Nesfréttir - mar 2016, Qupperneq 4

Nesfréttir - mar 2016, Qupperneq 4
4 Nes ­frétt ir Nokkur börn á Leikskóla Seltjarnarness buðu Ásgerði Halldórsdóttur bæjarstjóra og Baldri Pálssyni fræðslustjóra að slást í för með þeim til að veiða köngulær fyrir skömmu. Hópinn skipuðu þau Jenný, Teitur, Carmen, Rósalind, Júlía Karitas, Amelía, Wiktor, Garðar Sigur, Ísadóra Diljá, Þór, Grímur og Stefán. Veðrið skartaði sínu fegursta og á leiðinni að „Tröllasteininum“ eða útilistaverkinu Amlóða sýndi Ásgerður hópnum stein sem búið er að höggva andlit í. Spennan náði hámarki þegar börnin fengu í hendur veiðistangir til að veiða köngulær sem búið var að koma fyrir hingað og þangað um holtið. Áður en hinn glaði og líflegi hópur hélt af stað til baka fékk hann sér orkunammi sem samanstóð af seríós og rúsínum. Leikskólabörn á köngulóaveiðum KOMDU MEÐ BÍLINN Í FRÍA TJÓNASKOÐUN Vottað réttinga- og málningarverkstæði GB Tjónaviðgerðir er réttinga- og málningarverkstæði vottað af Bílgreinasambandinu. Við tryggjum hámarksgæði með því að nota fyrsta flokks tækjabúnað og efni. Styðjumst við tækniupplýsingar framleiðanda um hvernig skuli staðið að viðgerð. Dragháls 6-8 • 110 Reykjavík sími 567 0690 netfang tjon@tjon.is • www.tjon.is Rétting og málning Við vinnum eftir stöðlum framleiðenda og notum aðeins viðurkennd efni og tækjabúnað sem stenst ítrustu kröfur. Smáviðgerðir Samhliða viðgerðum getum við skoðað ástand helstu slitflata og öryggisþátta, s.s. bremsur. Innréttingar / áklæði Tökum að okkur viðgerðir á sætum, innréttingum ofl. Bílaþvottur / djúphreinsun Bjóðum við upp á almennan bílaþvott, djúphreinsun, bón ofl. Frír þvottur fylgir öllum viðgerðum. Tjónaskoðun Við skoðum bílinn og undirbúum tjónamatið sem sent er til tryggingafélaga. Framrúðuskipti Skiptum um framrúður og önnumst annars konar rúðuskipti. Sjáum um öll rúðutjón jafnt límdar rúður sem og aðrar, ásamt glerhreinsun á bíl. Mössun / snyrting á lakki Við bjóðum upp á ráðleggingar og gerum tilboð í lakkmössun og blettanir. Dekkjaþjónusta Sparaðu tíma. Við getum skipt um dekk á bílnum á meðan hann er í viðgerð. Meðfylgjandi mynd er frá þessari skemmtilegu og ævintýraríku ferð. Hænsnahald leyft á Nesinu Hænsnahald er nú leyft á Seltjarnarnesi. Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkti á síðasta bæjarstjórnarfundi að Seltirningum leyfðist nú að halda hænur við hýbýli sín. Hænsnahald hefur verið að færast í vöxt í þéttbýli að undanförnu. Fólki finnst gaman að hafa hænur í garðinum hjá sér auk þess sem þær eru um margt umhverfisvænar. Hænur nærast meðal annars á matarúrgangi og getur tilvist þeirra því dregið úr sorpi. Þær umbreyta einnig fæðu sinni og þar á meðal matarúrganginum í egg sem getur verið nokkur búbót fyrir heimilishaldið. Sendinefnd frá Brussel sem kom til landsins á vegum utanríkisráðuneytisins heimsótti Seltjarnarnesbæ á dögunum og tók. Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri á móti henni. Erindi nefndarinnar var að skoða hitaveitu Seltjarnarnesbæjar og fræðast um uppbyggingu hennar og starfsemi. Nefndin kom hingað til lands í tengslum við aðkomu Íslands að Uppbyggingarsjóði EES þar sem Íslendingar styrkja jarðhitaveitur í Rúmeníu og Ungverjalandi. Í hópnum voru m.a. Stefán Lárus Stefánsson og Unnur Orradóttir Ramette sendiherrar, Þóra Magnúsdóttir, sem situr í stjórn sjóðsins fyrir hönd Íslands, auk starfsmanna Orkustofnunar og starfsmanna Seltjarnarnesbæjar. Sendinefnd frá Brussel skoðar hitaveituna Sendinefndin ásamt starfsfólki Seltjarnarnesbæjar. Malbikið á bílastæðinu á Eiðistorgi er mjög illa farið eftir miklar umhleypingar í veðri undanfarin ár. Kominn er tími á að laga malbikið og er betra að gera það með góðu efnum því sparnaður í fjárfestingum er oft mjög dýr. Starfsmenn Seltjarnarnesbæjar hafa að undanförnu unnið að því að lagfæra verstu skemmdirnar á torginu en spurning er um á hvers forræði þetta viðhaldsverkefni er – bæjarfélagsins eða eigenda fasteigna við torgið. Það breytir þó engu um nauðsyn þess að ráðast í framkvæmdir hið fyrsta. Gera þarf við bílaplanið á Eiðistorgi

x

Nesfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.