Fréttablaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 37
L AU G A R DAG U R 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 Fréttablað Rauða krossins
Rauði krossinn | fánamerki
Hjálpin
Blæðingaheilbrigði (e. Menstrual Hygiene Management) er notað yfir ýmsar athafnir
og aðgerðir sem tryggja að stelpur
og konur hafi næði, aðstæður og
efni til að geta á öruggan og heil
brigðan hátt tekist mánaðarlega á
við blæðingar sínar af sjálfstrausti
og reisn, útskýrir Guðný.
Eitt af því sem er óhjákvæmileg
ur fylgikvilli blæðinga er þörfin á
túrvörum en það er f leira sem þarf
að taka inn í myndina. „Að vinna
að blæðingaheilbrigði snýr ekki
einungis að því að tryggja aðgengi
að dömubindum og slíku heldur er
samhengið mun víðara, enda þarf
að huga að mörgu.“
Blæðingum fylgja ýmsar athafn
ir sem krefjast næðis og hreinlætis.
„Það þarf einnig að tryggja aðgengi
að viðeigandi hreinlætisaðstöðu,
það þarf að huga að hvar hægt sé
að henda notuðum bindum og
töppum eða hvar og hvort sé hægt
að þvo og þurrka margnota bindi
og slíkt,“ segir Sólrún.
Þá er mikil þörf á að fræða konur
og sjá til þess að þær hafi greiðan
aðgang að upplýsingum er varða
blæðingaheilbrigði. Á sama tíma
þarf að gæta þess að tillit sé tekið
til menningarlegs samhengis á
ólíkum svæðum. „Auk þess skortir
mjög oft mikið upp á fræðslu
og aðgengi að upplýsingum um
blæðingar og tengd málefni. Þegar
við vinnum að blæðingaheil
brigði þurfum við alltaf að huga
að menningu og siðum á hverjum
stað, hverjar eru þarfirnar og hvað
er viðeigandi.“
Byrði blæðingaskammar
finnst víða um heim
„Mörg þekkjum við blæðinga
skömm að einhverju leyti,“ segir
Guðný. „Við felum kannski túr
Blóðug og blygðunarlaus
barátta gegn blæðingaskömm
Þær Guðný Nielsen og Sólrún María Ólafsdóttir, verkefnastjórar á hjálpar- og mannúðarsviði
Rauða krossins á Íslandi, segja brýnt að berjast gegn blæðingaskömm. Málefnið er margþætt og
geta afleiðingarnar ógnað bæði lífi og heilsu fjölda stúlkna og kvenna út um allan heim.
Sólrún María Ólafsdóttir og Guðný Nielsen, verkefnastjórar hjá Rauða krossi Íslands, segja blæðingaskömm geta haft hræðilegar afleiðingar fyrir stúlkur og konur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Framhald á síðu 2 ➛