Vesturbæjarblaðið - feb. 2015, Síða 10
10 Vesturbæjarblaðið FEBRÚAR 2015
Nokkrir krakkar úr Pathfinder -
hópnum í Félagsmiðstöðinni Frosta
kom vikulega saman í kósý lítilli
kompu djúpt í iðrum Hagaskóla.
Vesturbæjarblaðið spjallaði við
nokkur þeirra á dögunum; þau Jón
Stefán, Agnes, Daníel, Sigurjón og
Magnús
Af hverju skráðir þú þig í
Pathfinderklúbbinn?
Jón: “Ég vildi bara prófa svona
table top roleplay, ég hef aldrei pró-
fað svona áður og mér finnst þetta
ótrúlega skemmtilegt, eitthvað öðru-
vísi en að sitja fyrir framan tölvuna
og taka ákvarðanir þar.”
Agnes: “Ég veit ekki alveg af hver-
ju, allir nördarnir voru að skrá sig í
þetta og mig langaði að verða nörd.”
Daníel: “Af því ég hef prufað D&D
og ég hef mjög gaman að roleplay
leikjum.”
Sigurjón: “Mig langaði að prufa
eitthvað nýtt, þetta hljómaði vel og
stjúpbróðir minn er í D&D hóp.”
Magnús: “Út af því mig langaði í
D&D í fyrra en það varð ekkert úr því.
Svo heyrði ég að þetta væri næstum
því eins svo ég skráði mig.”
Við hverju varstu að búast við áður
en þú vissir hvernig leikurinn fór fram?
D: “Það var ekkert að búast við því
ég vissi hvernig þetta er.”
A: “Ég hélt þetta væri allt annað.
Ég hélt þetta væri svipað og LARP en
ekki alveg eins.”
J: “Ég væri að búast við að þetta
væri eins og Skyrim nema meiri
möguleikar.”
S: “Ég vissi nokkurn veginn hvernig
þetta fúnkeraði því bróðir minn spilar
þetta.”
M: “Svoldið eins og D&D væri í bíó-
myndum, en það er ekkert eins..”
Spurð að því hvernig leikurinn
fer fram hjálpast þau að komast að
niðurstöðu en almennt eru þau öll
langt á veg komin að átta sig á þessu
margþætta kerfi sem Pathfinder reglur-
nar spanna.
A: “Ókei, maður ég veit það ekki..”
S: “Þetta snýst um að hópstjórinn
skapar almennt sögusviðið og leg-
gur allskonar þrautir og verkefni
fyrir leikmenn og svo koma leikmenn
með sinn söguþráð inn í það, kasta
teningum til að leysa þrautirnar og
það ákvarðar hvað gerist við þig og
liðsfélaga þína.”
A: “Maður getur gert það sem
maður vill eins og að giftast Svirf-
nibli (neðanjarðardverg).” D: “Þú
ræður líka alveg hvernig karakterinn
þinn er.”
Gaman að sjá hvernig sagan
þróast
Krakkarnir hafa gengið í gegnum
allskonar ævintýri og mörg þeirra
mjög eftirminnileg. Á meðan Sigur-
jón stælir sig á kremju-hæfileikum
hamars persónu sinnar kastar Daníel
inn í umræðuna: “Þegar Kveldúlfur
kastaði eldgaldri í eidolonið mitt.
Eidolon er dýr frá annarri tilvist sem
persónan mín er tengd og getur kal-
lað til sín.” Agnes er fljót að minnast
á atburð sem þeim er öllum min-
nisstætt og vekur kátínu hjá öllum
krökkunum: “Þegar galdrakarlarnir
kasta Acid Splash og bræða allt sem
þeir sjá..” Einstaka atvik eru minn-
istæð en þegar þeim er safnað saman
í heild verður til saga og Sigurjón
segir: “Það er gaman að sjá hvernig
sagan þróast, þetta er ekki eins og
bíómynd þar sem söguþráðurinn er
ákveðin, við sköpum söguna í sögus-
viði GM-ins. (GM stendur fyrir Game
Master, sem er sögumaður og sér
um að skipuleggja sögusvið og spi-
lar til að mynda óvini og alla þá sem
verða á vegi persóna leikmanna). “Ég
sparkaði niður tré. Það var kúl” lætur
Magnús rólega uppúr sér og allir
skella upp úr.“
Hvernig persónu sköpuðu þið og
hvernig lítur hún út?
