Breiðholtsblaðið - apr. 2017, Side 19
19BreiðholtsblaðiðAPRÍL 2017
GETRAUNANÚMER
ÍR ER 109
Fréttir
Íflróttafélag Reykjavíkur
Skógarseli 12 • Sími 587 7080
Tölvu póst ur: ir@ir.is
Heimasíða: ir.is
Er á frábæru skriði
á háskólamótum í
Bandaríkjunum
Hlynur Andrésson ÍR
hefur byrjað sitt utanhúss
keppnistímabil með skóla-
liði sínu í Bandaríkjun-
um en hann er á 3. ári
með liðinu og er að sýna
frábæran árangur sem
endranær.
Fyrsta keppnin hann
utanhúss var á Raleigh
Relays í North Caroline
síðustu helgina í mars.
Hann hljóp á 3:49,19 mín
og kom þar fyrstur í mark,
nærri tveimur sekúndum
á undan næsta manni.
Hlynur átti best 3:50,34
mín síðan í maí 2015 sem þá setti hann í 8. til 9. sæti á íslenskri
afrekaskrá. Nú stekkur Hlynur aftur á móti upp í 6. sæti en bestan tíma
í þessari vegalengd á Jón Diðriksson, 3:41.65 mín síðan 31. maí 1982.
5000m á Stanford Invitational
Þann 1. apríl keppti Hlynur í 5000m hlaupi á Stanford Invitational
í Kaliforníu. Hlaupið var frábærlega útfært hjá honum og lauk með
gríðarlegum endaspretti þar sem þrír hlaupara börðust um sigurinn
og komu í mark með 27/100sek millibili sem er hreint ótrúlegt í 5000m
hlaupi. Hlynur kom þriðji í mark, af 23 hlaupurum, sem er frábært á
svo sterku móti. Hann hljóp á 14:00.83 mín bætti sig um 10 sekúndur
og setti nýtt Íslandsmet. Fyrra metið var í eigu Kára Steins Karlssonar
ÍR, og var 14:01.99 mín. Það verður gríðarlega gaman fyrir Hlyn að
komast undir 14 mínúturnar sem er töluverður múr í þessari vega-
lengd og ætti að vera stutt í þann áfanga.
Stanford Invitational
Í kjölfarið á þessum árangri Hlyns var hann útnefndur frjálsíþrótta-
maður vikunnar í Mið ameríkudeildinni sem er mikill heiður en tíminn
hans var sá sjöundi besti í sögu skólans. Hlynur er nú í 19. sæti á
NCAA háskólalistanum en þeir bestu í hverri grein keppa á Bandaríska
háskólamestaramótinu í vor.
Sími: 588 9705
www.skautaholl.is
Opnunartímar:
Mánud., Þriðjud. og Miðvikud.
13:00 til 15:00.
Fimmtudaga
13:00 til 15:00 og 17:00 til 19:30.
Föstudaga
13:00 til 19:00.
Laugardaga og Sunnudaga
13:00 til 18:00.
Skólar og sérhópar:
Mánudag til föstudags 10:00 til 15:00.
Víðavangshlaup ÍR
á sumardaginn fyrsta
Víðavangshlaup ÍR það 102.
í röðinni fer fram venju sam-
kvæmt á sumardaginn fyrsta
þann 20. apríl og er bæði boðið
upp á hina hefðbundnu 5 km
hlaupaleið en einnig er hægt að
taka þátt í 2,7 km skemmtiskokki
sem er hugsað sem skemmti-
legt fjölskylduhlaup. Samhliða
hinum aldarlanga viðburði
fer Grunnskólahlaup ÍR fram
í annað sinn en það er 2,7 km
langt.
Víðavangshlaup ÍR var fyrst
haldið á sumardaginn fyrsta
árið 1916 og hefur síðan þá
verið órjúfanlegur þáttur í
hátíðarhöldum Reykjavíkurborgar,
en enginn íþróttaviðburður hér á
landi á jafn langa samfellda sögu
og Víðavangshlaup ÍR.
