Hlynur - 15.09.1960, Page 14
Sölu- og innkaupastjóri við
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
Um síðastliðin áramót réðist til starfa rem sölu- og
innkaupastjóri hjá Kauptelagi Vestur-Húnvetninga ungur
maður að nafni Sigurður Geirdal Gíslason.
Sigurður er í þennan heim borinn í Grímsey þ. 4. júlí
1939. Foreldrar : Gísli Sigurðsson skipstjóri og Freyja Geirdal,
kona hans. Sigurður ólst að mestu upp norðanlands. Hann
ftundaði nám við Reykholtsskóla tvo vetur, og síðan
aðra tvo vetur \'ið Samvinnuskólann að Bifröst, en þaðan
lauk liann prófi vorið 1959. Dvaldi síðan um skeið í Vestur-
Þýzkalandi og kynnti sér verzlunarstörf hjá kaupfélaginu Produktion í Hamborg.
Einnig stundaði hann nám í þýzku við Berlítzmálaskólann þar í borg. Eftir heim-
komuna vann hann um nokkurra mánaða skeið við kjötafgreiðslu í SIS Austur-
stræti áður en hann hvarf norður á bóginn til síns nýja starfs.
Sigurður
Rætt við Svíþjóðarfara
Framhalcl af bls. 7.
— Nei, þeir voru allir Svíar, nema
tveir, einn Dani og ég.
— Var ekki eitthvað fleira um að
vera á staðnum um svipað leyti?
— Jú, þar voru haldin mörg önnur
námskeið samtímis, enda eru húsa-
kynnin með afbrigðum mikil og
glæsileg.
— Hvernig líkaði þér yfirleitt við
Svía?
— Nú ágætlega. Ég er sannfærð-
ur um, að við getum mjög mikið
af þeim lært, ekki síst í verzlunar-
málum. Til dæmis má nefna, að þeir
leggja mikla og vaxandi áherzlu á að
pakka sem flestar vörur, telja það
borga sig vel. Það sparar vinnukraft.
Sá háttur er hafður á, að pakkað er
inn fyrir margar búðir á einum stað,
til dæmis fyrir allar búðir eins kaup-
félags. Stundum reka fleiri en eitt
kaupfélag slíka pökkunarstöð sam-
an.
— Komstu víðar við en í Svíþjóð?
— Já í Noregi á heimleiðinni. Var
í Osló nokkra daga, skrapp síðan til
Þrándheims og Björgvinjar og inn í
Geirangursfjörð, sem frægur er fyr-
ir náttúrufegurð. Meðan ég dvaldi
í Osló, skrapp ég til Samvirkeskol-
en, samvinnuskóla þeirra Norðmanna,
en hann er skammt fyrir utan höf-
uðborgina. Hann er þar í nýjum og
mjög myndarlegum húsakynnum.
— Hvað hyggstu svo gera í fram-
tíðinni?
— í hana er erfitt að spá, eins og
við vitum. En fyrst um sinn verð ég
í kaupfélaginu á Króksfjarðarnesi.
dþ.
Samvinna erlendis
Þýzka samvinnuhreyfingin leggur
mikla áherzlu á kennslu og framhalds-
menntun starfsmanna og félagsmanna.
Er fræðslumálum þeirra þannig háttað.
að kaupfélögin sjálf annast nokkurn
hluta hennar með aðstoð fræðsludeild-
ar samvinnusambandsins, þá reka og
hin 5 svæðissambönd umfangsmikla
fræðslustarfsemi og að síðustu sjálft
samvinnusambandið, sem rekur mjög
fullkominn samvinnuskóla og marghátt-
aða aðra fræðslustarfsemi.
☆
14 HLYNUR