Nesfréttir - mar. 2016, Side 11
Nes frétt ir 11
Að venju verða allir Passíusálmar séra Hallgríms Péturssonar
lesnir upp í Seltjarnarneskirkju á föstudaginn langa, 25. mars 2016
síðdegis, frá kl. 13 og lýkur um kl. 18. Fögur tónlist verður flutt í
hléum á milli lestra.
Allir eru velkomnir í kirkjuna til að njóta lestursins og tónlistarinnar
á þessum merka degi kirkjuársins. Fólk getur staldrað við lengur eða
skemur eftir því sem hverjum hentar. Kaffiveitingar verða í safnaðar-
heimili kirkjunnar.
Passíusálmarnir eru einstæður snilldarkveðskapur hins stórmerka
prests sr. Hallgríms Péturssonar (1614 til 1674), sem Hallgrímskirkja
á Skólavörðuhæð ber nafn af. Í sálmunum sem eru 50 talsins, hver
þeirra mörg erindi, rekur sr. Hallgrímur píslargöngu Krists, hugleiðir
hana og dregur lærdóma af. Sálmarnir hafa öldum saman verið í
miklu uppáhaldi hjá þjóðinni og margar kynslóðir lært suma þeirra
utanbókar. Meðal þeirra sem oft eru sungnir við messur og margir
kunna eru Son Guðs ertu með sanni og Víst ertu, Jesús, kóngur klár.
Á þessu ári eru 350 ár frá frumútgáfu Passíusálmanna árið 1666
á Hólum. Ekkert rit hefur verið prentað jafnoft á íslensku. Fyrir
síðustu aldamót voru prentanirnar orðnar 80, auk þýðinga og útgáfa
á fjölda annarra tungumála. Um 20 Seltirningar á ýmsum aldri verða í
lesarahópnum. Sóknarnefnd og Listvinafélag Seltjarnarneskirkju (LVS)
standa fyrir flutningi Passíusálmanna nú eins og mörg undanfarin ár
og er þess vænst að sem flestir komi.
Passíusálmarnir lesnir í
Seltjarnarneskirkju á
föstudaginn langa 25. mars
... Fyrst prentaðir fyrir 350 árum á Hólum
Leikskólabörn á Seltjarnarnesi sem komin eru á sjötta ár og eru
því væntanlegir fyrstu bekkingar komu í heimsókn í Grunnskólann
á dögunum. Fyrsti viðkomustaður var tónmenntin er þar voru 4.
bekkingar að æfa fyrir sýningu. Næst hittu þeir skólastjórann og komu
svo við í nokkrum bekkjum til að skoða starfið og hitta systkini og vini.
Leikskólabörn
í heimsókn
í Grunnskólann
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Gefðu sparnað
í fermingargjöf
Gjafakort Landsbankans er góð leið til að gefa
sparnað í fermingargjöf. Ef fermingarbarnið
leggur 30.000 krónur eða meira í sparnað hjá
Landsbankanum greiðir bankinn 6.000 króna
mótframlag. Þannig getur gjafakortið lagt grunn
að góðum fjárhag.
Kortið kemur í fallegum gjafaumbúðum og fæst í útibúum
Landsbankans. Kynntu þér sparnaðarleiðir fyrir fermingar-
barnið á klassi.is.