Vesturbæjarblaðið - febr 2015, Qupperneq 5

Vesturbæjarblaðið - febr 2015, Qupperneq 5
sínum sem var að heyra allt að 1000 kórsöngvara syngja lagið To be grateful sem að sögn Ýmis er eitt það fallegasta ef ekki fallegasta lag sem samið hefur verið. Magnús tók þessu erindi fagnandi og mun lagið verða frumflutt í öllum þessum fjölda radda í Hörpu 22. febrúar. Ýmir talar um að upplifun gesta verði án efa ólýsanleg og er hann sjálfur gríðarlega spenntur að heyra þennan flutning í útsetningu og stjórn höfundar- ins, Magnúsar Kjartanssonar. Ýmir leggur áherslu á að áhey- rendur munu ekki sitja í form- legheitum heldur verða kórarnir staðsettir í alrýminu í Hörpu, upp Himnastigann og allt í kring, og öllum frjálst að koma og fara eins og þeim sýnist. “Þetta á að vera óformleg, einstök og ógleymanleg upplifun” segir Ýmir. Kórsöngur og heims- friður í þriðju viku febrúar Eftir að hafa hitt Yoko að máli kveðst Ýmir hafa haldið á fund forráðamanna Icelandair, kynnt þeim þessa hugmynd og spurt þá hvort þeir myndu geta hugsað sér að standa við bakið á sér og veita stuðning í málinu. „Þeir tóku mér fagnandi og gerðust styrk- taraðilar að verkefninu. Eftir að hafa rætt við þá fór ég á fund fors- varsmanna Reykjavíkurborgar. Ég var reyndar búinn að ræða þetta áður við Jón Gnarr sem þá var borgarstjóri en þá var hugmyn- din ekki eins mótuð.“ Ýmir segir að Jóni og Degi B. Eggertssyni hafi litist vel á þetta og Reykja- víkurborg gefið sér þriðju vikuna í febrúar til þess að hafa friðar- hátíð Reykjavíkur. Og nú sé sú vika tileiknuð kórsöng og heims- frið hjá borginni. Afmælisdagur Yoko í stað afmælisdags Johns Ýmir segist upphafalega hafa ætlað að hafa þetta 9. október sem er afmælisdagur John Lennon og með þá dagsetningu fór hann fyrst til Icelandair. „Þeim leist ekki nægilega vel á þá tímasetningu vegna þess að hún væri á miklum annatíma í ferðamálunum en síðari hluti febrúar hentaði þeim ágætlega. Með þá hugmynd fór ég til borgarinnar sem hentaði ekki síður vel þar á bæ en hjá flugfé- laginu. Hjá borginni sat ég á fundi með Svanhildi Konráðsdóttur og Hrefnu konu minni og við veltum fyrir okkur hvernig við tengdum þennan tíma við Yoko Ono fyrst ekki var hægt að nota afmælisdag Lennons. Svanhildur brosti þá og sagði að við værum ekki að sjá tækifærið sem væri að bjóðast vegna þess að 18. febrúar væri afmælisdagur Yoko Ono. Þannig að á endanum var partýið fært til loka febrúar til þess að jafna fjölda ferðamanna aðeins og lenti það því næstum á afmælisdegi hennar sjálfrar. Þetta var með öðrum orðum skemmtileg slysni.» Ben Parry útsetti lagið Ýmir segir næsta skref hafa verið að útsetja lagið. «Ég fékk til þess mann að nafni Ben Parry sem ég held að hafi verið eitt af afrekunum í kringum þetta. Parry er þekktur víða um heim og stýrir meðal annars London Voices í Bretlandi. Hann hefur komið mjög víða við og meðal annars stýrt allri kórtónlist í Harry Potter myndunum. Parry útsetti lag Lennons Love fyrir barnakóra, fyrir fjögurra radda og átta radda. Nú er staðan þannig að dagskráin hefst 16. febrúar með því að barna- og ungmennakórar munu koma saman og syngja lagið Love í Hörpu kl.10.30 og eru allir velkomir að koma og njóta þessarar fallegu stundar í alrýminu þar. Aðal tónlistarveis- lan verður síðan á milli klukkan þrjú og fimm sunnudaginn 22 febrúar því þá verður öllum sem geta komið boðið í Hörpu til að hlýða á kóra syngja allskyns lög.» Ýmir segir að þessa dagana séu kórar að koma fram og skrá sig til þátttöku auk þess sem samfélög víða um heim séu að taka þetta tækifæri og nýta sér. Þar á meðal í Wurtzburg í Þýskalandi þar sem mismunandi trúfélög munu koma saman og syngja í ráðhúsi borgarinnar 22. febrúar af þessu sama tilefni. “Ég hef þá trú að