti sjávarfangs) í öflugan matvælaþró- unarsjóð. Sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra mun skipa nefnd, m.a. með fulltrúum, BÍ og SFS til skila til- lögum um málið. Útflutningur: Stjórnvöld munu áfram beita sér fyrir aðgerðum sem miða að því að styðja við útflutning landbúnaðarafurða. Áhersla verður lögð á að efla nýsköpun og vöruþró- un til að mæta kröfum ólíkra mark- aða á alþjóðavísu og nýta betur þá viðskiptasamninga sem gerðir hafa verið. Tilmæli til nefndar um endur- skoðun búvörusamninga: Vegna aðgerða ríkisins til að mæta vanda sauðfjárbænda eru stjórnvöld og bændur sammála um að beita sér fyr- ir endurskoðun sauðfjárhluta búvöru- samninga fyrir 1. apríl 2018. Jafn- framt verði því beint til nefndarinn- ar að hún taki mið af þeim aðgerðum og áherslum sem lýst er hér að fram- an og kanni sérstaklega fýsileika þess að aftengja framleiðsluhvata eins og gæðastýringargreiðslur.“ mm Umsókninni fylgi starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar hvetur sveitar- félagið karla jafnt sem konur til þess að sækja um starfið. Upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Ólafsson, sviðsstjóri fjár- mála- og stjórnsýslusviðs í síma 433-7100. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsóknir á netfangið eirikur@borgarbyggd.is. Umsóknarfrestur er til 17. september nk. Borgarbyggð auglýsir laust til umsóknar starf innheimtufulltrúa Starfshlutfall er 100% og brýnt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst Verkefni og ábyrgðarsvið: Ábyrgð á útgáfu og útsendingu reikninga Umsjón með innheimtuaðgerðum og útsendingu innheimtubréfa Álagning fasteignagjalda Móttaka og símsvörun þegar þörf er á Almenn skrifstofustörf og tilfallandi verkefni Menntunar og hæfniskröfur: Stúdentspróf Reynsla sem nýtist í starfi Góð tölvukunnátta, þekking á Navision æskileg Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð Rík þjónustulund og lipurð í samskiptum Sterk íslenskukunnátta í ræðu og riti Ráðherra leggur til aðgerðir vegna erfiðleika í sauðfjárbúskap Tillögur ráðherra fela m.a. í sér að dregið verði úr framleiðslu dilkakjöts um 20%, kjaraskerðingu bænda mætt að hluta, stutt verði við sauðfjárbúskap á jaðar- svæðum og gerð úttekt á birgðum sauðfjárafurða og afurðastöðvakerfinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.