Vesturbæjarblaðið - feb. 2015, Blaðsíða 11
Svarti Haukur er fyrirtæki
sem var stofnað árið 2011 utan
um framleiðslu á Lúpínuseyðinu
sem Ævar Jóhannesson frá
Steðja á Þelamörk framleiddi
og gaf fólki endurgjaldslaust í
áratugi. Haukur Magnússon sem
kenndur var við Ávaxtabílinn
stendur að baki fyrirtækinu en
hann hefur verið ötull talsmaður
Lúpínuseyðisins margrómaða
um lengri tíð.
Haukur segir að lúpínuseiðið
hafi verið Ævari hjartans mál og
hann því mjög ánægður að annar
aðili tæki við þessari framleiðslu.
Nú mynda þrír lúpínudrykkir
framleiðslu Svarta Hauks sem
allir eru að uppistöðu til gerðir
úr hvönn en bragðbættir með
öðrum jurtum. Haukur segir að
þau efni sem bragðbæti dryk-
kina innihaldi eingöngu hollustu
til viðbótar hvönninni ólíkt
sykri sem kemur ójafnvægi á
blóðsykurinn, eða gervisæta sem
hefur ýmsa ókosti.
Styrkir ónæmiskerfið
Haukur segir að lúpínuseyðið
hefi haft góð áhrif gegn ýmsum
sjúkdómum. Megi þar nefna
ofnæmi, astma, Parkinsonveiki
og ýmsa aðra kvills og eins sé
búið er að sanna að það styrki
ónæmiskerfið. Reynslusögur
um gagnsemi seyðisins í baráttu
við krabbamein hafa verið
skrásettar og komið hefur fram
að efni í jurtunum geti unnið gegn
krabbameinsfrumum og hafi for-
varnargildi. „Það er búið að sanna
að seyðið styrkir ónæmiskerfið
og því hlýtur að vera að áhuga-
vert fyrir þá sem eru hraustir að
neyta þess til að fyrirbyggja sjúk-
dóma. Styrking ónæmiskerfisins
af neyslu lúpínuseyðisins til
viðbótar við krabbameinslyf
hefur reynst hjálplegt sjúklingum
er þurfa að taka inn sterk lyf sem
veikja ónæmiskerfið.“
Blár, gulur og grænn
Í uppskriftinni af Lúpínu-
seyðinu eru fimm jurtir; lúpínu-
rætur, ætihvönn, geithvönn,
njóli og litunarmosi. Við það
bætist svo engifer, sítrónusafi
og stevía. Hvannardrykkirnir
byggjast að sjálfsögðu á hvönn
auk þess sem engifer, sítrónusafi
og stevía er í þeim öllum. Hver
drykkur er svo með í viðbót
sitt karaktereinkenni, einn með
bláberjum, annar með túrmerik
og peru og þriðji með myntu og
spínati. Fyrir vikið hefur hver
drykkur sinn lit; blár, gulur og
grænn.“
Gæti orðið framtíðar-
búgrein
Talið berst að því hvort að um
búgrein og útflutningur geti orðið
að ræða. Haukur kveðst telja að
framleiðsla þessara drykkja geti
orðið vísir að framtíðarbúnaðar-
grein hér á landi. Ekki skorti
landrými og fjölmargar bújarðir
henti ágætlega til þessarar ræk-
tuna. Haukur bendir einnig á að
fólk sem ekki á kost á að sjá villta
náttúru eða sjó í sínu umhverfi
hafa rennt hýru auga til íslenskra
afurða gæti fallið fyrir íslensku
jurtadrykkjunum ekkert síður en
öðru. En til að taka það skref þurfi
samstarf við stóran dreifingaraði-
la og talsvert fjármagn til að þróa
og efla framleiðsluna svo mikið
að hún verði fýsileg fyrir slíka
dreifingaraðila. Haukur ræðir í því
efni um íslenska vatnið sem hefur
líka mikið aðdráttarafl. „Í því
sambandi langar mig að benda á
að í hillum íslenskra verslana er
mikið af innfluttu vatni og það á
ekki síst við heilsuhornin. Þar má
finna erlenda heilsudrykki með
afar kunnuglegu innihaldi sem
er auðvelt að nálgast. Vegna alls
þessa innflutning á erlendu vatni
er ekki pláss fyrir íslenska heilsu-
drykki úr íslensku vatni í hillum
margra íslenskra verslana nema
hjá Hagkaup. Þar hafa íslensku
jurtadrykkirnir spjarað sig mjög
vel innan um allar innfluttu heil-
suvörurnar. Annars er merkilegt
að þær jurtir sem þarna koma
við sögu eru af mörgum illa
liðnar - hvönn, njóli og lúpína.
Það er gaman að geta valdið
heilsueflingu og búið til verðmæti
úr jurtum með þetta orðspor.“
11VesturbæjarblaðiðFEBRÚAR 2015
Lúpínuseiðið gæti orðið framtíðarbúgrein
Haukur Magnússon.
Rúnstykki á 80 krónur
Alla daga!
Opið virka daga frá 07:30 til 18:00
og um helgar frá 08:00 til 17:00Bernhöftsbakarí ehf. | Bergstaðarstræti 13 | Sími: 551-3083