“Hún er ógeðslega lítil og mjó og
geðveikt klár og lúmsk. Hún er mjög
sæt Gnome Rogue og heitir Rum-
putuski og hún kann ekki að fara í
handahlaup.” Segir Agnes og horfir
lauslega út í loftið. Í kjölfarið myndast
örstutt þögn sem Magnús rýfur með
yfirveguðu háttalagi og deilir sinni
persónu með mér: “Ég er að spila
half-orc sem heitir Davor og hann
er veiðimaður og ógeðslega stór og
sterkur. Hann er grænn.” Magnús
er ekki fyrr búinn að sleppa orðinu
þegar Agnes bætir inn í: “Mín er
líka bleik! Nei, fjólublá meina ég!”
“Ég skapaði mjög lávaxna konu sem
er ósköp venjuleg manneskja og er
með tákn á enninu og er með dýr
með eins tákn á enninu sem hún
getur kallað til sín frá annarri vídd/
tilvist” bætir Daníel við og lætur það
gott heita.
M: “Ég gleymdi að taka fram að
persónan mín á Dodo fugl sem er
ógeðslega góður í að berjast. Dodo
fuglar eru harðir.”
J: “Mín persóna er lítill dvergur,
frekar lítill miðað við dverg, hann er
svona 120 til 130 cm en hann er mjög
myndarlegur dvergur og hann er
með mjög stóran rass svipað stóran
og Kim Kardashian. Hann er með
svona appelsínugult hár og langar
fléttur eins og Vambi í Hobbit en ekki
eins feitur. Hann er alveg sterkur en
samt frekar bústinn. Hann er vond...
allavega sæmilegur í hegðun en tekur
smá vitlausar ákvarðanir stundum...”
S: “Minn er mjög geðveikur dvergur
sem elskar hamarinn sinn. Hann er
stór miðað við dverg eða um 160
cm að hæð. Annað fólk myndi örug-
glega telja hann slæma persónu held
ég, hann er nefninlega mjög hvat-
vís þegar hann tekur ákvarðanir.”
Hvert er markmið persónu ykkar?
A: Að giftast Svirfniblinum!
S: Markmið persónunnar minnar er
að safna nógum miklum pening til að
geta lifað vel í ellinni.
M: Anda. Markmið minnar persónu
er að anda. Markmið hennar líka er
að verða rík.
A: Jú, líka að verða rík.
D: Markmið persónu minnar
er að giftast einhverjum guði
og verða alræmdur sjóræningi.
Lýstu sambandi persónu þinnar í
garð hópsins sem hún er í föruneyti
með.
Sigurjón byrjar á því að útskýra
samband persónu sinnar og Kolbeins
sem er mjög gott. “Þeir eru góðir
félagar og taka margar ákvarðanir
í sameiningu.” Svo heyrist í Daníel:
“Persónan mín og Kolbeins eru
ekki góðir félagar! Hins vegar líkar
minni persónu við persónuna hans
Halldórs.” Daníel er nýbúinn að
sleppa orðinu þegar heyrist djúp og
drungaleg rödd í herberginu “Ég ætla
að drepa þau öll í lokin..” segir Agnes
og krakkarnir skella öll upp úr.
Er leikurinn flókinn?
Allir: “NEI!”
D: “Þegar þú ert að byrja.”
Allir: “Já smá.”
Agnes: “Fyrst er maður bara ‘vó
þetta er flókið, ég er aldrei að fara að
ná þessu’ og svo eftir nokkur skipti
bara svúm! Þetta er komið!”
Góðir vinir
Krakkarnir í hópnum eru góðir
vinir og það sést greinilega miðað við
hversu ört þau geta farið að tala sín á
milli um allt milli himins og jarðar. Til
þess að hressa upp á viðtalið spurði
ég þau hvort þau gætu hugsað sér að
flytjast til plánetunnar sem ævintýrin
úr Pathfinder gerast og svörin voru
vægast sagt skrautleg.
Allir: “JÁ!!”
A: “Þá gæti ég átt dreka! Ertu að
djóka, mig langar svo mikið í dreka!”
Til að veiða frekari viðhorf gagnvart
þeirri ákvörðun spyr ég þau hvort
þau gera sér grein fyrir hversu mikið
af hættum leynast í þessum heimi
en þau eru fljót að snúa því við með
áhugarverðum rökum.
