Breiðholtsblaðið - apr. 2017, Side 8

Breiðholtsblaðið - apr. 2017, Side 8
8 Breiðholtsblaðið APRÍL 2017 Little Bits eru litlir litríkir rafmagnskubbar. Sumardvöl í sveit verður umfjöllunarefni bókakaffisins í Gerðubergi 26. apríl n.k. Þar ræðir Þórunn Hrefna Sigurjóns- dóttir, bókmenntafræðingur, um hvernig fjallað er um sumar- dvöl barna í sveit í íslenskum bókmenntum. Rædd verða nokkur þemu sem ítrekað birtast þegar sagt er frá sumardvöl í sveit og munurinn á bókmenntategundum ígrundaður, þ.e. barnabókum, skáldsögum fyrir fullorðna, ljóðum og sjálfs- ævisögulegum bókmenntum. Heimþrá, vinnuþrælkun og jafnvel trámatískar minningar um kynferðislega misnotkun ber á góma – en líka yndislegar sumarminningar um ævintýr í sveitum landsins sem höfðu að öllu leyti jákvæða reynslu á ævi sögupersóna. Þórunn Hrefna er bókmenntafræðingur að mennt og með MA- gráðu í útgáfu og ritstjórn. Hún hefur verið bókmenntagagnrýnandi um árabil og einnig starfað sem blaðamaður. Þórunn Hrefna hefur ritað fjórar ævisögur, þeirra Margrétar Frímannsdóttur, Ruthar Reginalds, Margrétar Pálu og Guðmundar Sesars. Mikið svigrúm er fyrir umræður og gestir hvattir til þess að deila sveitasögum. Sex sumur í sveit Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir, bókmenntafræðingur. - sveitadvöl rædd í bókakaffi í Gerðubergi islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook Það er svo margt sem hægt er að gera þegar maður temur sér snemma að spara og sýna fyrirhyggju í fjármálum. Á þessum spennandi tímamótum þegar tekið er að móta fyrir fullorðinsárunum framundan langar okkur að benda á kosti Framtíðarreiknings Íslandsbanka, sem ber hæstu vexti almennra verðtryggðra innlánsreikninga og er bundinn til 18 ára aldurs. Kynntu þér málið betur á islandsbanki.is eða í næsta útibúi Íslandsbanka. Börn á fermingaraldri sem kjósa að ávaxta 30.000 kr. eða meira á Framtíðarreikningi fá 5.000 kr. í mótframlag frá Íslandsbanka inn á reikninginn.* *Gildir einu sinni fyrir hverja kennitölu þeirra barna sem koma ásamt forráðamönnum í útibú Íslandsbanka fyrir 1. júlí 2017. Með óskum um bjarta framtíð Framtíðarreikningur Ókeypis tækni- og tilraunaverkstæði verður í Gerðubergi annan hvern mánudag fram á vor með leiðbeinendum frá Kóder og Borgarbóka- safni. Verkstæðið er ætlað fyrir krakka á aldri- num 9 til 12 ára. Aðra daga geta krakkar komið á eigin vegum og hafa aðgang að tölvum og geta fiktað sig áfram í forritunarleikjum og æft það sem þeir hafa lært. Á fyrsta verkstæðinu sem verður mánudaginn 24. apríl verður hægt að læra um Little Bits sem eru litlir litríkir rafmagnskubbar með mismunandi virkni. Hægt er að festa þá saman og skapa eitthvað stórt eða smátt úr þeim. Ef þátttaka er mikil gæti þurft að samnýta settin, vinna saman í minni hóp eða skiptast á. Samtökin Kóder hafa staðið fyrir fjölbreyt- tum námskeiðum fyrir börn og unglinga í ýmiss konar forritun og starfa þau af mikilli hugsjón um að öll börn eigi að hafa greiðan aðgang að þeirri þekkingu sem felst í forritun - tæknikunnáttu og tæknilæsi. Borgarbókasafnið deilir þeirri hugsjón að tæknilæsi sé ákaflega mikilvægur þáttur í menntun barna og hefur fest kaup á tölvum og tæknibúnaði í þeim tilgangi. Ókeypis tækni- og tilraunaverkstæði í vor Gerðuberg www.breiðholt.is

x

Breiðholtsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.