eftir því því sem fleiri frétta af þessu muni fólk víða um heim taka sig saman og efna til friðarhátíðar á þessum grunni. Markmið okkar sem stöndum að þessu er að Friðarhátíð Reykjavíkur í febrúar geti orðið öflug landkyn- ning undir merkjum kórsöngs, óspilltrar náttúru og friðar. Þeir sem koma hingað í tengslum við hátíðina hvort sem það er til þess að synga eða fylgjast með við- burðum að öðru leyti - kannski bara til að hlusta flytja alltaf upplýsingar um land og þjóð með sér til baka.» Í fótspor föðursins Ýmir Björgvin á ekki langt að sækja áhuga á fagurfræði og ferðum. Faðir hans Arthúr Björgvin Bollason er kunnur bæði fyrir leiðsögn og ekki síður vinnu við gerð allskyns fjölmiðlaefnis einkum fyrir sjónvarp auk menningarstarfsemi. Ýmir fetaði fljótt um margt í fótspor hans. Lærði heimspeki við Háskóla Íslands og í Danmörku og hélt síðan til Barcelona þar sem hann lauk MBA prófi á aldamótaárinu 2000. „Eftir það kom ég heim með tvær hendur tómar eins og námsmönnum er títt en með höfuðuð fullt af hugmyndum. Ég stofnaðni fyrirtæki sem hét Handlaginn og rak það í ein fimm eða sex ár en seldi það síðan til Exista. Það lifir ekki lengur frekar en margt annað sem fór forgörðum í hruninu. Eftir að ég seldi fyrirtækið fór ég á smá þvæling og var um tíma í Svíþjóð þar sem ég leitaði að viðskiptahugmyndum og tækifærum. Ég keypti land í sænska skerjagarðinum ásamt fleirum sem við eigum enn og ætlum að koma upp sumar- bústöðum en það mál er enn í vinnslu. Fyrir um fimm árum ákvað ég að skella mér af alvöru í ferðaþjónustu. Ég byrjaði á því að opna bókunarstofu í Reyk- javík og sogaðist síðan út í að gerast leiðsögumaður með mína eigin túra.” Í stjórn „Þorparanna“ Þau hjón Ýmir Björgvin og Hrefna Ósk Benediktsdóttir búa í Mjóstrætinu í Grjótaþorpinu og stýra þaðan ferðaþjónustu og nú síðast Friðarhátíð í Reykjavík. En af hverju völdu þau Grjótaþorpið. “Ég ólst upp í Kópavoginum - en er búinn að vera í Vesturbænum í Reykjavík frá aldamótum. Bjó einnig við Hofsvallagötuna um tíma á námsárunum í Háskóla Íslands og það var erfitt að komast undan því að verða KR-ingur. Síðan var það Ljósvallagatan og þegar þetta húsnæði við Mjóstrætið kom til greina vaknaði áhuginn á þorpinu og síðan varð ekki aftur snúið. Nú fer ég lítið austur fyrir Læk eða í önnur borgar- eða bæjarhverfi. Einna helst að ég fari út á Seltjarnarnes til þess að fara í laugina og æfa. Ég þarf ekkert meira. Þetta er lítið og kannski svolítið lokað samfélag. Eins og í öðrum þorpum þekkja alla og við eigum okkar hverfispöbb. Hverfispöbbinn okkar er Stofan sem er neðst við Vesturgötuna þar sem verslunin Fríða frænka var einusinni. Mér finnst vera einkenni á þessu samfélagi hvað flestum eða öllum þykir vænt um þorpið sitt og eru duglegir að viðhalda umhverfinu og samfélaginu. Og nú er ég kominn í stjórn „Þorparanna“. Nei - get ekki lifað af Friðarhátíð í Reykjavík einni saman. Ekki enn þá alla vega en ég stefni að því að ferðast með þessa hugmynd um aðrar borgir og kynna hana og einnig að fá fleiri og fleiri kóra til þess að koma hingað til lands. Það er partur af þeirri landkynningu sem ég er að vinna að úr Grjótaþorpinu.” 5VesturbæjarblaðiðFEBRÚAR 2015 HAPPY HOUR ALLA DAGA 16.00–19.00 www.hotelsaga.is www.facebook.com/skrudur FRÍTT WiFi Á Mímisbar er gott að tylla sér niður í góðra vina hóp, spjalla, vinna verk- efni eða slaka á yfir drykk. Vertu vinur okkar á facebook og fylgstu með viðburðum á döfinni, lifandi tónlist og öðru skemmtilegu. Matseðill með úrvali af réttum í boði alla daga frá 12.00–22.00 á Mímisbar og í Skrúði. www.eignaumsjon.is S. 585 4800, Suðurlandbraut 30. Aðalfundur framundan? Heildarlausn í rekstri húsfélaga.

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.