Skessuhorn


Skessuhorn - 06.09.2017, Qupperneq 11

Skessuhorn - 06.09.2017, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 2017 11 verða okkur út um fé til slátrunar. Við keyptum fé á fæti í Hvamms- sveit og rákum heim að Staðarfelli. En það var enginn í sveitinni til að slátra fyrir okkur svo við urðum að gera það sjálfar. Hilmar kunni til verka svo hann hafði umsjón með þessu og við, kennarar og nemend- ur, urðum að hjálpa til. Þetta var ekki partur af því sem við vorum að kenna í skólanum, en stundum þurfti bara að ganga í ýmis svona verk,“ segir Kristín. Heimsótti Staðarfell í sumar Í ár eru liðin 60 ár frá því fyrsti hópur Kristínar útskrifaðist frá Húsmæðraskólanum á Staðarfelli. Í tilefni þess ákvað útskriftarár- gangurinn að fara saman að Stað- arfelli og var Kristínu boðið með. „Aðrir kennarar sem voru á þessum tíma eru því miður forfallaðar svo ég fór ein með þeim. Við fórum að Staðarfelli núna í júlí og fengum að koma inn, fá okkur kaffi og ganga um skólahúsið. Það var gaman að sjá hversu lítið hefur breyst þarna, kannski fyrir utan að vefnaðarstof- an sem ég kenndi í er nú kapella,“ segir Kristín. „Ég hélt áfram að kenna og hef kennt alla tíð,“ segir Kristín að- spurð hvað hafi tekið við eftir að hún fór frá Staðarfelli. Tvö ár eru liðin frá því hún hætti eftir 58 ár við kennslu, þá 81 árs að aldri. „Ég hef kennt fólki á öllum aldri allt frá 9 til 90 ára,“ segir Kristín að lokum. arg Segja má að hinn sögufrægi staður, Staðarfell í Dölum, standi á tíma- mótum. Þar hefur undanfarin 37 ár verið rekið meðferðarheimili á veg- um Samtaka áhugafólks um áfengis- vandann (SÁÁ). Nú er fyrirhugað að færa þá starfsemi í nýtt hús sem er í byggingu í Vík á Kjalarnes og lýkur um leið starfsemi SÁÁ á Staðarfelli. Staðurinn á sér þó mjög langa sögu, en þar var húsmæðraskóli starfrækt- ur í nærri hálfa öld áður en meðferð- arheimilið var opnað. Þar á undan hafði sýslumaðurinn í Dalasýslu haft þar aðsetur. Skessuhorn náði tali af tveimur einstaklingum sem tengj- ast þeirri starfsemi sem síðast var á Staðarfelli. Annars vegar fyrrver- andi skólastjóra húsmæðraskólans og hins vegar þekktum tónlistarmann sem ber hlýjar tilfinningar til Staðar- fells. Þar hafi hann tekist á við sjúk- dóm sinn. Upphaf húsmæðra- skólans á Staðarfelli Blaðamaður Skessuhorns settist nið- ur með Kristínu Guðmundsdóttur, fyrrum skólastjóra húsmæðraskól- ans, og ræddi við hana um Staðarfell og tíma hennar þar. „Það var mikill harmur sem lá að baki stofnun hús- mæðraskólans. Þannig var að hjón- in Herdís og Brynjólfur Benedikt- sen eignuðust 14 börn en aðeins eitt þeirra lifði til fullorðinsára; Ingi- leif Benediktsen. Segja má að fjöl- skyldusaga þeirra marki upphafið af stofnun húsmæðraskólans. Ingileif lést upp úr tvítugu og skömmu síð- ar Brynjólfur faðir hennar. Ekkjan Herdís ákvað að eftir hennar and- lát myndi stærsti hluti eigna henn- ar renna í sjóð til stofnunar kvenna- skóla á Vesturlandi til minningar um hana sjálfa og Ingileif,“ rifjar Krist- ín upp. Hún bætir því við að lang- an tíma hafi tekið að finna skólanum stað. „Hjónin Magnús Friðriksson og Soffía Gestsdóttir keyptu Stað- arfell árið 1903 en árið 1920 misstu þau einkason sinn í sjóslysi þeg- ar hann, ásamt fóstursyni Magnús- ar og Soffíu og tveimur vinnuhjúum á bænum, voru að koma frá Hjal- leyjum á hlöðnum báti sem hvolfdi. Ári síðar fluttu Magnús og Soffía frá Staðarfelli og til að heiðra minningu sonar þeirra og fóstursonar gáfu þau jörðina Staðarfell svo hægt væri að byggja þar kvennaskóla með stuðn- ingi sjóðsins sem Herdís hafði skilið eftir sig,“ segir Kristín. Skólastjóri 22 ára gömul Kristín var aðeins 22 ára þegar hún tók við stöðu skólastjóra á Staðarfelli árið 1956. „Það var aldrei ætlunin að fara á Staðarfell að kenna, hvað þá að gerast þar skólastjóri,“ segir Kristín og brosir við endurminninguna. „Ég var í Danmörku á þessum tíma, að ljúka námi í vefnaðarkennslu, þegar ég fékk bréf frá Pétri Tyrfingi Odds- syni prófasti í Dalasýslu þar sem ég var beðin um að taka að mér starf skólastjóra og vefnaðarkennara. Ég las bréfið margoft yfir áður en ég skildi það almennilega. Ég gat alveg skilið að mér væri boðið starf vefnað- arkennara, en ekki skólastjóra,“ bætir Kristín við. Þegar aðeins fjórar vikur voru liðnar frá heimkomu Kristínar frá Danmörku hófst fyrsta árið henn- ar af sex sem skólastjóri á Staðarfelli. „Við vorum þrjár að kenna sam- an, allar mjög ungar. Þær sem voru með mér voru 21 og 26 ára, svo ekki var aldurinn okkur að meini,“ bætir Kristín við og hlær. Fann ástina á Staðarfelli Kristín minnist áranna á Staðarfelli með mikilli hlýju. „Þarna var aðeins gott fólk og allir alltaf boðnir og bún- ir að rétt fram hjálparhönd ef þess þurfti. Ein þeirra var Steinunn Þor- geirsdóttir á Breiðabólsstað. Hún var yndisleg kona sem fylgdi húsmæðra- skólanum alla tíð,“ segir Kristín. „Þess má líka geta að Steinunn stóð á tröppunum þegar húsmæðraskólinn var fyrst opnaður. Þar var hún einnig þegar skólanum var lokað og svo enn á ný þegar SÁÁ hóf starfsemi sína þar og tók hún alltaf vel á móti öllum,“ bætir hún við. Kristín fann ástina á Staðarfelli þegar hún kynntist Hilmari Jóns- syni frá Hallsstöðum í Dölum. „Raf- magnið á Staðarfelli var knúið áfram með dísilmótorum sem Hilmar sá um og þannig kynntumst við,“ segir Kristín og bætir því við að þau hafi gift sig tveimur árum áður en þau fóru frá Staðarfelli og fluttu í Kópa- vog. „Það var mjög frumstætt að hafa ekki rafmagn á kvöldin og næturnar en maður vandist þessu. Þetta hafði engin áhrif á kennsluna og við gátum enn kennt stelpunum að ná mjólk í mat og ull í fat, eins og sagt var þá,“ segir Kristín og hlær. Sláturtíð á Staðarfelli Aðspurð hvað sé eftirminnilegast frá árunum á Staðarfelli segir Kristín að allur tíminn þar hafi verið mjög eftir- minnilegur. „Það er þó eitt sem gam- an er að segja frá, en stundum fóru hlutirnir nefnilega ekki alveg eins og þeir áttu að fara. Eitt árið þurfti að skera niður allt