M: “Það er alveg líka ótrúlega hæt-
tulegir hlutir á jörðinni líka.”
D: “Það hljómar miklu skemmtileg-
ra að vera drepinn af miklum dreka
sem þú ert að berjast við heldur en
einhverjum innbrotsþjófi á jörðinni.”
J : “ É g m y n d i g e r a
þ a ð a l v e g þ r i s v a r . ”
Spyrjandi: “Hvernig stétt/hlutverk
mynduð þið vilja vera?”
S: “Barbari.”
A: “Einhver sem á dreka.”
M: “Galdrakarl.”
D: “Summoner.”
J: “Ég myndi vera svona Robin
Hood týpa.. Góður gaur.”
Góð ráð til þeirra sem vilja
prufa
Krakkarnir hafa góð ráð til þeirra
sem hafa áhuga á að prófa þennan
leik og segir Jón Stefán að þeir sem
hafa áhuga ættu bara að demba sér
í þetta og sjá hvað þetta er skem-
mtilegt og skýtur Sigurjón þá inn:
“Taktu vin þinn með þér! Þá verður
það skemmtilegra.”
Það heyrist vel að þessir krakkar
skilja hvað þau eru að tala um þegar
nokkur þeirra segja: “Ég MANA þig
til að prófa!” (Þeir sem eru ágætlega
kunnugir í ævintýraspilum og því
tengdu átta sig á orðaleiknum).
Er eitthvað sem þið viljið segja að
lokum?
Allir: “Láttu vaða! YOLO!”
S: “Fimm af fimm kartöflum, ég gef
þessu fimm af fimm kartöflum.”
Pathfinderklúbbur
í Frosta
Einbeitnin leynir sér ekki.
Gómsæti í göngufæri
Geirsgata 1 • Sími 511 1888
Vorið vaknar á
Herranótt
Herranótt leikfélag Mennta-
skólans í Reykjavík mun í lok
febrúar setja upp söngleikinn
Vorið vaknar eða Spring
Awakens eins og verkið heitir
á frummálinu.Vorið vaknar er
rokksöngleikur eftir Steven
Sater með tónlist eftir Duncan
Sheik. Hann er byggður á
leikverki eftir Frank Wedekind
sem var lengi vel var umdeilt
og seinna bannað í Þýska-
landi. Söngleikurinn fjallar um
unglinga sem eru að uppgötva
kynferði sitt og í senn að reyna
fóta sig í heimi fullorðinna
seint á 19. öld.
Í leikritinu er fjallað um ýmis
málefni sem þótti erfitt að ræða
um á sínum tíma. Málefni á
borð við kynlíf, samkynhneigð,
misnotkun og kúgun sem
jafnvel er enn erfitt að ræða
án fordóma. Í söngleiknum eru
tuttugu lög, kóratriði og einnig
stór dansatriði. Söngleikurinn
var fyrst sýndur á Broadway
árið 2006 og vann það ár átta
Tony verðlaun, þar á meðal sem
besti söngleikurinn og platan
fékk einnig Grammy verðlaun
það árið. Söngleikurinn hefur
farið sigurför um heiminn en
hefur ekki áður verið sýndur á
Íslandi. Listrænir stjórnendur
sem koma að sýningunni eru
ekki af verri endanum. Stefán
Hallur Stefánsson leikstýrir
verkinu, Kristína Berman
sér um útlit sýningarinnar og
tónlistin er í höndum Halls
Ingólfssonar. Þetta er stærsta
verkefni sem Herranótt hefur
ráðist í frá upphafi og 170.
sýning leikfélagsins. Leikfélag
Menntaskólans á Akureyri setti
verkið upp á liðnum vetri og
skrifaði Hildur Eir Bolladóttir
í Akureyri vikublað um verkið
og sagði uppsetningu þess í
einu orði sagt aðdáunarverð og
hvað eftir annað hafi hún orðið
snortin af hæfileikum þessarar
ungu kynslóðar sem virðist ekki
víla neitt fyrir sér hvort sem um
er að ræða leik, söng, dans eða
hljóðfæraleik.
Frá æfingu á Vorið vaknar hjá Herranótt.
Rakel Björk Björnsdóttir for-
maður Herranætur segir ljóst
er að áhugi MR-inga fyrir
uppsetningunni sé mikill en
í ár var metþátttaka á leiklis-
tarnámskeið Herranætur.