Breiðholtsblaðið - apr. 2017, Side 12
12 Breiðholtsblaðið APRÍL 2017
Vel heppnuð
upplestrarkeppni
í Breiðholti
Karl Ými Jóhannesson úr Seljaskóla varð sigurvegari í stóru
upplestrarkeppninni í Breiðholti. Í öðru og þriðja sæti urðu þær
Hafrún Arna Jóhannsdóttir og Aldís Lóa Benediktsdóttir, báðar
úr Hólabrekkuskóla.
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Breiðholti er árviss
viðburður í hverfinu. Keppnir voru haldnar í öllum 7. bekkjum
hverfisins fyrr í vetur og lokahátíðin var síðan haldin í Seljakirkju
fimmtudaginn 16. mars. Þar lásu tíu nemendur, tveir frá hverjum
skóla í Breiðholti og stóðu sig öll afskaplega vel.
Milli atriða sungu nemendur úr Breiðholti og spiluðu á hljóðfæri.
Dagur B. Eggertsson borg-
arstjóri, Guðrún Hrefna Guð-
mundsdóttir skólameistari Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti og
Þorsteinn Ingi Sigfússon forstjóri
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
undirrituðu í gær samning
um áframhaldandi samstarf
um rekstur Fab Lab smiðju í
Breiðholti.
Auk nemenda í FB koma í
smiðjuna einnig háskólanemend-
ur, listafólk, íbúar Breiðholts
og almenningur t i l þessar
raungera hugmyndir sínar með
hjálp stafrænnar tækni. Fab Lab
smiðjan var opnuð í Breiðholti
árið 2014 og var þá fyrst í
Eddufelli en flutti í ný húsakynni
í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
á síðasta ári. Fab Lab smiðjan
er vel nýtt af borgarbúum en
um 50 grunnskólar í Reykjavík
nýta sér smiðjuna á hverju á ári.
Yfir 1300 nemendur fá kennslu
í smiðjunni árlega og yfir 220
kennarar hafa heimsótt smiðjur-
nar með nemendum sínum. Dæmi
um áhugaverð verkefni sem unnin
hafa verið í Fab Lab smiðjunni
í Reykjavík eru róbótar, drónar,
tæknifatnaður, landslagslíkön
og ýmis konar rafeindabúnaður.
Verkefnastjóri Fab Lab Reykja-
víkur er Linda Wanders.
Áframhaldandi samstarf
um Fab Lab í Breiðholti
Guðrún Hrefna, Dagur og Þorsteinn Ingi undirrita samninginn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
Stoltir sigurvegarar í Stóru upplestrarkeppninni í Breiðholti.
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
APPÓTEK GARÐS APÓTEKS
er notendavænt vefforrit (app)
fyrir tölvur og farsíma
á vefsíðunni www.appotek.is
Frábær nýjung fyrir alla lyfjanotendur:
Sogavegi 108 · Sími 5680990 · Opið kl. 9-18 virka daga, lokað um helgar · gardsapotek.is · appotek.is
Einkarekið apótek í 60 ár
Vefverslun með lyf Lyfseðlar Lyfjaverð ofl.
Katla Dögg Kristinsdóttir
nemandi í 4. ÞÓ í Fellaskóla
var ein af sigurvegurum í
teiknisamkeppni Mjólkur -
samsölunnar í ár en keppnin
er haldin árlega í grunnskólum
landsins.
Myndin hennar var í hópi
þeirra rúmlega 1.300 mynda sem
bárust í keppnina. Sigurvegar-
inn hlýtur viðurkenningarskjal
ásamt 40.000 kr. sem renna í
bekkjarsjóð.
Katla Dögg ein sigurvegara
í teiknisamkeppni MS
Katla Dögg með
myndina sína.
www.borgarblod.is