Fréttablaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 19.10.2019, Blaðsíða 20
Auðvitað er smá þreyta eftir 21 árs atvinnumannsferil þar sem allt hefur snúist um golf en þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegur tími. Birgir Leifur Hafþórsson GOLF Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Haf þórsson settist á skóla- bekk í haust eftir sérstakt tímabil á Áskorendamótaröð Evrópu þar sem hann spilaði í þremur mótum á árinu. Skagamaðurinn segist vera í toppstandi og var hissa á fáum tækifærum í sumar sem leiddi til þess að hann skráði sig í nám. Besti árangur tímabilsins hjá Birgi var 31. sæti á Bretagne-mótinu í Frakk- landi, sama móti og hann vann fyrir tveimur árum, en í hinum tveimur mótunum náði Birgir ekki niður- skurði. „Þetta er búið að vera sérstakt ár, ég átti von á því komast í mun fleiri mót, ég tók þátt í þremur mótum en var búinn að gera ráð fyrir að komast inn í 15 mót. Ég var vel undirbúinn og í toppstandi og var að spila gott golf. Þetta getur breyst svo hratt, eftir að hafa spilað vel síðustu tvö, verið með þátttökurétt á European Tour og Challenge Tour og unnið mót á Challenge Tour og komast svo aðeins inn í þrjú mót. Þetta er harður heimur og það er ekkert öruggt í þessu,“ segir Birgir Leifur í samtali við Fréttablaðið. „Ég tók þá ákvörðun að skrá mig ekki í úrtökumótin í haust, það hafði blundað í mér að fara í nám og þegar ég komst inn í MBA-námið þá ákvað ég að núna væri mögulega rétti tíminn til þess að breyta til og víkka sjóndeildarhringinn. Ég hlakka til að læra nýja hluti og tak- ast á við nýjar áskoranir sem eiga án efa eftir að styrkja mig í starfi og hjálpa mér að ná nýjum mark- miðum,“ segir kylfingurinn. „Ég er menntaður PGA-kenn- ari og starfa sem íþróttastjóri hjá Leyni samhliða náminu og finnst það mjög skemmtilegt og gefandi. Mér finnst einstaklega gaman að vinna með ungum og upprenn- andi kylfingum, einnig öllum þeim kylfingum sem vilja bæta sig. Mér finnst fátt meira gefandi en að miðla reynslu minni og ég hef verið svo heppinn að fá að vera í kringum marga af okkar bestu kylfingum í dag. Golfíþróttin verður vonandi alltaf hluti af lífi mínu.“ Aðspurður útilokar Birgir ekki að taka þátt í móti á næsta ári fái hann boð í mót á Áskorendamótaröðinni. „Ég er ekki tilbúinn að gefa það út að ég sé hættur og kylfurnar séu á leiðinni upp í hillu, alls ekki. Golf er nú þannig að það er alltaf hægt að fara af stað á ný. Hver veit nema ég skrái mig aftur í úrtökumót. Ég hef alltaf haft það á bak við eyrað að vera í toppformi fyrir Senior-móta- röðina þegar kemur að því,“ segir Birgir Leifur glottandi um mótaröð ætlaða kylfingum yfir fimmtugu sem er hluti af af European Tour og Challenge Tour mótaröðunum. Það eru komið rúmt 21 ár síðan Birgir Leifur lék á sínu fyrsta móti á Áskorendamótaröðinni, næststerk- ustu mótaröð Evrópu. Birgir varð fyrsti atvinnukylfingur Íslendinga og á að baki 68 mót á Evrópumóta- röðinni, sterkustu mótaröð Evrópu og 157 mót á Challenge Tour, næst- sterkustu mótaröð Evrópu. „Auðvitað er smá þreyta eftir 21 árs atvinnumannsferil þar sem allt hefur snúist um golf en þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegur tími. Núna eru nýjar áskoranir og tæki- færi og ég er mjög spenntur að sjá hvað lífið hefur upp á að bjóða, hver veit, kannski bara eitthvað annað en golf.