fé á Fellsströnd vegna sauðfjárveiki sem kom upp. Þeg- ar kom að slátrun fóru því allir sem eitthvað kunnu til verka í slátrun út í Stykkishólm að vinna. Við vorum venjulega með 15 fjár á fóðrum hjá bóndanum á Staðarfelli en þetta ár vorum við án fjár. Við þurftum að Tímamót á Staðarfelli Húsmæðraskólanum á Staðarfelli var lokað árið 1976 og fjórum árum síðar, árið 1980 fékk SÁÁ afnot af húsakosti. Eins og fram hefur komið á nú að loka þeirri starfsemi sem þar hefur verið í 37 ár. Á þessum tíma hafa marg- ir komið og tekist á við sjúk- dóm sem því miður alltof marg- ir kljást við. Einn þeirra er lands- þekktur söngvari, lagasmiður og ljóðskáld; Ásbjörn Morthens, eða Bubbi eins og flestir þekkja hann. Blaðamaður sló á þráð- inn til Bubba og spurði hann út í tímann á Staðarfelli. „Þarna svíf- ur haförninn um eyjarnar og það er gríðarlega fallegt um að litast. En það sem á sér stað á Staðar- felli er ekkert gamanmál og hús- ið sjálft er búið miklum harmi,“ segir Bubbi og bætir því við að þarna komi menn aðeins niður- beygðir og brotnir á sál og líkama, en með veika von um betra líf. Er mjög hlýtt til Staðarfells Aðspurður hvernig dvölin hafi ver- ið á Staðarfelli segist hann ekki hafa neitt nema jákvætt um hana að segja. „Það myndast ákveðin samkennd meðal þeirra sem þarna dvelja, eins og oft vill verða á svona stöðum þar sem fólk þarf að þreyja þorrann saman. Þó staðurinn sé búinn þessum harmi hef ég ekk- ert nema gott um hann að segja því þarna fékk ég tækifæri til að takast á við sjúkdóminn sem ég hef ver- ið að glíma við í gegnum lífið. Mér er mjög hlýtt til Staðarfells,“ segir Bubbi. „Þarna var bara fallegt og gott fólk, bæði heimamenn og þeir sem þangað komu. Það er mjög sérstakt sem fólk gengur í gegn- um saman á svona stað. Ég eign- aðist marga kunningja og þegar ég hitti þá í dag er eins og við höf- um verið í sjávarháska saman. Mér er mjög hlýtt til þeirra allra í dag,“ bætir Bubbi við. Þó hann hafi aðeins hlýjar tilfinn- ingar til Staðarfells telur Bubbi það mjög jákvætt að nú eigi að færa starfsemina á Kjalarnesið. „Það er bara jákvætt að nú sé búið að byggja stóra og góða aðstöðu fyr- ir starfsemina í Vík og ég er full- viss um að Staðarfells bíður bara nýtt hlutverk í framtíðinni,“ seg- ir Bubbi að endingu. arg Meðferðarheimili á Staðarfelli Staðarfell stendur á tímamótum nú þegar loka á meðferðarheimilinu sem þar hefur verið starfrækt í 37 ár. Bubbi Morthens er einn þeirra sem hefur dvalið á meðferðarheimilinu á Staðarfelli. Kristín Guðmundsdóttir fyrrum skólastjóri Hús- mæðraskólans á Staðar- felli á fallegu heimili sínu í Kópavoginum. Á Staðarfelli fer fram endurhæfing og meðferð sjúklinga sem koma frá Sjúkrahúsinu Vogi. Þar er rúm fyrir allt að 30 sjúklinga. Staðarfell er kirkjustaður á Fellsströnd. Bærinn stendur undir snarbröttum kletta- hlíðum samnefnds fjalls. Ystafellsmúli er einhver besti útsýnisstaður héraðsins. Ljósm. Mats Wibe Lund.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.