Hlynur - 15.09.1960, Síða 2
Jakob
Sigurður
Stjórnarformaður S.Í.S.
A síðasta aðalfundi SIS að Bifröst lét Sigurður Kristinsson af störfum sem
formaður stjórnar sambands'ns. samkvæmt eigin ósk. Hafði liann þá gegnt því
starfi í tólf ár, eða frá 1948. Áður hafði Sigurður verið forstjóri SÍS í 22Mí ár.
og þar áður kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Eyfirðinga. Alls hefur hann ])\í
unnið á vegum samvinnuhreyfingarinnar í 52 ár.
Við gtöðu stjórnarformanns tók Jakob Frímannsson, framkvæmdastjóri Kaup-
félags Eyfirðinga, Akurevri. Hefur hann að mestu starfað hjá félaginu síðan
1915, og verið kaupfélagsstjóri síðan 1939.
Kaupfélagsstjóraskipti í
Kópavogi
Stefán Gunnarsson hefur lát-
ið af störfum sem kaupfélags-
stjóri hjá Kaupfélagi Kópa-
vogs, en við tekið Salómon
Einarsson, sem áður var kaup-
félagsstjóri hjá Samvinnufé-
lagi Fljótamanna. Við kaupfé-
lagsstjórn þar hefur nú tek-
ið Helgi Rafn Traustason, eins
og getið er í ágústhefti Hlyns.
Salómon er fæddur 4. okt.
1914 að Tungu í Tálknafirði,
Vestur-Barðastrandasýslu. Var
tvo vetur í Reykholti og lauk prófi úr Samvinnuskólanum 1939. Starfaði næstu
árin hjá Kaupfélagi Patreksfjarðar, Samvinnufélagi Fljótamanna og Sam-
vinnufélagi Dalahrepps, Arnarfirði. Var framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Patreksfjarðar h.f. árin 1943—1947. Réðist sem kaupfélagsstjóri til Samvinnu-
félags Fljótamanna 1. jan. 1948 og gegndi því starfi til júlíloka 1 ár. — Kvæntur
er Salómon Sigurbjörgu Björnsdóttur úr Fljótum, og eiga þau eina dóttur.
Salómon
2 HLYNUR