Fréttablaðið - 19.10.2019, Page 20
Auðvitað er smá
þreyta eftir 21 árs
atvinnumannsferil þar sem
allt hefur snúist um golf en
þetta hefur verið ótrúlega
skemmtilegur tími.
Birgir Leifur Hafþórsson
GOLF Atvinnukylfingurinn Birgir
Leifur Haf þórsson settist á skóla-
bekk í haust eftir sérstakt tímabil
á Áskorendamótaröð Evrópu þar
sem hann spilaði í þremur mótum
á árinu. Skagamaðurinn segist vera
í toppstandi og var hissa á fáum
tækifærum í sumar sem leiddi til
þess að hann skráði sig í nám. Besti
árangur tímabilsins hjá Birgi var
31. sæti á Bretagne-mótinu í Frakk-
landi, sama móti og hann vann fyrir
tveimur árum, en í hinum tveimur
mótunum náði Birgir ekki niður-
skurði.
„Þetta er búið að vera sérstakt ár,
ég átti von á því komast í mun fleiri
mót, ég tók þátt í þremur mótum
en var búinn að gera ráð fyrir að
komast inn í 15 mót. Ég var vel
undirbúinn og í toppstandi og var
að spila gott golf. Þetta getur breyst
svo hratt, eftir að hafa spilað vel
síðustu tvö, verið með þátttökurétt
á European Tour og Challenge Tour
og unnið mót á Challenge Tour og
komast svo aðeins inn í þrjú mót.
Þetta er harður heimur og það er
ekkert öruggt í þessu,“ segir Birgir
Leifur í samtali við Fréttablaðið.
„Ég tók þá ákvörðun að skrá mig
ekki í úrtökumótin í haust, það
hafði blundað í mér að fara í nám
og þegar ég komst inn í MBA-námið
þá ákvað ég að núna væri mögulega
rétti tíminn til þess að breyta til
og víkka sjóndeildarhringinn. Ég
hlakka til að læra nýja hluti og tak-
ast á við nýjar áskoranir sem eiga
án efa eftir að styrkja mig í starfi
og hjálpa mér að ná nýjum mark-
miðum,“ segir kylfingurinn.
„Ég er menntaður PGA-kenn-
ari og starfa sem íþróttastjóri hjá
Leyni samhliða náminu og finnst
það mjög skemmtilegt og gefandi.
Mér finnst einstaklega gaman að
vinna með ungum og upprenn-
andi kylfingum, einnig öllum þeim
kylfingum sem vilja bæta sig. Mér
finnst fátt meira gefandi en að miðla
reynslu minni og ég hef verið svo
heppinn að fá að vera í kringum
marga af okkar bestu kylfingum í
dag. Golfíþróttin verður vonandi
alltaf hluti af lífi mínu.“
Aðspurður útilokar Birgir ekki að
taka þátt í móti á næsta ári fái hann
boð í mót á Áskorendamótaröðinni.
„Ég er ekki tilbúinn að gefa það
út að ég sé hættur og kylfurnar séu
á leiðinni upp í hillu, alls ekki. Golf
er nú þannig að það er alltaf hægt
að fara af stað á ný. Hver veit nema
ég skrái mig aftur í úrtökumót. Ég
hef alltaf haft það á bak við eyrað að
vera í toppformi fyrir Senior-móta-
röðina þegar kemur að því,“ segir
Birgir Leifur glottandi um mótaröð
ætlaða kylfingum yfir fimmtugu
sem er hluti af af European Tour og
Challenge Tour mótaröðunum.
Það eru komið rúmt 21 ár síðan
Birgir Leifur lék á sínu fyrsta móti á
Áskorendamótaröðinni, næststerk-
ustu mótaröð Evrópu. Birgir varð
fyrsti atvinnukylfingur Íslendinga
og á að baki 68 mót á Evrópumóta-
röðinni, sterkustu mótaröð Evrópu
og 157 mót á Challenge Tour, næst-
sterkustu mótaröð Evrópu.
„Auðvitað er smá þreyta eftir 21
árs atvinnumannsferil þar sem allt
hefur snúist um golf en þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegur tími.
Núna eru nýjar áskoranir og tæki-
færi og ég er mjög spenntur að sjá
hvað lífið hefur upp á að bjóða, hver
veit, kannski bara eitthvað annað
en golf.“
Tveir Íslendingar, Guðmundur
Ágúst Kristjánsson og Haraldur
Franklín Magnús, hafa þegar tryggt
sér þátttökurétt á Áskorendamóta-
röðinni fyrir næsta tímabil. Þá eru
Guðmundur, Haraldur og Andri Þór
Björnsson úr GR, Bjarki Pétursson
úr GKB og Rúnar Arnórsson úr GK
allir komnir á annað stig úrtöku-
mótsins fyrir Evrópumótaröðina.
