Vesturbæjarblaðið - Feb 2015, Blaðsíða 7

Vesturbæjarblaðið - Feb 2015, Blaðsíða 7
7VesturbæjarblaðiðFEBRÚAR 2015 Davíð Ólafsson Frítt söluverðmat. Hringdu núna. Reynsla og vönduð vinnubrögð. Löggiltur fasteignasali Sími: 897 1533 david@remax.is JÓGA & HEILSA Námsskeið fyrir konur á Aflagranda 40 Jógaleikfimi, mjúkar æfingar, góðar teygjur, öndun og slökun. Jóga liðkar og styrkir líkamann, er gott gegn vefjagigt og eykur almenna andlega og líkamlega velllíðan. Skráning hjá Hildi B. Eydal jógakennara • Gsm: 8644476 Réttindi frá British School of Yoga og Yoga studio. Áform eru um að stofna safn um myndlistarkonuna Júlíönu Sveisdóttur í Tjarnargötu 36 í Reykjavík. Ætlunin er að færa húsið til upprunalegs horfs og byggja við það til suðurs því hefur verið breytt nokkuð í tímans rás. Það er Bergljót Leifsdóttir – dóttir Leifs Sveinssonar lögfræðings sem var þekktur maður í Reykjavík og í húsinu sem stendur að baki þessum hugmyndum. Leifur var mikill safnari og var stærsta einkasafn á verkum Júlíönu í eigu Leifs en hún var föðursystir hans. Júlíana Sveinsdóttir var einn af þekktari myndlistarmönnum á fyrri hluta 20. aldar. Hún fæddist í Vestmannaeyjum 1889 og bjó lengst af í Kaupmannahöfn þ a r s e m h ú n l é s t 1 9 6 6 . Foreldrar hennar voru Guðrún Runólfsdóttir og Sveinn Jónsson trésmíðameistari sem stofnaði t i m b u r v e r s l u n i n a V ö l u n d . Júlíana var systir Sveins M. Sveinssonar sem var faðir Sveins, Haraldar og Leifs sem löngum voru kenndir við fyrirtækið og kallaðir Völundarbræður. Í upphafi tuttugustu aldar var ekki sjálfgefið að ungar stúlkur héldu utan til náms en Júlíana bjó yfir ótvíræðum hæfileikum og átti föður sem hafði áhuga og getu til að styrkja hana. Sigldi hún til Kaupmannahafnar árið 1909 og eftir þriggja ára undirbúningsnám hlaut hún inngöngu í hinn virta Konunglega danska listaháskóla. Jú l íana s tundaði nám v ið málaradeild skólans næstu fimm árin og útskrifaðist þaðan árið 1917. Verðskuldað hlutverk Á ferli sínum tók Júlíana þátt í rúmlega hundrað samsýningum og hélt 11 einkasýningar á Íslandi og í Danmörku. Júlíana var einnig einn þekktasti listvefari Norðurlanda. Hún stundaði að mesu sjálfsnám í vefnaði og notaði íslenska ull litaða úr jurtum sem hún safnaði á sumrin þegar hún dvaldi á Íslandi. Auk starfa sinna að myndist var hún virk í samtökum listamanna. Hún sat meðal annars sem fulltrúi listamanna í stjórn Hins konunglega danska listaháskóla sem hefur m.a. það hlutverk með höndum að vera opinberum aðilum ráðgefandi varðandi myndlist og arkitektúr og veita v iðurkenningar á sama vettvangi. Eftir lát Leifs Sveinssonar á liðnu ári hefur húsið við Tjarnargötu 36 verið ónotað að öðru leyti en því að hýsa stórt bóka- og listaverkasafn Leifs og Halldóru konu hans en nú stefnir Bergljót dóttir þeirra að því að finna æskuheimili sínu nýtt og verðskuldað hlutverk. Safn Júlíönu Sveins- dóttur í Tjarnargötunni Tjarnargata 36 þar sem áformað er að safn um Júlíönu Sveindóttur myndlistarmann verði til húsa í framtíðinni. SUÐURSTRÖND 10, SELTJARNARNESI Fyrir neðan sundlaugina og World Class. www.facebook.com/Systrasamlagid Sími: 511 6367 Tengjum hvert við annað! AFGREIÐSLUTÍMI: Virkir dagar 8 - 18 Laugardagar 10 - 16 6. teg og úrval fylgihluta: Jógadýnur Jógahandklæði Jógapúðar Jógabönd Hugleiðslupúðar ÚR JÓGA, Í VINNUNA OG BEINT ÚT Á LÍFIÐ! Framúrskarandi lífrænn og sanngirnirvottaður 360¨ fatnaður, sem er að slá í gegn á Íslandi. FRAMTÍÐIN ER NÚNA. ÓMÓTSTÆÐILEGT GÓÐGÆTI SYSTRA! LÍFRÆNT KAFFI með LÍFRÆNNI BÍÓBÚMJÓLK! Eða viltu næringarríkjan þeyting, croissant, samloku, eitthvað án glútens, skot, chiagrauta, heilsubita, INDÍGÓ KAFFI, CHAI LATTE? AUÐLINDIR INDVERSKU LÍFSVÍSINDANNA – 5000 ára reynsla Einstaklega vandaðar olíur úr hefð Ayurveda (systurvísinda jógafræðanna), sem halda okkur ungum, bæta svefn, róa taugakerfið og auka liðleika. MANDUKA ERU TAJ MAHAL JÓGADÝNANNA

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.