Vesturbæjarblaðið - feb. 2015, Síða 8
Tveir ungir menn Ólafur Jón
Magnússon og Sigurður Jón
Sveinsson standa fyrir sunnu-
dagaskólanum á Dómkirkjulof-
tinu á hverjum sunnudagsmor-
gni. Starf sunnudagsskólans
er á sama tíma og messað er í
kirkjunni og er börnum kirkjug-
esta boðið upp á kirkjuloftið
til þess að hlíða á sögur, lita,
föndra og gera ýmislegt fleira
á meðan guðsþjónustu stendur.
Nú hanga teikningar krakkanna
í sunnudagskólanum uppi á
sama kirkjukoftinu og Sigurður
Guðmundsson listmálari hafðí
aðstöðu á sinni tíð en hann var
uppi á árunum 1833 til 1874.
„Þetta er svona hefðbundið
barnastarf sem við erum með
þarna uppi. Það er frábært að
vera á kirkjuloftinu. Krökkunum
finnst spennandi að fara upp sti-
gann og andrúmsloftið er mjög
gott,“ segja þeir Ólafur og Sig-
urður þegar tíðindamaður hitti
þá á Cafe Paris næstum handan
við dómkirkjuhornið. „Við byrjum
um klukkan ellefu á morgnana.
Þá koma oft nokkrir krakkar
strax en svo koma fleiri þegar
upphafið að messunni er búið.
Fólk kemur gjarnan með börn
með sér í messu og þau sitja niðri
við upphafi hennar og hlusta
á sönginn en koma svo upp til
okkar. Það getur verið erfitt fyrir
börnin að sitja þögul og kyrr alla
messuna og þá er gott fyrir þau
að eiga annað athvarf í kirkjunni.“
Föndur, myndasýningar
og brúðuleikhús
„Nei – við erum ekki með myn-
dlistarkennslu á kirkjuloftinu.
Ekki í hefðbundnum skilningi en
við leyfum börnunum að teikna
og lita. Mörg börn hafa mjög
gaman af því og stundum fylgir
áhuginn á að lita og gera myndir
ákveðnu aldursbili einmitt þessu
bili sem sunnudagskólinn tekur
til. Og við erum einnig að föndra.
Við erum líka með söguken-
nslu. Segjum krökkunum sögur
og lesum fyrir þau. Að hluta er
það byggt á biblíulegu efni eða
biblíusögum enda er þetta hluti
af starfi kirkjunnar og svo notum
við brúður. Erum með vísi að
litlu brúðuleikhúsi. Það höfðar til
þessa aldurhóps.“
Vídeóið kom til sögunnar
Starf sunnudagskóla kirkjunnar
á sér langa sögu og er hluta til
með hefðbundnu sniði þótt alltaf
megi breyta út af hefðum og leiða
nýjungar inn í starfið. „Eitt af því
sem hefur komið meira inn eru
myndasýningar. Videóið kom til
sögunar og sunnudagskólarnir
hafa nýtt sér tæknina eins og
aðrir. Stundum fá krakkarnir að
sjá myndir þau eru einnig að lita
og föndra og síðan segjum við
þeim sögur og ræðum við þau um
heima og geyma. Nei – prestarnir
eru ekkert að skipta sér af okkur.
Þeir koma stundum upp og það
er bara gott að fá þá í heimsókn.
