Hlynur - 15.09.1960, Síða 13

Hlynur - 15.09.1960, Síða 13
Nú ekki alls fyrir löngu skipaði stjórn sambandsins svo tvo röska menn til að undirbúa aðra hópferð, í hverri skyldi m. a. gengið á Heklu. Var fastlega gert ráð fyrir miklum fjölda þátttakenda, þar eð veður var þá með afbrigðum gott, en haust hins vegar í hönd farandi, svo ólík- legt var að unnt reyndist að fara í fleiri leiðangra til útilegu á yfirstandandi sumri. Niðurstaðan varð á hinn bóginn sú, að að- eins 5 — fimm manns skráðu sig til ferðar, enda var henni þá aflýst. Þessar fréttir eru jafn hryggilegar og þær eru ótrúlegar. Ef þannig er komið fyrir fjölda ungs fólks, að það kýs fremur að soga að sér rykmengaða benzínfýlu þéttbýlis- ins í frístundum sínum, en að eyða þeim á heilbrigðan hátt í gullfögrum faðmi ís- lenzkrar náttúru, hlýtur manni að koma til hugar, að eitthvað sé farið að verða athugavert við æskuna. Nemendasambandið er enn nánast í reyf- um, eins og formaður þess réttilega sagði í ræðu sinni á síðasta nemendamóti. Eins og nú standa sakir, er ekki annað sýnna, en lébarn þetta hljóti innan skamms smánarlegan dauðdaga í vöggu, vegna lélegrar aðhiynningar aðstandenda. Til að þeim voða verði forðað, verðum við útskrifaðir samvinnuskólanemendur að gera okkur ljóst, að sam- tökum okkar er fleira nauðsynlegt en að halda samkomu á Bifröst einu sinni ár hvert. Enginn félagsskapur heldur lífi til lengdar án fjörugs og heilbrigðs félagslífs. A þeim vettvangi verða allir meðlimir sambandsins að leggjast á eitt. Það eitt er ekki nóg að skamma stjórnina, þótt hún hefði ef til vill á stundum að skaðlausu mátt vera röggsamari í starfi. Þetta mál þolir enga bið. Svo hörmulega má ekki til takast, að NSS gefi upp öndina eða hverfi til gleymdrar skuggatilveru vegna áhugaleysis og lélegs félagsþroska meðlima sinna. dþ. Gísli til Svíþjóðar Gísli Jónsson, fulltrúi í Fjármáladeild SÍS er nú ó förum til Svíþjóðar. Mun hann fyrst starfa við endur- skoðun hjá sænska samvinnusambandinu (Kooperativa Förbundet) í Stokkhólmi, en síðan kynna sér starfsemi „Husholdningsföreningen”, sem hefur með höndum kaupfélagaeftirlit sænska sambandsins. Vald þessarar stofnunar er allvíð- tækt, t. d. hefur framkvæmdastjóri hennar heimild til að taka að sér rekst- ur þeirra kaupfélaga, sem ekki ná æskilegum árangri í starfi sínu. Gísli gerir ráð fyrir að dveljast hjá Svíum í ca. 6—7 mánuði. Gísli' Margrét Örnólfsdóttir, gjald- keri í SÍS-Austurstræti hvílist eftir fjallgöngu. í baksýn er Skorradalsvatn. I HLYNUR 13

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.