Hlynur - 15.09.1960, Blaðsíða 16
8. arg., 9. tbl. September 1960.
9
ott ClJh vitci
að 21. þing Alþjóðasambands samvinnu-
manna (ICA) verður háð í Lausanne í
Sviss dagana 10.—13. okt. n. k. Munu
þeir Erlendur Einarsson, forstjóri og
Jakob Frímannsson, stjórnarformaður
SÍS sitja þingið fyrir hönd Sambands
íslenzkra samvinnufélaga. Aður en
þingið hefst, verða haldnir fundir í
miðstjórn ICA, en Erlendur Einarsson
á sæti í henni. Einnig verða haldnir
fundir í ýmsum nefndum, sem sarfa á
vegum alþjóðasamtakanna. Þing ICA
eru háð þriðja hvert ár, og var hið
síðasta í Stokkhólmi 1957.
að auglýsingaherferð sú, sem Samvinnu-
tryggingar hófu í sumar í þeim til-
gangi að vekja athygli viðskiptamanna
sinna á hinum miklu verðhækkunum
undanfarinna mánaða og nauðsyninni
að hækka tryggingar á húsmunum sem
því svarar, hefur borið ágætan árang-
ur. Á gjalddaga brunatrygginga, 1. okt
síðastliðinn, voru ný tryggingaskírteini
afgreidd rúmlega þriðju hverja mínútu.
að stúlkan, sem forsíðumyndin er af, heit-
ir Katla Kristinsdóttir og er 17 ára.
Hún vinnur á skrifstofu hjá Mjólkurbúi
Flóamanna, Selfossi.
Myndina tók Þorvaldur Ágústsson.
að Kaupfélag Borgfirðinga opnaði nýlega
nýtt og glæsilegt verzlunar- og skrif-
stofuhús í Borgarnesi. Er hér um að
ræða þriggja hæða byggingu, og koma
þar ekki ekki öli kurl til grafar, því
hægt er að lyfta þakinu og bæta undir
það þremur hæðum í viðbót. Á efstu
hæðinni eru skrifstofur, en verzlanir
á hinum tvimur.
Verzlunarhúsnæðið er í mörgum deild-
um. Þar á meðal er matvörudeild, sem
er með kjörbúðarfyrirkomulagi. Grunn-
flötur hússins er 1000 fermetrar. Teikn-
ingar að því voru gerðar á Teikni-
stofu SÍS, en stjórn verksins hafði á
hendi Sigurður Gíslason trésmíðameist-
ari í Borgarnesi.
að Verzlunarmannafélag íslands hefur sótt
um inngöngu í Alþýðusamband Islands.
að eftirtalin kaupfélög hafa nú fengið
Taylorixbókhaldsvélar hjá SÍS: Kaupfé-
lag Suður-Borgfirðinga, Akranesi, Kaup
félagið Dagsbrún, Ólafsvík, Kaupfélag
Steingrímsf jarðar, Hólmavík, Kaup-
félag Fáskrúi5sfirðinga, Fáskrúðfirði og
Kaupfélag Hafnfirðinga, Hafnarfirði.
að inntökupróf í Samvinnuskólann Bif-
röst fóru fram í Menntaskólanum,
Reykjavík, dagana 20—24. september s.
1. 63 nemendur þreyttu prófið að þessu
sinni. Af þeim voru 29 úr Reykjavík, 18
annarsstaðar af Suðurlandi, 9 af Norð-
urlandi, 6 af Vesturlandi og 1 af Aust-
urlandi.
HLYNIIR
BLAÐ SAMVINNU-
STARFSM ANNA
er gefin út af Sarabandi ísl. samvinnufélaga, Starfsmanna-
félagi SÍS og Félagi kaupfélagsstjóra. Ritstjóri er Dagur
Þorleifsson, en auk hans eru í ritnefnd Jón Asgeirsson og
Gunnar Sveinsson, Keflavík. Ritstjórn og afgreiðsla eru
hjá fræðsludeild SÍS, Sambandshúsinu, Rvík. Verð: 50.00
kr. árgangurinn, 5.00 kr. hefti. Kemur út mánaðarlega.