Víðavangshlaup ÍR hefst kl. 12
en hin 10 mínútum síðar. Hlaupið
um miðbæinn sem hefur skapað
góða stemmingu meðal hlaup-
ara og vegfarenda en auðvelt er
að fylgjast með hlaupurunum
alla leiðina en markið er við Hitt
húsið á horni Pósthússtrætis og
Austurstrætis. Víðavangshlaup
ÍR er einnig Íslandsmótið í 5 km
götuhlaupi og fyrsta hlaup sumar-
sins í Powerade hlauparöðinni.
Það þýðir að flestir af bestu hlaup-
urum landsins láta sig ekki vanta
í hlaupið og verður efalaust hart
barist um hvert sæti og sekúndu.
Grunnskólamótið
– keppni á milli
grunnskólanna
Grunnskólamótið er keppni á
milli grunnskóla á höfuðborgars-
væðinu og er efnt til þess í annað
sinn. Hlaupaleiðin er um 2,7 km
löng en þátttakendur eru ræstir
fyrir framan MR 10 mínútum á
eftir þátttakendum í Víðavangs-
hlaupinu, þeir hlaupa því seinni
hluta hlaupaleiðar Víðavangs-
hlaupsins. Í Grunnskólamótinu
gildir að vera með og hafa gaman
í góðra vina hópi. Sá skóli sigrar
sem á hæsta hlutfall nemenda sem
ljúka hlaupinu undir 25 mínútum.
Skemmtiskokkið – til að
gera sér glaðan dag
Skemmtiskokkshluti Víða-
vangshlaups ÍR er til þess fallið
að koma til móts við foreldra og
börn sem vilja gera sér glaðan dag
á fyrsta degi sumars og hlaupa
saman um miðbæ Reykjavíkur en
eru ekki alveg tilbúin í 5 km vega-
lengdina ennþá.
Þátttakendur eru hvattir til þess
að mæta tímanlega á keppnis-
stað og hafa hugfast að það getur
tekið nokkurn tíma að leggja bílum
í miðbæ borgarinnar. Ráðlagt er
að leggja í bílastæði Hörpunnar
meðan rúm leyfir.
Forskráning er á hlaup.is en
jafnframt er hægt að skrá sig í ÍR
heimilinu 19. apríl á milli kl. 16:30
og 19 og síðan í Hörpunni á hlaup-
dag frá kl. 9:30 til 11.
Mætum sem flest í Víðavangs-
hlaup ÍR og fögnum komu sumar-
sins saman.
Frá víðavangshlaupi ÍR á síðasta ári.
Skautahöllin verður opin um páskana
en fer í sumardvala 18. apríl fram í september.
Upplýsingar um opnunartíma má finna á
www.skautaholl.is
- það 102. í röðinni
Hlynur Andrésson
Hlynur Andrésson.
Anna Sigríður Íslandsmeistari
einstaklinga með forgjöf í keilu
Í s íðas ta mánuði lauk
Íslandsmóti einstaklinga í keilu
með forgjöf. Úrslitakeppnin fór
þannig fram að efstu 6 keila-
rar í karla- og kvennaflokki
kepptu maður á mann og eftir
það fóru þrír efstu í úrslit. ÍR
átti fjóra fulltrúa í kvennaflokki
þær Berglindi Schewing, Elvu
Rós Hannesdóttur, Halldóru Í
Ingvarsdóttur og Önnu Sigríði
Magnúsdóttur. Í karlaflokki
voru það Birgir Guðlaugsson
og Jóhann Á Jóhannsson sem
kepptu fyrir ÍR.
A n n a S i g r í ð u r s i g r a ð i
keppnina í kvennaflokki en eftir
undanúrslitin fóru þrír efstu í
hvorum flokki í úrslitin þar sem
lægsti keilarinn datt út eftir einn
leik. Elva Rós náði inn í þriggja
kvenna úrslit en náði sér ekki á
strik þar og endaði því í 3. sæti
sem er engu að síður glæsilegur
árangur en Elva er aðeins 14 ára
gömul. Birgir og Jóhann enduðu
svo í 5. og 6. sæti í karlaflokki.
Óskum Önnu til hamingju með
sigurinn og Elvu til hamingju
með bronsið.
ÍR-ingarnir Anna Sigríður fyrir
miðju og Elva Rós til hægri
með verðlaunin.
Heimasíða
www.ir.is