Hlynur - 15.09.1960, Qupperneq 7

Hlynur - 15.09.1960, Qupperneq 7
BOTNAKEPPNI Eins og stundum áður hefur Hlyn- ur nú ákveðið að efna til botna- keppni, og þar eð vitað er, að meðal lesenda hans er fjöldi hagorðra manna, má búast við mikilli og skemmtilegri þátttöku. Botnar þurfa að hafa borist til blaðsins fyrir 15 nóvember næstkomandi, og mun þá þar til skipuð dómnefnd skera úr, hver beztur sé. Sem verðlaun fyrir bezta botninn verður veitt ljóðabók- in Októberljóð eftir Gunnar Dal, árituð af höfundi sjálfum. saman laufi og á annan hátt að halda umhverfi skólans hreinu og snyrtilegu. Þrisvar í viku voru svo- nefndar „gruppediskussioner”. Var þá nemendum skipt í þrjá hópa, og fékk hver hópur sitt umræðuefni til meðferðar. Gat maður ráðið því sjálf- ur í hvaða hóp maður fór hverju sinni. Hver hópur ræddi síðan fram og aftur sitt málefni. I lok um- ræðnanna voru öll framkomin álit skrifuð niður og þau síðan rökrædd af öllum þátttakendum. — Var ykkur ekki gefinn kostur á að sjá helztu fyrirtæki sænskra samvinnumanna? — Jú, jú. Við fórum þrisvar í kynnisferðir til Stokkhólms. Þar skoðuðum við m. a. ýmsar matvöru- búðir og tilraunaeldhús KF (sænska samvinnusambandsins), svo og korn- myllu Tre Kronor. — Fenguð þið aldrei að létta ykk- ur upp? — Jú, á föstudagskvöldum. Þá var dansað. — Hve margir nemendur voru alls á námskeiðinu? — 25. — Allra þjóða kvikindi? Frh. á bls. 14. Hefur Bókaútgáfan Norðri gefið eintak af bókinni til keppninnar og kann Hlynur henni beztu þakkir fyr- ir. Hverjum þátttakanda í keppninni er í sjá)fsvald sett, hversu marga fyrriparta hann botnar, og einnig er honum heimilt að senda tvo eða fleiri botna við hvern fyrripart. Botnana má senda, eftir því sem hverjum líkar, merkta fullu nafni, dulnefni eða nafnlausa, en þess er að sjálfsögðu vænst, að höfundur verðlaunabotnsins gefi sig fram, hafi hann fyrst birst í dulargerfi. Hlynur áskilur sér fullan rétt til að birta ótakmarkaðan fjölda af þeim botn- um, sem berast kunna, við hentug- leika. Hér eru þá fyrripartarnir: Illa þokkað bann á bjór bugar landans gleði. Föl er grund og freðin sund, farðu að blunda, Dísa. Tónar gírug girndahljóð götulið um nætur. Létt á öldum ljósvakans líða gerfihnettir. Skyldi Hamarsskjöldur geta skakkað leiki Kongómanna? Ungur maður uppi í sveit átti þýzka konu. Ungum gerði manni mein meyjan, sérðu núna. Lítt er vandað Ijóðastand, lokið andans krafti. Gerið þið svo vel, lesendur góðir. Nú er ykkar að skeyta aftan við, og í öllum bænum látið ekki á ykkur standa. HLYNUR 7

x

Hlynur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.