Þeir hafa áhuga á því sem við
erum og gera og leggja okkur gott
til. En við fáum alveg að sjá um
þetta einir.“
Gefandi að vinna með
börnunum
Báðir þekkja þeir Ólafur og
Sigurður til kristilegs starfs og
hafa meðal annars starfað með
KFUM og að sumarstarfi þess í
Vatnaskógi auk þess að starfa
með kirkjuskólum í Digranesi
og Hjallkirkju í Kópavogi. Ólafur
stundar auk þess nám í guðfræði
við Háskóla Íslands og stefnir
að prestskap í framtíðinni en
Sigurður stundar háskólanám í
sjúkraþálfun. Ólafur er uppalin í
Gerðunum og Sigurður kemur úr
Hafnarfirði. En hvað vísaði þeim
veginn í Dómkirkjuna. „Það er
nú kannski þessi forsaga okkar í
kristilegu starfi sem varð til þess
að við tókum þetta að okkur og
það er gaman og gefandi að starfa
með börnunum.“
Fyrst og fremst viðmótið
sem gildir
En eru þetta einkum börn
í kirkjusókn Dómkirkjunnar
sem koma í sunnudagskólann
hjá þeim. „Þetta er blandaður
hópur af krökkum. Þau yngstu
eru um tveggja ára og upp í
sjö ára en það vantar eiginlega
starf fyrir börn á aldrunum
frá sex eða sjö til níu ára en
svo tekur ungl ingastar f ið
við. Nei – þau koma ekki öll úr
Dómkirkjusókninni,“ segja þeir
Ólafur og Sigurður aðspurðir.
„Nokkur þeirra eru þaðan en
sum koma jafnvel úr öðrum
bæjarfélögum. Fólk hefur tengsl
við Dómkirkjustarfið þótt að
það hafi flutt burt. Sækir messur
og aðra kirkulega þjónustu og
þá njóta börnin þess að koma
til okkar í sunnudagskólann.
Þannig getur hópurinn verið
aðeins breytilegur frá sunnudegi
til sunnudags. Fer svolítið eftir
því hvað fólk kemur í messu.
En við erum fyrst og fremst að
halda uppi þjónustu við þá
sem þess æskja. Börn eru ekki
alltaf að pæla í kristindómi eða
kennisetningum. Þau hafa gaman
af sögum og það er fyrst og
fremst viðmótið sem gildir,“ segja
þeir Ólafur og Sigurður að lokum.
8 Vesturbæjarblaðið FEBRÚAR 2015
www.borgarblod.is
Fyrst og fremst viðmótið
sem gildir
Nesvegur 100
Símar 562-1070, 896-4243
Opið virka daga kl. 10 - 18:30
MIKIÐ ÚRVAL SPENNANDI FISKRÉTTA
VERIÐ VELKOMIN
FERSKUR FISKUR
DAGLEGA
Sigurður Jón Sveinsson og Óalfur Jón Magnússon á Austurvelli. Dóm-
kirkjan í baksýn.
Leikhús barnanna í Vesturbæ - Gullna hliðið í maí 2014.
Leiklistarnámskeið
í Melaskóla!
Leikhús barnanna kynnir leiklistarnámskeið
í Melaskóla á föstudögum frá kl. 14:20 til 16:00.
Örfá sæti laus.
Leikhús barnanna er 5 ára í vor og er fyrir öll börn
í Vesturbænum en er starfrægt í samvinnu við
Melaskóla og Landakotsskóla.
Skráning í síma: 868 5560 og
á netfagnið: ingabja@gmail.com
Fjölskylda sýnir
í Gallerí Vest
Nú stendur yfir samsýning í Gallerí Vest við Hagamel. Svo skemmti-
lega vill til að þar er fjölskylda á ferð. Kristín Arngrímsdóttir mynd-
listarkona og þrjú börn hennar þau; Guðrún, Arngrímur og Matthías.
Gallerí Vest var opnað skömmu fyrir jól, sýningarsalur og
vinnustofur, með samsýningu Magnúsar Helgasonar og Þóreyjar
Eyþórsdóttur. Sýningarsalurinn er ætlaður fyrir myndlistarsýningar eða
aðra menningarviðburði fyrir einstaklinga og hópa.
Sara Isabel Gunnlaugsdóttir nemandi í 6. bekk Vesturbæjarskóla
vann til fyrstu verðlauna í hæfileikakeppni Frosta – Vesturbær
got talent 22. janúar. Hún söng hið fallega ljóð Ást eftir Sigurður
Norðdal við lag Magnúsar Þórs Sigmundssonar.