Vesturbæjarblaðið - Feb 2015, Page 14

Vesturbæjarblaðið - Feb 2015, Page 14
14 Vesturbæjarblaðið FEBRÚAR 2015 Margt að gerast í Dómkirkjunni Messur, námskeið, kyrrðar - dagur og prjónakvöld er á meðal þess sem boðið er upp á í safnaðarstarfi Dómkirkjun- nar. Messað verður í kirkjunni alla sunnudagsmorgna kl. 11:00 og æðruleysismessur eru næst síðasta sunnudag í mánuði kl. 20:00. Barnastarf kirkjunnar verður á sínum stað á hverjum sunnu- dagsmorgni og hefst kl. 11 árdegis og á þriðjudögum er samvera fyrir unglinga á fermingaraldri, kl. 19:30 til 21:00 í safnaðarheimili kjunnar. Þeir Ólafur Jón Magnús- son og Sigurður Jón Sveinsson annast barnastarfið. Í safnaðar- heimili Dómkirkjunnar er einnig starf fyrir þau sem eldri eru, sam- vera, opið hús, alla fimmtudaga kl. 13.30 til 15.30. Þar er kaffi, samtal og jafnan eitthvert áhuga- vert innlegg. Bæna- og kyrrðar- stundir eru alla þriðjudaga kl. 12:10 og 12.30 og léttur hádegis- verður er á boðstólnum á eftir í safnaðarheimilinu. Síðastliðinn vetur tóku nokkrar dómkirkju- konur sig til og byrjuðu á að hafa mánaðarleg prjónakvöld í safnaðarheimilinu. Þau eru vinsæl enda góðir gestir í heimsókn. Séra Hjálmar Jónsson verður í leyfi frá 16. febrúar til 15. apríl og mun Karl Sigurbjörnsson biskup leysa hann af og þjóna með séra Sveini Valgeirssyni, dómkirkjupresti. Þessar tvær ungu konur mættu í prjónakaffið á dögunum.

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.