Vesturbæjarblaðið - Feb 2015, Page 12

Vesturbæjarblaðið - Feb 2015, Page 12
Nú er fimmta leikárið að hefjast hjá Leikhúsi barnanna í samvinnu Landakotsskóla og Melaskóla. Leikhúsið býður nemendum úr 5., 6. og 7. bekk upp á leiklistarnámskeið og mun haust- og vornámskeiði ljúka með leiksýningu. Það er Inga Bjarnason leikstjóri og le ikl is tarkennari sem stendur að Leikhúsi barnanna. Einkunnarorð skólans eru „að lara með því að leika“ og eru sýningarnar leiknar af börnum og ætlaðar fyrir börn. Inga stundaði nám í leiklist í Danmörku, Bretlandi og á Íslandi og starfað í 10 ár sem leikari bæði hér heima og í bresku ferðaleikhúsi sem sýndi víðsvegar um Evrópu. Inga hefur leiksýrt á fimmta tug leikverka hér heima og erlendis, bæði á leiksviði og í útvarpi. Hún hefur einnig rekið eigin leikhús í Bretlandi og á Íslandi og verið í stjórn Alþýðuleikhússins frá 1983 til 1989. Helstu sýningar sem hún hefur leikstýrt eru: Alaska og Kveðjuskál eftir Pinter, Dauðadansinn etir Strindberg, Makbeð eftir Shakespeare, Medeu og Trójudætur eftir forngríska höfundinn Evripídes. Auk þess sem hún hefur kennt leiklist við grunnskóla, framhaldskóla og í leikstjóradeild háskólans í Cardiff. Inga hefur fengið listamanna laun frá ríki og borg. 2008 lauk hún kennararéttindarnámi frá LHÍ. Virginia Gillard starfar með Ingu Á námskeiðum Leikhúss barnanna er börnunum kennd n o k k u r u n d i r s t ö ð u a t r i ð i le ikl istarinnar, sem fela í sér «líkamlegan» gamanleik, «slapstick» og trúðleik, en einnig verður lögð áhersla á samleik, framsögn og raddbeitingu. Leiklistarleikir og spuni verða notaðir sem kennsluaðferð. Virginia Gillard leikari og trúður starfar með Ingu að Leikhúisi barnanna. Hún er fædd í Ástralíu og fékk sína fyrstu leikhúsreynslu átta ára gömul í Leikhúsi ungafólksins. Hún stundaði nám við National Institute of Drama Art, Centre, Sydney og Rada í London og hjá trúðmeistaranum Philippe Gaulier í París. Virginía starfaði svo í Sviss og London sem leikari, trúður og leikstjóri. Frá árinu 1999 hefur hún einbeitt sér að trúðleik og kennslu. Hún var einn af stofnendum “kærleika í Skotlandi” Clowndoctors og Elderflowers sem sérhæfir sig í að vinna með börnum, öryrkjum og öldruðu fólki og fjölskyldur þeirra inni á sjúkrastofnunum. Meginmarkmiðið er að veita þeim sem eru skertir af fötlum eða sjúkdómum gleði í gegnum leik. Virginía hefur verið búsett á Íslandi frá 2011 og leikið í barnaleikrit inu Ævintýri Munkhasens í leikstjórn Ágústu Skúladóttir í Gaflaraleikhusið og Kennt námskeið í trúðleik fyrir fullorðna. Inga Bjarnasoen o g Vi rg i n í a G i l l a rd h ó f u samstar f 2012 fyrst með leiklistarnámskeiðum fyrir börn og sýðasta vor stóðu þær stöllur fyrir leiksýningu í Iðnó sem hét Draugatrúðleikur eftir Ingu í leikstjórn Ingu og Virginíu. Börn úr Melaskóla og Landakotsskóla léku tvær sýningar fyrir foreldra og samnemendur sína við góðan orðstýr. 12 Vesturbæjarblaðið FEBRÚAR 2015 Að læra með því að leika eru einkunarorð skólans. Fimmta árið hjá Leikhúsi barnanna 1717 RAUÐA KROSSINS HJÁLPARSÍMI Opinn allan sólarhringinn Upplýsingar um úrræði Alveg ókeypis (líka úr gsm) Kemur ekki fram á símreikning Fullur trúnaður Ef þér líður illa – ef þú átt í vanda Laugarnar í Reykjavík Sími: 411 5000 • www.itr.is í þínu hverfi fyrir alla fjölskylduna Fyrir líkama og sál

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.