Brautin - 15.12.1959, Side 3
JÓLABLAÐ BRAUTARINNAR
Með langþráðu kertin var komið inn, -
hann kveikti á þeim, hann pabbí minn, -
um súðina birti og bólin.
Hann klappaði blítt á kollinn minn
og kyssti brosandi drenginn sinn, -
þá byrjuðu blessuð jólin.
Þá tók hún úr kistli, hún mamma mín,
og mjúklega strauk það, drifhvítt lín,
og breiddi' á borðið við gluggann.
Á rúminu sátum við, systkinin,
þar saman við jólakvöldverðinn, —
en kisa skauzt fram í skuggann.
Svo steig ég með kertið mitt stokkinn við
og starði' í Ijósið við mömmu hlið,
hún var að segja' okkur sögur
af fæðingu góða frelsarans,
um fögru stjörnuna' og æsku hans,
og frásögnin var svo fögur!
Svo las hann faðir minn lesturínn,
og langþreytti raunasvipurinn
á honum varð hýrri' og fegri.
Mér fannst sem birti yfir brúnum hans
við boðskapinn mikla kærleikans,
af hugblíðu hjartanlegri.
Og streyma ég fann um míg friðaryl,
sem fundið hafði ég aldrei til,
og sjaldan hef fundið síðan.
Og bjartari7 og fegri varð baðstofan,
og betur ég aldrei til þess fann,
hve börn eiga gleðidag blíðan.
n.Ti i k > • •
il W V ® á * '
Guðmundur Guðmundsson.