Hlynur - 15.09.1960, Side 4

Hlynur - 15.09.1960, Side 4
Malmö til viðræðna um inngöngu L.Í.V. Fulltrúar L.Í.V. á þeirri ráðstefnu voru formaður sambandsins, Sverrir Hermannsson og formaður V.R. Guðmundur LI. Garðarsson. A fundi í stjórn N.S. í Osló 12. febrúar sl. var innganga L.I.V. endanlega samþykkt og er L.Í.V. aðili að N. S. frá 1. janúar 1960 að telja. Stjórn N.S. tekur fram í bréfi sínu, að samtök verzlunarmanna í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi séu öll félagar í viðkomandi alþýðusamböndum og að samstarf þeirra innan N.S. sé háð þeim réttindum og skyldum, sem það hefir í för með sér. Nú er L.Í.V. hins vegar ekki aðili í Alþýðusambandi íslands, en þar sem fyrir liggur ákvörðun L. í. V. um að sækja um inngöngu í A.S.Í. og vonir standa til að það nái fram að ganga, þá ákveður stjórn N. S. að taka L.Í.V. í samtök sín enda þólt það sé enn ekki aðili að A.S.Í. Til þings Nordisk samarbejdskomite hefir verið boðað í Þrándheimi dag- ana 5.—7. júlí n.k. Þangað hefir L.Í.V. rétt til að senda tvo fulltrúa. Sökum fjarlægðar Íslands og mikils ferðakostnaðar fulltrúanna, hefir N.S. sýnt þá rausn að bjóðast til að greiða allan kostnað við för annars fulltrúa L.Í.V. á þingið. Formaður N.S. er Algot Jönsson, formaður sænska verzlunarmannasambandsins, en stjórn N.S. skipa formenn verzlunarmannasambandanna í hverju landi. Skrif- stofa N.S. er í Malmö í Svíþjóð. 25 ára starfsafmæli Ragnheiður heitir hún og er Hann- esdóttir, Húnvetningur að ætt, fædd að Syðri-Ey á Skagaströnd. Hún átti fyrir allskömmu 25 ára starfsafmæli hjá Gefjun-Iðunni, og í sambandi við það skrapp Hlynur niður í Kirkju- stræti hérna um daginn og átti við hana stutt viðtal. — Þú hefur þá unnið um aldar- fjórðung á vegum samvinnuhreyfing- arinnar, Ragnheiður? — Jú, ég byrjaði hjá Gefjuni á Akureyri, föstudaginn 24. ágúst 1935. Þá var Jónas Þór verksmiðjustjóri. Arnþór Þorsteinsson, sem nú er verksmiðjustjóri, byrjaði þar sama ár sem sölustjóri. — Ég kalla þig muna þetta ná- kvæmlega. Hvað vannstu til að byrja með? — Við að búnta band. Annars fór Ragnheiður við afgreiðsluborðið i Kirkjustræti. 4 HLYNUR

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.