Nesfréttir - mar 2016, Qupperneq 7

Nesfréttir - mar 2016, Qupperneq 7
Prestar og Frímínútur verða á ferð um Gallerí Gróttu nú í mars. Um tvö aðskilin hönnunarverkefni er að ræða, en sýningarnar eru á dagskrá Hönnunarmars og standa til 1. apríl. Prestar nefnist verkefni Sturlu Más Jónssonar en þar sýnir hann á sér nýja og óvænta hlið og bregður á leik í hönnun hluta sem hann smíðar sjálfur sérstaklega fyrir sýninguna. Um er að ræða hugmyndir hönnuðarins sem hafa lengi legið í skúffu í skissuformi og ekki gefist tími til að sinna fyrr en nú. Hlutirnir eiga samhljóm hvað notkun og form varðar en samt er hver hlutur einstakur og ekki endilega reiknað með að smíði hans verði endurtekin. Prestar Sturlu eru smíðaðir úr uppáhalds efni Sturlu; gegnheilum við og málmi. Frímínútur nefnist verk Þórunnar Árnadóttur en hún hefur þróað áfram vörulínuna sína Sipp og Hoj þar sem hefðbundnu netagerðarhandverki er fléttað saman við þekkta hluti sem gjarnan eru notaðir í leik og frítíma. Á sýningunni getur að líta hengirúm og hengirólur, sem gestir geta prófað sjálfir, auk þess sem fyrri hönnun eins og sippubönd og húllahringir eru líka til sýnis og í boði fyrir gesti að prófa. "Sipp og Hoj" er unnin í samstarfi við Egersund netaverkstæði á Eskifirði, Jónsver saumastofu á Vopnafirði og Þórhall Árnason smið á Egilsstöðum var upphaflega frumsýnd á Hönnun- armars 2014 í Spark Design Space undir samstarfsverkefninu Austurland: Designs from Nowhere, sem snerist um að rannsaka möguleika til smáfram- leiðslu á Austurlandi. Verkefnið hlaut Hönnunarverðlaun Íslands árið 2014. Nes ­frétt ir 7 islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook Á þessum tímamótum, þegar fullorðinsárin nálgast með öllu sínu sjálfstæði og spennandi tækifærum, er tilvalið að ræða hvernig sparnaður og fyrirhyggja í fjármálum geti best lagt grunn að bjartri framtíð. Okkur langar í því sambandi að benda á kosti Framtíðarreiknings Íslandsbanka sem ber hæstu vexti almennra, verðtryggðra innlánsreikninga og er bundinn til 18 ára aldurs. Kynntu þér málið betur á islandsbanki.is eða í næsta útibúi Íslandsbanka. Börn á fermingaraldri sem kjósa að ávaxta 30.000 kr. eða meira á Framtíðarreikningi fá 5.000 kr. í mótframlag frá Íslandsbanka inn á reikninginn.* *Gildir einu sinni fyrir hverja kennitölu þeirra barna sem koma ásamt forráðamönnum í útibú Íslandsbanka fyrir 1. júlí 2016. Við bjóðum góðar framtíðarhorfur Framtíðarreikningur Prestar og Frímínútur verða í Gallerí Gróttu á Hönnunarmarsi Ólína E. Thoroddsen hefur verið ráðinn skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness frá 1. júní 2016. Ólína er flestum Seltirningum að góðu kunn þar sem hún hefur starfað við skólann sl. 36 ár og þar af sem aðstoðarskólastjóri sl. 9 ár. Auk þess hefur Ólína gegnt stöðu skólastjóra skólans í afleysingum skólaárin 2013-2014 og 2015- 2016. Hún á því stóran þátt í uppbyggingu skólastarfs og núverandi stöðu skólans. Ólína hefur lokið diplómagráðu í stjórnunarfræði menntastofnana frá HÍ - Menntavísindasviði. Sem skólastjóri og í hlutverki aðstoðarskólastjóra skólans hefur Ólína öðlast mjög góða innsýn í skólastarfið, uppbyggingu þess og skipulag. Hún hefur komið að ákvarðanatökum varðandi flesta þætti starfsins og þekkir mjög vel til starfshátta. Þá hefur hún ræktað góð tengsl við samstarfsaðila skólans í áraraðir. Ólína ráðin skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness Ólína E. Thoroddsen hefur verið ráðinn skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness.

x

Nesfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.