Vesturbæjarblaðið - feb. 2015, Side 4
Re y k j a v í k P e a c e Festival eða Friðar -hátíð Reykjavíkur verður haldin dagana 16. til 22. febrúar
næst komandi. Þetta er í raun
og veru kóramót þar sem kórar
víða úr heiminum koma hingað
til þess að syngja í nafni friðar.
Tengingin við frið er í gegnum
Yoko Ono ekkju John Lennon og
eftirlét hún stofnanda tónlistar-
hátíðarinnar lag Lennons ”Love”
sem nú hefur verið útsett fyrir
kóra að kostnaðarlausu. Reyk-
javíkurborg, Icelandair og Ice-
landair Hotels standa að þessu
framtaki ásamt stofnendum
hátíðarinnar, hjónunum Ými
Björgvin Arthúrssyni og Hrefnu
Ósk Benediktsdóttur. Vestur -
bæjarblaðið hitti Ými Björgvin
að máli á dögunum og forvit-
naðist meðal annars um þessa
tónlistarhátíð og annað sem
hann er að fást við.
Hann var fyrst ynntur eftir
upphaf inu . Hvernig þetta
byrjaði. «Ég er búinn að fást við
ferðaþjónustu í um fimm ár. Ég
hef verið að bjóða það sem við
getum kallað lúxustúra, að selja
dýrar ferðir og þá einkum dags-
ferðir fyrir efnaða ferðalanga sem
byggjast nokkuð á að dekra við
þá í mat og drykk. Flestar þessar
ferðir liggja út á land og þá hitti
ég gjarnan bændur, spjalla við
þá og hlusta eftir því hvað þeir
eru að gera. Margir bændur eru
farnir að sinna ferðaþjónustu
með hefðbundnum búskap
meðal annars með því að leggja
áherslu á matargerð og að fram-
leiða rétti eins og við þekkjum
í hugtakinu beint frá býli. Síðan
gerðist það fyrir þremur árum
að ég fékk hingað um 30 manna
kór frá Lofoten í Noregi. Þessir
kórfélagar höfðu áhuga á að
koma hingað, kynnast landi og
þjóð og fá tækifæri til þess að
syngja. Að taka á móti þessu
ágæta fólki frá Norður Noregi var
eitt af því skemmtilegasta sem
ég hafði fengist við fram að þeim
tíma. Það var alveg sama hvert
þeir fóru eða hvar þeir voru,
ofan í gjótu, í laug eða á bak við
foss. Alltaf fóru þeir að syngja.
Þar sem ég starfa við að gleðja
fólk sá ég að þarna var ef til vill
komið tækifæri til þess að nýta
þessa gleði sem fylgir kórstarfinu
og koma upp kórafestivali eða
kóramóti.“ Ýmir bendir á að kór-
félagar ferðist í hópum og standi
líka fyrir skemmtilegheitum þar
sem þeir fara um. „Ég fann með
þessari heimsókn frá Lofoten
að ferðafélagarnir kunnu vel að
meta land og þjóð og það varð
til þess að mér hugnaðist þessi
hugmynd betur og betur eftir því
sem ég íhugaði hana frekar. Ég sá
fyrir mér að með þessu færi ég að
kynna það tvennt sem einkennir
Ísland meira en annað en það er
náttúra og tónlist og tengja það
saman í einni kynningu.“
Meira kjöt á beinið
„Ég varð að finna meira kjöt
á beinið til þess að gera þessa
hugmynd að veruleika,“ heldur
Ýmir áfram. „Það er ekki nægjan-
legt aðdráttarafl fólgið í að segja
kórfélögum að koma hingað og
syngja undir fossi eða í laug.
Eitthvað meira varð að vera í
boði. Eftir að hafa lagst aðeins
undir feld fæddist sú hugmynd
að tengja þetta við Yoko Ono
og frið en friðarboðskapur
hennar er vel þekktur hér sem
annarsstaðar. Oft eignast hug-
myndir sem byrja einhverstaðar
síðan eigið líf. Ég get þakkað Páli
Óskari Hjálmtýssyni að nokkru
leyti framhaldslíf þessarar hug-
myndar og hvernig hún þróaðist.
Ég var að hlusta á viðtal við Palla
um jólin fyrir tveimur árum og
hann fór allt í einu í viðtalinu að
tala um hversu himneskt væri
klukkna sex á aðfangadagskvöld
þegar allar kirkjuklukkur hringdu
samtímis því þá væru allir að
hlusta á þær. Að allir væru að
hlusta á sama hljóminn á sama
tíma væri einfaldlega fallegt. Og
þarna var flöturinn kominn. Að
tengja þetta við friðarboðskap-
inn. Að allir í heiminum myndu
syngja sama lag á sama tíma fyrir
heimsfriði.“
Love í stað Imagine
Þetta leiðir hugann aftur að
hugmyndinni um kórana. Eru
þeir ef til vill lykill til að að þróa
hugmynd sem þessa á alþjóðlega
vísu. Ýmir segir að tilvist kóra
byggi á söng.
Séu þeir ekki að syngja séu þeir
einfaldlega ekki til. «Já - fyrst ég
var kominn í þessar hugleiðingar
um kórana lá beint við að tengja
þetta saman. Næsta skref var að
fá friðarboðskapinn með. Ég fór
að eltast við að ná sambandi við
Yoko Ono sem var ekki auðvelt
en tókst að lokum. Ég fór til
henanr með ósk um að fá að
nota lag Lennon Imagine. Henni
leist strax vel á hugmyndina.
Fannst hún frábær en taldi að við
ættum frekar að nota annað lag
eftir John - lagið Love. Ég hafði
aldrei heyrt þetta lag áður enda
ekki eins þekkt og Imagine þótt
hörðustu aðdáendur hans hafi
eflaust vitað af því og þekkt það.
Önnur manneskja hefur stutt
okkur mikið við að útfæra þessa
hugmynd en það er
Margrét Bóasdótt ir kór -
stjóri auk þess sem fleiri í
kóraheiminum hafa stutt við
bakið á okkur. Ég hélt að Love
væri ekki nægilega gott fyrrir
kórsöng vegna þess hversu rólegt
það er en því reyndist öfugt farið.
Þegar ég bar þessa hugmynd
undir Margréti ljómaði hún vegna
þess að hún sem vanur kórstjóri
sá strax hversu vel það hljómaði
fyrir kórútsetningu. Einfaldlega
vegna þess hversu rólegt það er
og það vissi Yoko líka þegar hún
benti á að betra væri að nota það
en Imagine.»
To be grateful flutt af
700 kórsöngvurum
Ýmir segir frá því þegar hann
hringdi í Magnús Kjartansson
og sagði Magnúsi frá draumi
4 Vesturbæjarblaðið FEBRÚAR 2015
Friðarhátíð Reykjavíkur
16. - 22. febrúar í Hörpu
Ýmir Björgvin Arthúrsson og Hrefna Ósk Benediktsdóttir fyrir utan heimili sitt í Grjótaþorpinu.
Ljósmyndari Lísbet Freyja Ýmisdóttir 7 ára.
Love is real, real is love
Love is feeling, feeling love
Love is wanting to be loved
Love is touch, touch is love
Love is reaching, reaching love
Love is asking to be loved
Love is you
You and me
Love is knowing
We can be
Love is free, free is love
Love is living, living love
Love is needing to be loved
John Lennon