Fréttablaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 40
Ísabella, eins og hún er venjulega nefnd, segir að sig hafi langað til að gera eitthvað meðfram náminu. „Ég var búin að heyra af sjálf boðaliðastarfinu hjá Rauða krossinum og mig hefur alltaf langað að vinna í verslun sem selur notuð föt þannig að þetta var kjörið tækifæri til að láta gott af sér leiða. Þess utan finnst mér frá­ bært að endurnýta fatnað,“ segir hún. Ísabella hefur aldrei áður starfað í verslun af þessu tagi og segir að þetta sé ný og ánægjuleg reynsla. „Ég starfa um helgar í Rauða­ krossbúðinni að Laugavegi 12 og þangað kemur alls kyns fólk, yngra og eldra, jafnt Íslendingar sem erlendir ferðamenn. Það er mjög gaman að kynnast þessari fjölbreyttu mannflóru sem kemur í búðina. Í rauninni hefur komið mér á óvart hversu mikið er að gera og fólk er að gera frábær kaup. Í Rauðakrossbúðunum eru mjög flottir hlutir í boði á einstaklega góðu verði,“ segir Ísabella og bætir við að fólk ætti að gefa sér góðan tíma í búðinni til að skoða vöru­ úrvalið almennilega því margt fallegt og vandað leynist þar. „Sumir eru mjög sniðugir að finna gersemar,“ segir hún. Sjálf segist Ísabella kaupa mikið í Rauðakrossbúðunum. „Þetta eru þær verslanir sem ég kaupi mest í. Ég hef keypt fallegar peysur og góðar Levi’s 501 buxur. Svo eru margir dásamlegir fylgihlutir eins og töskur og silkiklútar sem ég hef fallið fyrir auk yfirhafna sem eru margar mjög flottar. Ég sjálf (@gudrunisabella) fylgist oft með Rauða krossbúðunum á Insta­ gram­síðunni þeirra @raudakross­ budirnar en þar birta þau oft hvað þau eru að fá í búðirnar og það er svo gaman að fylgjast með.“ Ísabella segist stundum vera hissa á því hvað fólk er að gefa frá sér en bætir við að það geti verið margvíslegar ástæður að baki. „Kannski er f líkin orðin of lítil eða of stór, jafnvel hefur eigandinn bara orðið leiður á henni og langað að gefa henni nýtt heimili. Þá kemur það öðrum til góða. Margt af þessu eru gersemar fyrir þann sem kaupir og styður um leið gott málefni.“ Ísabella segir að Rauði krossinn flokki fatnaðinn eftir verslunum. Til dæmis fari merkjavörur mest í verslunina á Skólavörðustíg, vand­ aðar ullarpeysur komi á Laugaveg­ inn ásamt alls kyns öðrum fatnaði og á Hlemmi er mesta úrvalið af barnafötum. „Það er ótrúlega skemmtilegt að vinna sem sjálf­ boðaliði og ein besta ákvörðun sem ég hef tekið. Þetta er gefandi og ánægjuleg sjálf boðaliðavinna og ég er búin að kynnast fullt af fólki. Síðan má ekki gleyma hversu gaman það er að skoða þessi gömlu föt. Sjálf er ég ekki búin að versla hraða tísku í meira en ár. Við þurfum ekki alltaf að kaupa nýtt. Kaupum frekar notað, verum góð við jörðina og látum gott af okkur leiða.“ Margar gersemar leynast í Rauðakrossbúðunum Guðrún Ísabella Kjartansdóttir, nemi í umhverfis- og byggingaverkfræði við Háskóla Íslands, gerðist sjálfboðaliði Rauða krossins í sumar. Hún starfar í Rauðakrossbúð á Laugaveginum. Jóhanna Guðmundsdóttir, verk efna stjóri fjáröflunar hjá Rauða krossinum, segir Mannvini mjög mikilvæga til að hægt sé að halda úti því öfluga starfi sem Rauði krossinn vinnur bæði hér heima og erlendis. „Rauði krossinn hefur alltaf verið með styrktaraðila en Mannvinir, í því formi sem þeir eru í dag, byrjuðu árið 2010. Mannvinir eru sérstakir að því leyti að helmingur styrksins fer til verkefna erlendis og helm­ ingurinn nýtist innanlands en oft eru félög bara að styrkja verkefni annaðhvort hér heima eða úti,“ segir Jóhanna. Verkefnin sem Mannvinir styrkja innanlands eru meðal annars