Hlynur - 15.09.1960, Side 11
í bæ og áttu af tilviljun leið framhjá
glugga Málarans. Ekki sagðist Hulda
heldur hafa kynnt sér verðmæti
hvers einstaks hlutar, heldur giskað
á heildarverðmætið. Er hún var spurð
til hvers hún hygðist nota hið fundna
fé, svaraði hún því til, að þau hjón
væru nýgift og vantaði ýmsa nýtilega
hluti í búið, til dæmis góða ryksugu.
Myndirnar: Á síðu 10 sést Erlen
Jónsdóttir (til vinstri), starfsstúlka
hjá Samvinnutryggingum afgreiða
einn þátttakandann í getrauninni. Á
myndinni fyrir neðan á sömu síðu er
Hulda, eftir að hún hafði veitt 5000
kallinum móttöku. Á myndinni hér
að ofan sjást húsmúnirnir í sýningar-
glugga Málarans eins og Ásgeir Júl-
iusson gekk frá þeim.
Kominn í KRON
Jóhannes Steins-
son, sem verið
hefur deildar-
stjóri í járnvöru-
búð KRON á
Hverfisgötu 52
hefur nú látið af
þeim starfa og
gerst bóndi að
Stóru-Heiði í
Mýrdal. Við
störfum hans
hefur tekið Guð-
mundur Mikaelsson, áður verzlunar-
stjóri hjá Kaupfélagi Langnesinga,
Þórshöfn. Guðmundur er fæddur 10.
ágúst 1921 á Akureyri. Starfaði hjá
KEA frá 1936, en síðan hjá veiðar-
færaverzluninni Gránu í tvö ár. Árið
1958 gerðist hann verzlunarstjóri
hjá Kaupfélagi Langnesinga og
gegndi því starfi þar til í sumar, er
hann réðist til KRON.
Guðmundur
HLYNUR 11