Nesfréttir - mar. 2016, Side 15

Nesfréttir - mar. 2016, Side 15
Nes ­frétt ir 15 les bækur, sinni ýmsu sveitabrasi, útivist með fjölskyldunni. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Yosemite-þjóðgarðurinn í Kaliforníu. Hvað met ur þú mest í fari ann arra? Létt yfirbragð, bros. Hvern vild ir þú helst hitta? Jane Goodall. Uppáhalds vefsíða? visir.is Hvað vild ir þú helst fá í af mæl is­ gjöf? Tengdamömmubox undir draslið svo öll fjölskyldan og hvolpurinn komist með í fríið. Hvað mynd ir þú gera ef þú ynn ir 5 millj ón ir í happ drætti? Bjóða fjölskyldunni til Seattle í sumarfríinu. Hvað mynd ir þú gera ef þú vær ir bæj ar stjóri í einn dag? Láta byggja þak yfir æfingasvæðið á Gróttuvellinum. Að hverju stefn ir þú í fram tíð inni? Vera hamingjusamur. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Fór til Dublin með Mörtu og ferðaðist með fjölskyldunni um Vestfirði með tjaldvagn í eftirdragi. Seltirn ing ur mán að ar ins að þessu sinni er Þórarinn Sveinn Arnarson. Hann flutti á Nesið frá Seattle aðfangadag 2005 og hef búið alsæll þar síðan með fjölskyldunni. Giftur Mörtu Guðrúnu Daníelsdóttur og eiga þau fjóra stráka Baldur Örn, Bjarka Daníel, Guðmund Brynjar og Kristin Rúnar sem allir eru í Grunnskóla Seltjarnarness. Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn er Kolur sem er 3 mánaða dvergschnauser­ hvolpur. Þórarinn hefur haft mikla ánægju af því að vera virkur í foreldrastarfi grunnskólans, Gróttu og er ómetanlegur í starfi Lúðrasveitar Seltjarnarness og er í stjórn Grenndarsvæðisins fyrir aftan blokkina sem þau búa í. Fullt nafn? Þórarinn Sveinn Arnarson. Fæð ing ar d. og ár? 2. desember 1972. Starf? Verkefnisstjóri hjá Orkustofnun. Farartæki? Strætó, reiðhjól, fjölskyldu- bíllinn. Fer eftir árstíma. Hjólið á sumrin :) Helstu kostir? Jákvæður, hjálpsamur, heiðarlegur, nægjusamur, þrautseigur. Eft ir læt is mat ur? Folaldasteik af grillinu. Eftirlætis tónlist? Hress lúðrasveitar- tónlist. Ef úti að hreyfa mig þá er Muse málið. Eft ir læt is í þrótta mað ur? Aníta Hinriksdóttir. Skemmti leg asta sjón varps efn ið? Horfi svakalega lítið á sjónvarpið. Góð bíómynd. Besta bók sem þú hef ur les ið? Neverwhere eftir Neil Gaiman. Uppáhalds leikari? Morgan Freeman. Besta kvik mynd sem þú hef ur séð? The Abyss. Hvað ger ir þú í frí stund um þín um? Spila fótbolta, badminton, er í lúðrasveit, SELTIRNINGUR MÁNAÐARINS ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996 Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 Kristín Ingólfsdóttir Hilmar Erlendsson Sverrir Einarsson Auglýsingasími: 511 1188 Á Sæbraut á Seltjarnarnesi hefur verið heimili fyrir fatlað fólk frá árinu 1988. Hafa íbúar verið fimm undanfarin 12 ár og auk þess starfsfólk þeim til aðstoðar. Húsið er upphaflega hannað og byggt sem einbýlishús sem ríkissjóður keypti þegar þjónusta við fatlað fólk hófst þar. Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi annaðist þjónustuna fram til loka ársins 2010 að málefni fatlaðs fólks færðust til sveitarfélaganna. Árið 2004 voru gerðar veigamiklar breytingar á húsinu og innréttaðar í því 5 einstaklingsíbúðir auk sameigin- legrar aðstöðu fyrir íbúanna og starfsmannaaðstaða. Samkvæmt 4. grein laga um málefni fatlaðs fólks þá ber sveitar- félögum undir 8000 íbúum að mynda sameiginlegt þjónustusvæði með öðrum sveitarfélögum. Seltjarnarnes og Reykjavík mynduðu sameiginlegt þjónustusvæði þegar málaflokkurinn færðist frá ríki til sveitarfélaganna í ársbyrjun 2011. Í samningi sveitar- félaganna um þjónustusvæðið er Reykjavík leiðandi sveitarfélag og stýrir Velferðarsvið Reykjavíkurborg- ar þjónustunni að stærstum hluta og ber m.a. ábyrgð á rekstri þjónustu við íbúa á Sæbrautinni. Sameiginlegur vettvangur sveitar- félaganna er þjónusturáð sameigin- legs þjónustusvæðis Reykjavíkur og Seltjarnarnesbæjar um þjónustu við fatlað fólk sem er skipað bæði fulltrúum Seltjarnarnesbæjar og Reykjavíkur. Það fundar reglulega og fjallar um sameiginleg málefni fatlaðs fólks á svæðinu. Seint í janúar á þessu ári kom fram hjá fulltrúum Reykjavíkur á fundi þjónusturáð- sins að Velferðarsvið Reykjavíkur hygðist flytja íbúa á Sæbraut í annað sérhæft húsnæði í Rangárseli. Rökin fyrir þeim flutningi voru að húsnæðið í Rangárseli hentaði betur fyrir íbúana. Kom fram að lögð yrði áhersla á að eiga um þennan flutning gott samstarf við alla íbúa á heimilinu á Sæbraut og aðstandendur þeirra. Á fundi í febrúar kom fram að íbúar og aðstand- endur þeirra hefðu almennt verið jákvæðir gagnvart þessum breytingum og stefnt væri að því að íbúarnir myndu flytja í lok mars eða byrjun apríl. Seltjarnarnes vinnur með Reykjavík Í Fréttatímanum þann 4. mars er látið í veðri vaka að viðhaldi hússins á Sæbraut 2 hafi verið ábótavant og húsið sé gamalt hús. Undanfarin ár hefur Seltjarnarnesbær unnið að viðgerðum á húsinu, m.a. hafa útveggir þess verið klæddir til að fyrirbyggja leka. Þá hefur verið gert við rakaskemmdir í húsinu og ýmislegt annað lagfært innanhúss. Sameiginlegt eldhús hefur verið lagfært. Húsið er byggt 1970 og hefur verið mikið endurnýjað og breytt, m.a. þegar því var breytt í fimm einstaklingsíbúðir árið 2004. Þá hefur undanfarin 2 ár verið unnið að viðhaldi þess, bæði utan húss og innan. Varðandi athugasemdir um að Seltjarnarnesbær hafi ekki markað sér stefnu í málaflokknum þá hefur bæjarfélagið tekið þátt í stefnu- mörkun um framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks sem Velferð- arsvið hefur unnið að. Stefna Seltjar- narnesbæjar í þjónustu við fatlað fólk getur ekki samkvæmt núgildandi samningi við Reykjavík verið önnur en sú sem Velferðarsvið Reykjavíkur markar. Snorri Aðalsteinsson, félagsmálastjóri Seltjarnarness Um málefni fatlaðra Snorri Aðalsteinsson.

x

Nesfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.