Brautin - 15.12.1959, Síða 5

Brautin - 15.12.1959, Síða 5
+' JÓLABLAÐ BRAUTARINNAR 5 r i\ Áramól. Nú rís úr tímans djúpi enn eitt ár með óskir, þrór og vonir iandsins borna, I; En heimi færir einnig sorgir, sór i hin silfurbjarta, fagra nýórsstjarna. |! Kom blessað, ór, með sæld, með þró og þraut. í þökk og von ég krýp oð lógum beði og bið af hjarta: verði bein hver braut og brá hver Ijómi af heitri óst og gleði. ;! Þótt framtíð alla hylji tímans tjald, l! og trautt við skynjum, ór, hvað þú munt boða, ;| í trú ó lífið, trú á vorsins vald 1; skal vegferð þreytt mót þínum órdagsroða. þ. s. í: Tvær konur voru í hópnum, Þorgerður Jónsdóttir frá Hrúta- felli, sem var á leið til Eyjanna, og hin úr Mýrdalnum, en nafn hennar hefur ekki tekizt að fá upplýst. Þorgerður giftist síðar Snorra Þórðarsyni, þurrabúðar- manni að Steini í Eyjum. Hann var einn af þeim, sem fórst við Eiðið í Vestmannaeyjum i6. desember 1924. Þá fórst og Guðmundur bróðir Snorra, er bjó að Akri í Vestmannaeyjum. Oft höfðu þeir bræðurnir frá Efstu-Grund, Sveinbjörn og Gísli Brynjólfur, haft orð um það undanfarið, að það væri hugboð sitt, að þeir myndu báðir deyja þennan vetur og myndu lagðir saman í kirkju- garði Ásólfsskálakirkju. Hins vegar skildu þeir ekki, hvernig það mætti verða, þar eð annar ætlaði að róa í Vestinannaeyjum en hinn á skútu við Faxaflóa. Þessa feigð sína höfðu þeir oft rætt við móður sína og anriað heimilisfólk, sem reyndi eftir megni að eyða hugboði þeirra með ýmiss konar tilvitnunum til margra slíkra hugboða manna, hugboða, sein aldrei rættust á þann veg, er þeir jún Stefánsson Gerðakoti Páll Einarsson Eornusöndum höfðu ætlað. En bræðrunum varð ekki hvikað frá þessum grun sínum, þó þeir gætu ekki ráðið gátuna til fulls, hvað við- kom legstað þeirra. Kvöldið áður en ferðin var hafin, fóru þeir bræður suður að Holti til þess að kveðja þar frændfólk sitt. Þsr bjó þá séra Kjartan Einarsson. Stönzuðu þeir þar nokkra stund, og ræddi Sveinbjörn við prestinn. Ekki er ósennilegt, að hann hafi rætt við séra Kjartan um hugboð sitt og verferð, því að þeim var sérlega vel til vina. Þegar svo Sveinbjörn hafði kvatt prest inn og annað heimafólk og ætl- aði að fara út úr húsinu, fann liann hvergi útganginn. Varð hann mjög miður sín, svo að hann varð að fá hjálp til þess að komast til dyra og út. Ekki var þetta vegna ókunnug- leika á húsaskipan, þar eð segja má, að hann væri daglegur gest- ur í Holti. Fólki fannst þetta að vonum allundarlegt fyrirbrigði, en tal- aði fátt um. Fannst því þeir bræður vera eitthvað öðruvísi en þeir áttu vanda tii, venju fremur daufir og eins og að Einar Ingvarsson Efstu-Grund Magnús Knútur Sigurðsson Seljalandi þeir væru „utangátta“ um margt. Þann 4. febrúar var veður hið ákjósaniegasta, sólskin og bjart en dálítill snjór á jörð. Var þess vegna ákveöið að leggja af stað þennan morgun jafnskjótt og Mýrdælingar kæmu austanað, en fregnir höfðu borizt um, að þeir liefðu verið árla á ferð um morgun- inn. Menn inntu af höndurn síðustu undirbúningsstörfin í flýti, og stóðst það á, að menn biðu ferðbúnir ytra, er Mýr- dælinga bar að garði á Efstu- Grund í fylgd með nokkrum Eyfellingum. Síðan var lagt af stað sem leið lá út með Fjöllunum og farið greitt í góðviðrinu. Eftir því sem utar dró, bættust fleiri í hópinn, því að allir vildu njóta samfylgdarinnar og höfðu verið ferðbúnir. Komið var við í Hvammi. Þar bjó þá Magnús Sigurðsson. Hjá honum var til heimilis systir hans, Ástríðui að nafni. Hún átti son þann, er Einar hét, og var hann vinnu- maður hjá Birni bónda á Efstu- Grund. Einar átti nú að fara til útvers í fyrsta skipti og var ráðinn á sömu skútu og Svein- björn, bróðir húsbónda hans. Ástríður tók Sveinbjörn tali og liað hann fyrir Einar son sinn um veturinn, að líta til hans og vera honum innan liandar, þar eð hann væri óvaningur, færi nú í fyrsta skipti til útvers og ætti þar að lúta stjórn ókunnra manna. Sveinbjörn varð fár við og svaraði Ástríði því til, að ekki myndi þýða að biðja sig fyrir drenginn, „því að ekki mun ég lifa út veturinn. Verð- ur þú þess vegna að biðja ein- hvern annan en mig, Ástríður mín, og vildi ég þó feginn verða við bón þinni og piltsins.“ Eitthvað ræddu þau uin þetta hugboð Sveinbjörns, og reyndi Ástríður að eyða þessu, en ekki lét hann af skoðun sinni. Skildu þau svo talið í fullri vinsemd, og kvaddi Sveinbjörn hana inni lega. Hópurinn hafði nú dvalizt góða stund í Hvammi og notið þar góðgerða. Var því lagt af stað, fólkið kvatt og bað það vermönnum alls góðs og farar- heilla. Þegar komið var út að Selja- landsmúla, voru allir komnir, sem ætluðu að verða í samfylgd- inni, og var því Jagt út yfir Markarfljót. Nokkurt vatn var í fljótinu, en allt gekk að ósk- um, enda vanir og dugmiklir vatnamenn þarna á ferð. Þegar komið var upp úr fljótinu, þótti sjálfsagt að koma við í Dalsseli, sem var aðeins snertu- spöl frá yzta ál fljótsins, og var það gert. Fékk hópurinn þar hressingu og góðar viðtökur í hvívetna. Dálítið var stanzað þar, en síðan haldið áfram vel greitt í fjörugri samfylgd sem leið lá út að Hemlu. Gekk ferð- in yfir Þverá að óskum, þrátt fyrir töluvert vatn, sem í henni var. Ekki var nein teljandi við- dvöl að Hemlu, en haldið á- fram að Eystri- Garðsauka. Gekk ferðin vel, og var komið þangað kl. 4 um eftirmiðdag- inn. Þá bjó þar Sæmundur Oddsson, bóndi og póstaf- greiðslumaður.

x

Brautin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/1411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.