“ Tveir Íslendingar, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús, hafa þegar tryggt sér þátttökurétt á Áskorendamóta- röðinni fyrir næsta tímabil. Þá eru Guðmundur, Haraldur og Andri Þór Björnsson úr GR, Bjarki Pétursson úr GKB og Rúnar Arnórsson úr GK allir komnir á annað stig úrtöku- mótsins fyrir Evrópumótaröðina. Þeir freista þess að komast inn á lokastig úrtökumótsins á Spáni í næsta mánuði. Með því að komast á lokastig úrtökumótsins fyrir Evr- ópumótaröðina öðlast kylfingar þátttökurétt á Áskorendamóta- röðinni og gætu Andri, Bjarki eða Rúnar því bæst í hóp Íslendinga á Áskorendamótaröðinni á næsta ári. „Það er frábært að sjá svona marga kylfinga frá Íslandi tilbúna að fara út og taka stökkið. Það er langt síðan maður var í þessum sporum. Ég var mikið einn að ryðja veginn, ég hef gert alls konar mis- tök og það eru líka fullt af sigrum að baki á þessum árum. Ég komst á Evróputúrinn og spilaði hátt í 70 mót þar og ég er rosalega stoltur af ferli mínum,“ segir Birgir Leifur sem var fyrirmynd fyrir bestu kylfinga landsins í dag og hjálpaði þeim oft á leið þeirra í atvinnumennskuna. „Ég hef alltaf reynt að miðla reynslu minni eftir bestu getu til allra þeirra sem hafa leitað til mín. Ég myndi vilja gera svo miklu meira af því og fá að vera þátttakandi í áframhaldandi uppbyggingu golfs á Íslandi. Það er gaman og gefur mér mikið að sjá mörg af þeim sem hafa leitað til mín vera í fremstu röð í dag. Það er jákvætt að sjá hvað margir eru að reyna við atvinnumennsk- una í dag enda gott að hafa sam- keppni og leikmenn drífa hver annan áfram. Auðvitað væri ég mikið til í að vera ungur og hungr- aður núna með svona samkeppni.“ segir Birgir og tekur undir orð blaðamanns að Guðmundur og Haraldur virtust vera tilbúnir fyrir Áskorendamótaröðina. „Guðmundur og Haraldur eru báðir á góðri leið og það er gaman að sjá þá mótast, þeir vita að þetta er hægt. Það er núna þeirra og f leiri að taka við kef linu og fara með það enn lengra, sýna komandi kynslóðum að það sé hægt að fara enn lengra. En á sama tíma þarf umgjörðin að halda í við þessa frá- bæru framþróun sem hefur átt sér stað síðustu 20 árin. Það var sér- staklega gaman að hafa tekið þátt í því að koma á laggirnar Forskoti, afrekssjóði kylfinga sem saman stendur af frábærum fyrirtækjum. Án þeirra aðkomu væri íslenskt golf ekki á þeim stað sem það er á í dag og mikilvægt að þessi sjóður lifi áfram.“ Að lokum spyr undirritaður Birgi Leif út í fjarveruna frá Íslandsmót- inu í golfi undanfarin þrjú ár. Birgir bætti met Úlfs Jónssonar og Björg- vins Þorsteinssonar þegar hann varð Íslandsmeistari í sjöunda sinn á ferlinum árið 2016 en hefur ekki tekið þátt síðustu ár. „Ég tók ákvörðun um að taka mér frí eftir Íslandsmótið 2016 þegar ég náði metinu. Ég þurfti að finna mér ný markmið. Það getur verið erfitt að vera í móti þegar maður er ekki með skýrt markmið. Ég er líka með svo gott vinningshlutfall í Íslands- mótinu sem er algjör óþarfi að vera að eyðileggja það, 14 mót og sjö sigrar. Ég kaus í staðinn að taka kær- komið frí með fjölskyldunni.” kristinnpall@frettabladid.is Nýjar áskoranir fram undan hjá Birgi Sigursælasti kylfingur Íslands, Birgir Leifur Hafþórsson, segir óvíst hvað framtíðin ber í skauti með sér en hann hóf nýlega MBA- nám. Hann útilokar ekki að reyna aftur að komast í atvinnumennskuna en einbeitir sér nú að námi og þjálfun yngri kylfinga. Birgir Leifur var einnig í liði Íslands á Evrópumóti atvinnukylfinga sem vann til gullverðlauna í Skotlandi síðasta sumar. NORDICPHOTOS/GETTY Birgir með sjöunda Íslandsmeistaratitilinn árið 2016. MYND/GSÍMYNDIR.NET BÍLAMERKINGAR Vel merktur bíll er ódýrasta auglýsingin Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is „ 1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.