Hlynur - 15.09.1960, Side 9
inni reynslu. Hafið það hugfast að þið
eruð eins og leikarar á leiksviði, það
er talað um ykkur, ef þið standið
ykkur vel og þið njótið góðs af því,
sem eftirsóttir starfsmenn og vin-
sælir búðarmenn. Ef þið standið ykk-
ur illa þá er líka talað um ykkur,
en á allt annan hátt.
Grænmeti og ávextir.
Grænmeti og ávextir eru þær vöru-
tegundir, sem einna mestrar um-
hirðu og nærgætni þurfa, þegar um
innkaup, geymslu og sölu er að ræða
Þess vegna þykir ekki úr vegi að
byrja þennan þátt með því að ræða
lítils háttar um ofantaldar vöruteg-
undir.
Eitt skulu lesendur þáttarins hafa
í huga, að alltaf er hætt við að ein-
hver atriði, sem hefðu átt að koma
með séu ekki nægilega skýrt tekin
fram eða kannski alveg sleppt. Ef
þetta skyldi koma fyrir, værum við
þakklátir ef okkur væri gert viðvart.
Grænmeti og ávextir eru prýði
hverrar búðar, ef viðkomandi vör-
ur eru vel hirtar og snyrtilega fyrir
komið.
Þegar innkaup eru gerð ber fyrst
og fremst að hugsa um gæðin, léleg
vara þýðir álitshnekki fyrir hverja
verzlun. Einnig fylgir því sú áhætta
að sitja uppi með allt saman.
Það fyrsta, sem ber að gera, þeg-
ar ávextir og grænmeti koma í verzl-
unina er að athuga ásigkomulag vör-
unnar, fjarlægja allt það, sem
skemmt er eða ekki í söluhæfu á-
standi. Grænmeti og ávextir eru
mjög viðkvæmar vörutegundir og
þola illa allt hnjask eða hörð hand-
tök.
Mikil rýrnun getur átt sér stað á
grænmeti og ávöxtum og má rekja
til þess þrjár höfuð orsakir:
1. Uppgufun: Grænmeti og ávextir
innihalda mikið vatn, allt upp í 95%.
Þess vegna er nauðsynlegt að geyma
vöruna við hæfilegt hitastig.
Rétt — raðið kössun-
um þannig að þeir
hvili ekki á innihaldi
hvers annars.
Rangt — þessi upp-
röðun skaðar inni-
hald kassanna.
Rétt — það er einn-
ig hægt að stafla
kössunum upp á
endann.
2. Rotnun: Við geymslu rotna og
visna ávextir og grænmeti. Það er
hægt að koma í veg fyrir þetta að
mestu leyti með því að geyma vör-
una á köldum stað ca. 6 stig á C.
(Undantekningar) Heppilegasta hita-
stigið fyrir banana er 11—12 stig á
C. Við lægra hitastig verða þeir
gráir að lit og gæði þeirra minnka.
3. Skemmdir: Fjarlægja ber allt
skemmt grænmeti og ávexti um leið
og skemmda verður vart.
Margir gleyma því, að grænmeti
og ávextir eru lifandi og að með-
höndla verður vöruna sem slíka. Eins
og áður er sagt er uppgufun hjá
grænmeti mjög ör og mikil — til
þess að láta grænmetið halda út-
liti sínu, gæðum og lengja lífdaga
þess er bezta ráðið að geyma það við
Framh. á bls. 15.
HLYNUR 9