Þeir freista þess að komast inn á
lokastig úrtökumótsins á Spáni í
næsta mánuði. Með því að komast
á lokastig úrtökumótsins fyrir Evr-
ópumótaröðina öðlast kylfingar
þátttökurétt á Áskorendamóta-
röðinni og gætu Andri, Bjarki eða
Rúnar því bæst í hóp Íslendinga á
Áskorendamótaröðinni á næsta ári.
„Það er frábært að sjá svona
marga kylfinga frá Íslandi tilbúna
að fara út og taka stökkið. Það er
langt síðan maður var í þessum
sporum. Ég var mikið einn að ryðja
veginn, ég hef gert alls konar mis-
tök og það eru líka fullt af sigrum
að baki á þessum árum. Ég komst
á Evróputúrinn og spilaði hátt í 70
mót þar og ég er rosalega stoltur af
ferli mínum,“ segir Birgir Leifur sem
var fyrirmynd fyrir bestu kylfinga
landsins í dag og hjálpaði þeim oft
á leið þeirra í atvinnumennskuna.
„Ég hef alltaf reynt að miðla
reynslu minni eftir bestu getu til
allra þeirra sem hafa leitað til mín.
Ég myndi vilja gera svo miklu meira
af því og fá að vera þátttakandi í
áframhaldandi uppbyggingu golfs
á Íslandi. Það er gaman og gefur mér
mikið að sjá mörg af þeim sem hafa
leitað til mín vera í fremstu röð í dag.
Það er jákvætt að sjá hvað margir
eru að reyna við atvinnumennsk-
una í dag enda gott að hafa sam-
keppni og leikmenn drífa hver
annan áfram. Auðvitað væri ég
mikið til í að vera ungur og hungr-
aður núna með svona samkeppni.“
segir Birgir og tekur undir orð
blaðamanns að Guðmundur og
Haraldur virtust vera tilbúnir fyrir
Áskorendamótaröðina.
„Guðmundur og Haraldur eru
báðir á góðri leið og það er gaman
að sjá þá mótast, þeir vita að þetta
er hægt. Það er núna þeirra og
f leiri að taka við kef linu og fara
með það enn lengra, sýna komandi
kynslóðum að það sé hægt að fara
enn lengra. En á sama tíma þarf
umgjörðin að halda í við þessa frá-
bæru framþróun sem hefur átt sér
stað síðustu 20 árin. Það var sér-
staklega gaman að hafa tekið þátt
í því að koma á laggirnar Forskoti,
afrekssjóði kylfinga sem saman
stendur af frábærum fyrirtækjum.
Án þeirra aðkomu væri íslenskt
golf ekki á þeim stað sem það er á
í dag og mikilvægt að þessi sjóður
lifi áfram.“
Að lokum spyr undirritaður Birgi
Leif út í fjarveruna frá Íslandsmót-
inu í golfi undanfarin þrjú ár. Birgir
bætti met Úlfs Jónssonar og Björg-
vins Þorsteinssonar þegar hann
varð Íslandsmeistari í sjöunda sinn
á ferlinum árið 2016 en hefur ekki
tekið þátt síðustu ár.
„Ég tók ákvörðun um að taka mér
frí eftir Íslandsmótið 2016 þegar ég
náði metinu. Ég þurfti að finna mér
ný markmið. Það getur verið erfitt
að vera í móti þegar maður er ekki
með skýrt markmið. Ég er líka með
svo gott vinningshlutfall í Íslands-
mótinu sem er algjör óþarfi að vera
að eyðileggja það, 14 mót og sjö
sigrar. Ég kaus í staðinn að taka kær-
komið frí með fjölskyldunni.”
kristinnpall@frettabladid.is
Nýjar áskoranir fram undan hjá Birgi
Sigursælasti kylfingur Íslands, Birgir Leifur Hafþórsson, segir óvíst hvað framtíðin ber í skauti með sér en hann hóf nýlega MBA-
nám. Hann útilokar ekki að reyna aftur að komast í atvinnumennskuna en einbeitir sér nú að námi og þjálfun yngri kylfinga.
Birgir Leifur var einnig í liði Íslands á Evrópumóti atvinnukylfinga sem vann til gullverðlauna í Skotlandi síðasta sumar. NORDICPHOTOS/GETTY
Birgir með sjöunda Íslandsmeistaratitilinn árið 2016. MYND/GSÍMYNDIR.NET
BÍLAMERKINGAR
Vel merktur bíll er
ódýrasta auglýsingin
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
„
1 9 . O K T Ó B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT