Vesturbæjarblaðið - feb. 2015, Síða 2

Vesturbæjarblaðið - feb. 2015, Síða 2
Styrkir til skóla- og frístundastarfs í borginni Skóla- og frístundaráð hefur afgreitt styrki til 43 verkefna fyrir tæplega 22 milljónir króna. Veittir eru almennir styrkir annars vegar og hins vegar þróunarstyrkir til starfsstaða skóla- og frístundasviðs. Alls bárust 30 umsóknir um almenna styrki og fengu 10 verkefni styrk fyrir alls um 2,8 milljónir króna. Hæstu styrkina fengu Marion Bronchet 600 þúsund krónur vegna verkefnisins Segðu mér sögu og Rithöfundasamband Íslands 500 þúsund krónur fyrir verkefnið Skáld í skólum. 73 umsóknir bárust vegna þróunar- og nýbreytniverkefna í skóla- og frístundastarfi og fengu 33 þeirra styrk. Sérstaklega var óskað eftir umsóknum vegna samstarfs- verkefna með áherslu á verk-, tækni- og listgreinar, móður- málskennslu barna af erlendum uppruna, frístundastarf fyrir alla og lestrarfærni og lesskilning. Meðal áhugaverðra verkefna sem fengu styrk má nefna Læsi í leiðinni sem Grandaskóli og leik- skólarnir Gullborg og Ægisborg ætla að vinna að, verkefni um teiknimyndasögur og læsi sem frístundaheimilið Frostheimar mun sjá um og verkefni sem miðar að því að nýta snjalltækni í starfi með tvítyngdum börnum í leikskólanum Ösp. Myndin er af Grandaskólakrökkum í heimsókn í Árbæjarsafn fyrir liðin jól. Þjónustumiðstöð í RÚV húsið Nýverið var samþykktur leigusamningur íborgarráði þar sem Reykjavíkurborg tekur á leigu stóran hlut Útvarpshús- sins til fimmtán ára. Í þeim hluta hússins sem Reykjavíkurborg mun leigja verður starfrækt þjónustu-miðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða sem er nú til húsa í Síðumúla. Stefnt er að því að þjónustumiðstöðin hefji starfsemi í Efstaleiti 1. maí eða jafnvel fyrr ef breytingar á húsnæðinu ganga vel. „Þessir samningar eru fagnaðarefni fyrir borgina. Efstaleitið er frábært svæði, þaðan er stutt í alla lykilþjónustu og allir innviðir til staðar. Þetta er því frábær reitur til að þétta byggð og verður án efa eftirsóttur til búsetu,” segir Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri. ,,Þjónustumiðstöðin sem verður í RÚV húsinu flyst úr núverandi húsnæði í Síðumúla. Það verður mikil bragarbót, bæði fyrir notendur og ekki síður fyrir starfsfólk, þar sem Síðumúlahúsnæðið er óhentugra og óaðgengilegra. Hvað varðar skipulagssamkeppnina viljum við gefa sem flestum kost á að taka þátt. Uppbyggingin virðist geta farið hratt af stað þar sem sjálft útvarpshúsið verður bæði miðstöð menningar og lýðræðis á svæðinu auk þess að þjónusta íbúa Laugardals, Háaleitis og Bústaða,“ segir borgarstjóri. Íbúðabyggð á RÚV lóðinni Blönduð byggð leigu- og séreignaríbúða mun rísa á lóð RÚV í Efstaleiti. Þá mun Reykjavíkurborg leigja stóran hluta Útvarpshússins undir þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða. Þetta var ákveðið með þremur samþykktum í borgarráði nýlega. Samþykktir borgarráðs varðandi lóð og húsnæði Ríkisútvarpsins við Efstaleiti voru þrjár. Í fyrsta lagi var forsögn að sam- keppnislýsingu um deiliskipulag Efstaleitis samþykkt. Samhliða staðfesti borgarráð samkomulag við Ríkisútvarpið um lóðina þess e fn is að Reykjavíkurborg muni ráðstafa 20% af byggingarrétti á reitnum til uppbyggingar á leiguhúsnæði. Á reitnum mun því rísa fjölbreytt byggð með blönduðum búsetu- úrræðum. Þróun lóðarinnar verður í samræmi við Aðalskipu- lag Reykjavíkur 2010 til 2030 um þéttingu byggðar. Fagráðstefna á Öskudaginn Árleg fagráðstefna grunnskóla- kennara verður haldin á öskudag- inn 18. febrúar. Yfirskrift hennar að þessu sinni er Til móts við framtíðina – um fagmennsku og virðingu kennarastarfsins. Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni eru dr. Anna Kristín Sigurðardót- tir dósent við Menntavísindasvið HÍ og dr. Toby Salt breskur ráðgjafi um forystu og þróun í skólastarfi. Síðari hluti ráðstefn- unnar er tileinkaður umræðum um fagmennsku og virðingu kennarastarfsins. Áfram frítt í sund og bókasöfn Tillaga um að sundferðir og bókasafnsskírteini verði áfram gjaldfrjáls fyrir atvinnulausa og einstaklinga með fjárhagsaðstoð ti l framfærslu í Reykjavík árið 2015 var samþykkt á fundi velferðarráðs í lok árs. Einstaklingur getur sótt um sundkort og bókasafnsskírteini á þjónustumiðstöð í s ínu hverfi. Þegar þjónustufulltrúi hefur samþykkt beiðni getur umsækjandi valið í hvaða sundlaug hann sækir sundkort og í hvaða útibúi Borgabóka- safnsins hann vill sækja bókasafn- skírteinið. Kostnaðarmat gerir ráð fyrir um 5,6 m.kr. kostnaði Reykjavíkurborgar á árinu 2015 og er það miðað við fjölda sundferða og bókasafnsskírteina undanfarin ár að teknu tilliti til verðlagshækkana. Leiguverð rýkur upp Vísitala leiguverðs á höfuðbor- garsvæðinu hefur hækkað um 40% síðan í ársbyrjun 2011 en vísitala neysluverðs um 16%. Leiguverð hefur hækkað um tugi prósenta á síðustu fjórum árum eða langt umfram verðlags-þróun á tímabilinu. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala leiguverðs hækkað um 7,5%. Til saman- burðar er 12 mánaða verðbólga nú aðeins 0,8%. Samstarf um virkni í atvinnuleit Velferðarsvið Reykjavíkur- borgar og Vinnumálastofnun hafa undirritað samstarfssamning um þjónustu Vinnumálastofn- unar við atvinnuleitendur sem fá fjárhagsaðstoð frá borginni. Samningurinn nær til framhalds- verkefnis um Atvinnutorg og Stíg þar sem áhersla er lögð á ráðgjöf og stuðning við atvinnuleitendur án bótaréttar sem þiggja fjárhag- saðstoð hjá Reykjavíkurborg. Markmið samstarfssamningsins er að styrkja einstaklinga í atvinn- uleit og fækka þeim sem þurfa á fjárhagsaðstoð að halda. Reykja- víkurborg mun samkvæmt samn- ingnum greiða Vinnumálastofnun 25 milljónir króna árlega á gildis- tíma samningsins, sem er tvö ár. Fjárhæðin samsvarar þremur stöðugildum ráðgjafa ásamt meðfylgjandi rekstrarkostnaði. Á myndinni eru Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar og Stefán Eiríksson sviðsstjóri velferðarsviðs að skrifa undir samstarfssamning. 2 Vesturbæjarblaðið Útgefandi: Borgarblöð ehf. Eiðistorgi 13-15 • 170 Seltjarnarnes • Pósthólf 172 Rit stjóri: Þórður Ingimarsson • Sími 551 1519 • 893 5904 Netfang: thordingimars@gmail.com Auglýsingasími: 511 1188 • 552 1953 • 895 8298 Heimasíða: borgarblod.is Net fang: borgarblod@simnet.is Framkvæmda- og aug lýs inga stjóri: Krist ján Jó hanns son Um brot: Valur Kristjánsson Prentun: Landsprent ehf. Dreif ing: Morgunblaðið 2. tbl. 18. árgangur Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í póstnúmerum 107 og 101. S T U T T A R b o r g a r f r é t t i r Í frétt á forsíðu blaðsins kemur fram að miklar hækkanir hafa orðið á verði íbúða í Vesturbæ Reykjavíkur að undanförnu. Þessar hækkanir eru nokkru meiri en á öðrum stöðum í borginni fyrir utan götur í Miðborginni eða 101um eins og miðborgarhverfið er gjarnan nefnt eftir póstnúmeri. Lengi hefur verið vitað um vinsældir vestasta hluta Reykjavíkur og bera nýjar upplýsingar um íbúðaverð vitni um að þær séu alls ekki að dvína – heldur þvert á móti. E itt og annað getur valdið viðlíka vinsældum einnar byggðar umfram aðrar. Vesturbærinn í Reykjavík hefur ýmislegt til að bera sem fólki líkar og sækist eftir. Vesturbærinn er elsta hverfi eða byggðalag Reykjavíkur fyrir utan Kvosina og Þing- holtin. Vesturbærinn er í næstu nálælgð við miðborgina og næstum hluti af henni en þó með sína landfræðilegu afmörkun og sérstöðu. Vesturbærinn hefur byggst upp á lengri tíma en aðrar byggðir og þar er að finna meiri blöndu af búsvæðun en víðast annarsstaðar. Fá hús eru hærri en fjögurra hæða og mör- gum finnst þau standa hæfilega þétt – einkum í yngri hlutanum Vestan Hringbrautar. Vesturbærinn verður nánast fullbyggt svæði þegar uppbyggingu á þeim reitum þar sem nú er unnið eða áformað að reisa íbúaðhúsnæði á næstunni verður lokið. Með því fjölgar Vesturbæingum umtalsvert sem ætti að stuðla að öflugri og betri þjónustu á felstum sviðum. Háskólahverfið – umráðasvæði Háskóla Íslands er að hluta innan Vesturbæjarins og að hluta á mörkum hans og Vatnsmýrarinnar. Hver sem niðurstaða flugvallarmálsins verður og hvað sem gert verður þar til lengri framtíðar er ljóst að meira verður byggt inn á því svæði en verið hefur og á Háskóli Íslands þar umtalsverðan hlut að máli. Staðsetning og staða Háskóla Íslands er eitt af því sem skapar Vesturbænum sérstöðu og vinsældir. Margt ung fólk kýs að búa í nálægð við skólann bæði í námsmannaíbúðum og öðrum á námstíma og festir oft rætur í byggðinni til frambúðar. Þá má benda á að aukin félags- og mennigarstrfsemi hefur verið að skjóta rótum í Vesturbænum. Kaffihús og sýningarsalur hafa komið til á síðustu mánuðum og gera má ráð fyrir að versluanrstarfsemi muni eflast með fleiri íbúm. Stór þjónustsvæði hefur einnig myndast í Örfisey sem löngum lá undir útvegsstarfsemi og fiskverkun. Ekkert bendir til þess að vinsældir Vesturbæjarins muni dvína á ókomnum tíma. Vinsæll Vesturbær Vesturbæingar Er ég þá 50% ríkari! FEBRÚAR 2015 Geri við allar tegundir startara, alternatora, beinar innspýtingar, rafmagn í bílum og bátum. Sævar Bíla- og bátarafmagn Sími 561-1466 - Kirkjubraut 13, Seltjarnarnesi ra fm ag n@ m i.i s

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.