Nesfréttir - mar. 2016, Blaðsíða 6
6 Nes frétt ir
Aðildarfélagið Píratar á Seltjar-
narnesi var formlega stofnað
þann 17. febrúar síðastliðinn. Vel
mætt var á fundinn; um 15 manns
voru viðstaddir og greiðlega gekk
að skipa í stjórn félagsins.
Sara Þórðardóttir Oskarsson var
kjörinn formaður félagsins, Grímur
Friðgeirsson var kjörinn varafor-
maður og aðalmenn í stjórninni
eru þau: Eiríkur Stephensen, Maren
Finnsdóttir og Ragnar Jónsson.
Varamenn eru: Kristbjörg Ólafsdótt-
ir, Óskar Ingólfsson, Sigurður Einar
Guðmundsson. Jafnframt hefur
Eiríkur Stephensen verið kjörinn
ritari félagsins og Maren Finnsdóttir
gjaldkeri. Skoðunarmenn reikninga
eru þau Halldóra Björnsdóttir og
Haraldur Þór Guðmundsson.
Nokkrum dögum eftir stofnfund
Pírata var svo stofnað aðildar-
félag Kragans, eða Píratar í
Suðvesturkjördæmi og eru Píratar
á Seltjarnarnesi innan þess
félags. Framundan er mikil og
skemmtileg vinna. Nú þegar að
skoðanakannanir eru hliðhollar
Pírötum, sú nýjast sýndi fram á
35.9% fylgi Pírata, virðast vera
spennandi tímar framundan og
bjóðum við alla sem áhuga hafa
á starfi Pírata á Seltjarnarnesi
velkomna í hópinn. Fésbókarsíða
félagsins er undir: Píratar á Seltjar-
narnesi. Hægt er að nálgast allar
upplýsingar um stefnumál Pírata á
vefsíðunni: www.piratar.is. Einnig
er velkomið að hafa samband í
tölvupósti: sara@piratar.is og/eða
grimurfridgeirsson@gmail.com eða
í síma: 845 7008.
Aðildarfélag Pírata stofnað
á Seltjarnarnesi
Frá stofnfundinum á Seltjarnarnesi.Stjórn Pírata á Seltjarnarnesi.
SUÐURSTRÖND 10, SELTJARNARNESI
Fyrir neðan sundlaugina og World Class.
www.facebook.com/Systrasamlagid
Sími: 511 6367
AFGREIÐSLUTÍMI:
Mjúkir mánudagar: 10-16
Þri. - fös.: 8.30 – 18.
Laugardagar: 10-16.
FLOTHETTAN
– búðu þig undir gott
sumar!
Hafðu með innanlands sem
utan og njóttu frísins miklu
betur. 3 litir.
Verð: 17.700 kr.
MÖNTRU ARMBÖND!
Fyrir fermingar, fullorðna, feður,
mæður, dætur, syni, systur og
bræður.
Margar gefandi möntrur/þulur/orð.
Verð: 6.500/7500 kr.
Vorið snýr aftur!
Lífræn & frönsk
Dr. Bach ilmvötn
6 tegundir.
Þyngri og léttari ilmir sem
færa okkur vorið.
Frábær fermingargjöf.
MANDUKA
eKO fislétt!
Nú vilja margir taka
eigin dýnu með til
útlanda eða á fjöll.
eKO superlite (fislétt) er
aðeins 900 gr.
Hægt að brjóta saman.
Verð: 8900 kr.
Má bjóða
þér drykk?
Viltu skot, þeyting,
INDÍGÓ KAFFI,
eða venjulegan, te,
kakó, eða súpu?