Hjálparsími Rauða kross­ ins 1717, sem er opinn alla daga allan ársins hring, og neyðarvarn­ ir. „Neyðarvarnir eru til dæmis ef upp kemur náttúruvá eða annað slíkt. Við erum með sérþjálfaða sjálf boðaliða til að bregðast við í slíkum aðstæðum en þá þarf oft að opna fjöldahjálparstöðvar og veita stuðning á staðnum. Útköll í sálrænum stuðningi hafa líka aukist, en það er til dæmis ef það verða slys og fólk er líkamlega í lagi en þarf andlegan stuðning,“ segir Jóhanna. „Verkefnin sem Rauði krossinn styður erlendis eru í anda þess sem Rauði krossinn á Íslandi leggur áherslu á. Við leggjum áherslu á jafnrétti kynjanna og sérstaklega á átaka­ og hamfarasvæðum. Það þarf til dæmis að huga að því að komið sé til móts við hreinlætis­ þarfir kvenna út af blæðingum og annað,“ segir Jóhanna. „Í augna­ blikinu er áherslan á konur og börn í Sómalíu og Malaví. Við styðjum konur og börn í neyð, styðjum við flóttafólk í Úganda og svo sendifulltrúa í hjálparstarfi erlendis. Jóhanna segir að í Malaví sé stuðningurinn fyrst og fremst við ungbarnaeftirlit og mæðravernd. „Við höfum líka stutt stúlkur með því að byggja vatnsbrunna. Það eru oftast stúlkur sem sækja vatnið og með því að byggja fleiri brunna og koma upp salernisað­ stöðu aukum við líkurnar á því að þær fari í skóla.“ Rauðinn krossinn á Íslandi hefur lengi stutt við flóttafólk í Úganda, meðal annars með því að aðstoða Rauða krossinn í Úganda við að byggja upp möguleikann á því að veita sálrænan stuðning. „Mannvinir eru mjög mikilvægir fyrir okkur. Þetta er styrkur sem skiptir gífurlega miklu máli til að geta haldið úti hjálparstarfi. Þetta er óeyrnamerktur stuðningur svo við getum sett peninginn þangað sem þörfin er mest. Segjum sem svo að það fari að gjósa þá er hægt að nýta fjármagnið sem fer í verkefni innanlands og leggja meiri pening í neyðarvarnir. Eins ef það yrði aðkallandi neyð erlendis, þá höfum við svigrúm til að nýta þann helming sem nýttur er erlendis til að aðstoða þar sem neyðin er stærst. Í dag er til dæmis mjög slæmt ástand í Sýrlandi og við getum nýtt framlög Mannvina til að bæta aðstæður kvenna og barna þar,“ segir Jóhanna. Hægt er að gerast Mannvinur með því að skrá sig á mannvinir. is eða hringja í síma 570 4000. „Fólki er í sjálfsvald sett hvað það vill greiða, en flestir eru að greiða svona um 2.500 á mánuði,“ segir Jóhanna. „Því fylgir engin skuld­ binding að vera Mannvinur þetta er bara frjálst framlag meðan fólk hefur vilja og getu til.“ Mikilvægur styrkur fyrir hjálparstarfið Mannvinir Rauða krossins styrkja starf Rauða krossins með mánaðarlegum framlögum. Um 14.000 Íslendingar hafa gerst Mannvinir og leggja sitt af mörkum til að aðstoða fólk í neyð. Ísabella segir að sér finnist ótrúlega gaman að versla í Rauða- krossbúðun- um og þar sé margt fallegt að finna. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Rauðakrossbúðirnar eru 13 talsins um allt land þar sem seld eru notuð föt og skór á afar góðu verði. Með því að versla í Rauðakrossbúðunum eru tvær flugur slegnar í einu höggi; gott málefni styrkt og hugað að umhverfinu þar sem föt ganga í endurnýjun lífdaga. Sjálfboða- liðar standa vaktina í búðunum. Þú getur gerst sjálfboðaliði á raudikrossinn.is Jóhanna segir að Mannvinir séu mikilvægir fyrir Rauða krossinn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Mannvinir eru mjög mikilvægir fyrir okkur. Þetta er styrkur sem skiptir miklu máli til að geta haldið úti hjálparstarfi. 4 HJÁLPIN FRÉTTABLAÐ RAUÐA KROSSINS 1 9 . O K TÓ B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.