Breiðholtsblaðið - apr. 2017, Page 15
15BreiðholtsblaðiðAPRÍL 2017
SKELLTU ÞÉR
Í SUND UM
PÁSKANA
www.itr.is ı sími 411 5000
Lykill
að góðri
heilsu
ITR.ISAFGEÐLUÍM SNDSTÐA PÁKAMÁ FIN Á
Í mörgu verður að snúast hjá
Arnhildi organista í Fella- og
Hólakirkju í síðari hluta apríl
mánaðar. Fyrir utan hefðbundn-
ar páskaannir við orgelið ætlar
hún að standa fyrir vortónleik-
um viku eftir páska. „Já – nú
stendur mikið til,“ segir hún í
spjalli við Breiðholtsblaðið.
En hvað er nú að gerast. Hví
er um svo mikinn gleðitón að
ræða í raddfærum organistans.
„Hann er af því að kór Fella- og
Hólakirkju verður með vortón-
leika í kirkjunni föstudaginn 21.
apríl, daginn etir sumardaginn
fyrsta og fær Vörðukórinn sem
starfar á Flúðum og í nágrenni til
liðs við sig. Ég stefni að sjálfsögðu
á að fylla kirkjuna og er stöðugt
að vinna að því að fá áheyrend-
ur. Þetta er föstudagskvöld með
frídag beggja vegna – sumardag-
inn fyrsta og hefðbundinn lau-
gardag og getur því bæði verið
góður og slæmur dagur fyrir
marga vegna þess að fólk notar
gjarnan langar helgar til þess að
skreppa úr borginni.“
Hvað ætla kórarnir að flytja
á þessum vortónleikum. „Við
ætlum að flytja glæsilega dag-
skrá. Við munum flytja kórkafla
úr Óperunni Ragnheiði eftir
Gunnar Þórðarson, kórkafla
úr Gloriu Vivaldis og annan úr
Jazzmessu Chilcotts. Auk hluta
úr þessum stóru verkum munum
við flytja ýmsar þekktar íslensk-
ar söngperlur og má þar nefna;
Draumalandið, Næturljóð úr
Fjörðum og Lífsbókina. Kristín R.
Sigurðardóttir og Inga J. Backman
munu syngja einsöng og Matthías
Stefánsson leika á fiðlu og við
Eyrún Jónasdóttir stjórnandi
Vörðukórsins munum annast
stjórn. Og endilega geta þess að
tekið verður á móti gestum í and-
dyri kirkjunnar með vordrykk og
harmoníkuleik og veitingar í hléi,“
segir Arnhildur sem vill skora á
sem flesta að gera sér dagamun
á þessu vorkvöldi og hlíða á fagra
tóna í Fella- og Hólakirkju.
Arnhildur organisti stendur
fyrir stórtónleikum 21. apríl
Kór Fella- og Hólakirkju.
Fella- og Hólakirkja
www.borgarbokasafn.is
Fylgstu með okkur á
Matarveisla frá
á bókasafninu í Gerðubergi
Heitir og gómsætir réttir alla virka daga á
kaffihúsinu Cocina Rodríges í Borgarbóka-
safninu í Gerðubergi. Einnig hægt að panta
mat fyrir funda- og ráðstefnugesti. Réttirnir
eru úr íslensku hráefni með framandi ívafi.
10-17 alla virka daga
10- 21 á miðvikudögum
13 -16 á laugardögum
Cocina Rodríguez
Pantanir í síma 771-1479
eða cocinakaffi111@gmail.com
Opnunartímar:
borgarbokasafn@borgarbokasafn.is