Skessuhorn - 06.09.2017, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 201720
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Leiguakstur á Akranesi sem og á öllu Vesturlandi
Ari Grétar Björnsson
Sími: 864-2100
Email : taxar@simnet.is
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
www.skessuhorn.is
Pennagrein
Skólar landsins hafa nú opnað dyr
sínar að nýju eftir sumarhlé. Um-
ræða um skóla- og menntamál er
því mikil um þessar mundir og
það er eðlilegt því þetta er mál-
efni sem snertir okkur öll, hvar
sem við búum á landinu. Rætt er
um gildi skólastarfsins, lengd og
fyrirkomulag, innihald og gæði
menntunar og ófullnægjandi kjör
kennara, kostnað nemenda og líð-
an þeirra í skólanum svo fátt eitt
sé nefnt. Námslán, námsaðstoð og
viðmót gagnvart námi er einn angi
umræðunnar.
Það er tæplega ágreiningur um
að aukin þekking og menntun í
hvaða mynd sem er leiði til víð-
sýni og umburðarlyndis, efli og
bæti samfélög. Á Íslandi hafa við-
horfin til fyrirgreiðslu við náms-
fólk þróast með öðrum hætti en í
nágrannalöndum. Síðasta aldar-
fjórðunginn hefur löggjafinn horft
á fjárhagslega námsaðstoð í meg-
inatriðum sem hefðbundin lán
sem greiðast skuli til baka að fullu,
verðtryggð. Ég heyrði nýlegt og
raunverulegt dæmi um einstakling
sem innir af hendi um 660 þúsund
króna heildargreiðslur af námsláni
sínu á þessu ári eftir 21 ár í náms-
lánagreiðslum og enn standa eftir
tæplega 8 milljónir króna. Ef þess-
um einstaklingi endist aldur og
greiðslugeta, þá lýkur hann náms-
láagreiðslum þegar hann nær átt-
ræðisaldri, 13 árum eftir almenna
eftirlaunatöku. Að þessu leyti
skiljum við Íslendingar okkur al-
gjörlega frá öðrum Norðurlönd-
um. Þetta er til vansa fyrir þjóð
sem byggir æ meira á þekkingar-
leit og menntun og á þar allt undir
ekki síður en önnur lönd.
Samfylkingin hefur ítrekað lagt
fram frumvarp til laga um sann-
gjarnar lagfæringar á núverandi
lögum um námslán, síðast á ný-
liðnu þingi. Þær lúta að tveimur
þáttum. Annars vegar, að skuld-
bindingar ábyrgðarmanna á eldri
lánum falli niður þegar viðkom-
andi nær 67 ára aldri eða við fráfall
hans. Dæmi eru um það í núgild-
andi lögum að háaldrað fólk og/
eða aðstandendur verði fyrir veru-
legum búsifjum vegna ábyrgða.
Ákvæðin ganga út yfir gröf og
dauða og afkomendur standa jafn-
vel andspænis óvæntum og órétt-
látum skuldbindingum. Hin breyt-
ingin er sú að námslán falli niður
á því ári sem skuldari nær 67 ára
aldri. Með því er verið að nálgast
viðmót Norðurlandaþjóðanna þar
sem endurgreiðslutíminn er mun
styttri eða jafnan um 15 – 20 ár.
Þar eru reyndar styrkir verulegur
hluti námsaðstoðarinnar.
Í fyrravor var lagt fyrir Alþingi
frumvarp um námslán og náms-
styrki sem ekki náði fram að ganga
þar sem ágreiningur var um mik-
ilvæg atriði. Efnislega hneig þó
frumvarpið í þá átt sem ásættan-
legt getur talist en verulega galla
þarf að sníða burt. Ef hin dáðlausa
ríkisstjórn sem nú situr við völd
hugsar sér ekki til hreyfings varð-
andi ný lög um námslán og náms-
styrki strax á næsta þingi mun
Samfylkingin endurflytja frumvarp
sitt enn einu sinni í þeirri viðleitni
að knýja fram sanngjarna réttarbót
fyrir námsfólk og ábyrgðarmenn
eldri lána.
