Breiðholtsblaðið - apr 2017, Qupperneq 14

Breiðholtsblaðið - apr 2017, Qupperneq 14
14 Breiðholtsblaðið APRÍL 2017 Nýlega voru gerðar gagngerar breyt- ingar á útibúi Arion banka á Smáratorgi í Kópavogi. Útibúið er allt hið glæsi- legasta og búið nýjustu tækni á sviði bankaþjónustu. Liður í breytingunum sem gerðar voru er nýtt hraðþjónustu- svæði sem er opið allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Þar eru meðal annars hraðbankar af nýjustu gerð sem bjóða upp á innlagnir, greiðslu reikninga og millifærslur til viðbótar við hefðbundna hraðbankaþjónustu. Hafd ís Hansdót t i r, svæðis - og útibússtjóri Arion banka, er að vonum ánægð með breytingarnar og segir þær endurspegla breyttar kröfur viðskiptavina til bankaþjónustu. „Við erum að stór- auka þjónustuna okkar með því að bjóða aðgengi að hraðþjónustusvæði allan sólarhringinn. Það þýðir að viðskiptavinir okkar hafa nú aðgengi að þjónustu utan afgreiðslutíma útibúsins sem ekki var í boði áður, til dæmis að kaupa myntrúllur, telja smámynt, leggja inn seðla og fleira sem ný kynslóð hraðbanka býður upp á“ segir Hafdís og útskýrir að hinir nýju hraðbankar séu um margt svipaðir net- bankanum. „Nýju hraðbankarnir geta birt yfirlit yfir stöðu allra reikninga viðskipta- vinarins og ógreidda greiðsluseðla auk þess sem hægt er að millifæra, bæði á milli eigin reikninga og á reikning annarra.“ Bankaviðskipti hvar og hvenær sem er Hafdís segir starfsfólk bankans finna að viðskiptavinir vilji í auknum mæli sinna bankaviðskiptum sínum þegar þeim hentar, þar sem þeir eru staddir. „Net- bankinn var auðvitað algjör bylting á sínum tíma en í dag eru kröfurnar einfald- lega orðnar aðrar og meiri. Með tilkomu Arion appsins fyrir nokkrum árum færðust helstu bankaviðskipti yfir í lófa viðskipta- vinarins þar sem hægt er að taka stöðuna, greiða reikninga, millifæra, dreifa kredit- kortareikningum og margt fleira.“ Samhliða breyttum kröfum viðskiptavina og hraðri tækniþróun telur Hafdís hlutverk bankastarfsfólks vera að breytast. „Það að viðskiptavinir geti að miklu leyti sinnt sínum fjármálum sjálfir þýðir að verkefni okkar sem störfum í bankanum breytast. Hluti verkefnanna færist til dæmis frá því að framkvæma hlutina fyrir viðskiptavininn yfir í að gera þá með honum og leiðbeina við notkun nýrra þjónustuleiða“ segir Hafdís og bætir við að fyrstu viðbrögð viðskiptavina við breytingunum séu afar góð. „Í nýja útibúinu er góð aðstaða til að leiðbeina við notkun á vörum og tækni, útibúið er opnara en áður og við leggjum enn meira upp úr því að skapa notalega stemningu fyrir viðskiptavini okkar.“ Áhersla á stafræna þjónustu og persónulega ráðgjöf Aðgerðum sem viðskiptavinir geta fram- kvæmt á netinu, í appinu og í hraðbönk- um fjölgar ört en Hafdís segir Arion banka einmitt leggja ríka áherslu á stafrænar lausnir. „Við höfum einsett okkur að vera fremsti stafræni banki landsins og staf- rænum þjónustuleiðum okkar fer sífellt fjölgandi. Á sama tíma leggjum við einnig mikla áherslu á ábyrga ráðgjöf og fræðslu.“ Sem dæmi um nýlegar breytingar nefnir Hafdís nýtt greiðslumat Arion banka sem kynnt var í lok síðasta árs. „Í stað þess að þurfa að skila alls konar gögnum og bíða svo í daga eða vikur eftir niðurstöðu getur nú hver sem er farið í gegnum greiðslumat á aðeins þremur mínútum á arionbanki. is. Þeir sem eru í fasteignahugleiðingum geta svo í framhaldinu valið að sækja um íbúðalán með einföldum hætti á netinu eða bókað fund með fjármálaráðgjafa hjá bank- anum sem kynnir lánaframboðið okkar og aðstoðar við næstu skref.“ Hafdís segir aukna áherslu á bókaða fundi mælast vel fyrir. „Bókaðir fundir hjá ráðgjafa skila viðskiptavinum okkar einfaldlega betri þjónustu. Fundirnir lágmarka biðtíma í útibúi og gera ráð- gjafanum mögulegt að undirbúa fundinn betur sem skilar viðskiptavininum betri og persónulegri ráðgjöf.“ Hraðþjónusta allan sólarhringinn alla daga vikunnar Hafdís Hansdóttir, svæðis- og útibússtjóri Arion banka. Hraðbankar í nútíma bankastarfsemi setur sinn svip á Arionbanka á Smáratorgi. Falleg setustofa í móttökunni í Arionbanka á Smáratorgi. Arion banki á Smáratorgi

x

Breiðholtsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.