Guðjón S. Brjánsson,
alþingismaður
Námslán -
eilífðar fylginautur
Það var stuð og stemning á Rakara-
stofu Gísla við Stekkjarholt á Akra-
nesi síðastliðinn föstudag þegar fagn-
að var tíu ára afmæli stofunnar. Gísli
Guðmundsson hárskeri hefur haldið
á skærunum í 27 ár, en tíu ár eru lið-
in frá því hann hóf starfsemi á Akra-
nesi. Í tilefni dagsins ákvað Gísli að
öll innkoma þennan dag rynni óskipt
til stuðnings krabbameinssjúkum
börnum. Þessu tóku viðskiptavin-
ir vel og ýmsir komu með afmælis-
pening sérstaklega af þessu tilefni og
lögðu til söfnunarinnar, greiddu ríf-
lega fyrir klippinguna eða borguðu
fyrir kaffibollann, sem aðra daga er í
boði hússins. Þeir sem það vildu gátu
auk þess pantað að hárskerinn tæki
lagið og greiddu þrjú þúsund fyrir
lagið. „Ég hef einfalt prógramm sem
hægt er að velja úr. Í dag spila ég ým-
ist Stál og hnífur, Fatlað fól, Traust-
ur vinur eða Hjálpaðu mér upp,“
sagði Gísli. Aðspurður hvort menn
hefðu einnig val um að borga fyrir
að hann spilaði ekki, sagði hann að
einn viðskiptavinurinn hefði vissu-
lega látið þess getið.
Auk þess sem safnaðist á stofunni á
afmælisdaginn bætti Gísli við hundr-
að þúsund krónum og var allt söfn-
unarféð afhent óskipt til stuðnings-
félags krabbameinssjúkra barna síð-
astliðinn mánudag. Upphæðin þegar
upp var staðið var 328.650 krónur.
„Ég er ánægður með að halda svona
upp á daginn og ánægjulegt hvað
viðskiptavinir mínir tóku þessu vel,“
sagði hinn síhressi rakari að endingu.
mm
Klippt í þágu krabbameinssjúkra
barna á afmæli stofunnar
Gísli klippir hér Andra Júlíusson kaupmann í Ozone. Við hlið þeirra er Arnþór Helgi
Gíslason sérlegur aðstoðarmaður á rakarastofunni hjá föður sínum.
Bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi hefur
endurútgefið hina áhrifaríku kennslubók;
Gagn og gaman. Með því að stauta sig í
gegnum bókina lærðu þúsundir Íslend-
inga lestur og á hún því sterk tök í huga
margra sem komnir eru til vits og ára.
Bókin var nær einráð við lestrarkennslu
yngstu barna í hálfa öld. Hún byggð-
ist á hljóðaðferð við lestrarkennslu sem
með þessari bók var innleidd í íslenskum
skólum. Talið er að um 200 þúsund ein-
tök hafi verið prentuð af fyrra hefti bók-
arinnar en síðast var það prentað 1985.
Bækurnar hafa verið ófáanlegar um ára-
tugaskeið.
Gagn og gaman kom fyrst út haustið
1933 og þá í einu hefti. Bókin var sam-
vinnuverkefni Ísaks Jónssonar og Helga
Elíassonar sem fengu Tryggva Magn-
ússon listmálara til að gera teikningar.
Bókin var þá enn í mótun og við endur-
skoðun hennar árið 1941 var henni skipt
í tvö hefti. „Með nýrri og breyttri út-
gáfu árið 1955 var fyrra heftið prentað í
lit. Var það fyrsta skyldunámsbók lands-
manna sem var litprentuð. Þórdís dótt-
ir Tryggva teiknaði nýjar myndir við þá
kafla sem bætt var við. Seinna heftið var
litprentað 1959. Var verkið þá komið í
endanlega gerð. mm
Gagn og gaman
endurútgefið
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness