Brautin - 15.12.1959, Side 7

Brautin - 15.12.1959, Side 7
+"—1 JÓLABLAÐ BRAUTARINNAR Þessi mynd er tekin frá tóftunurn á Gömlu-Gadd- stöðum yfir Rangárvelli. Varmadal ber í Eyja- fjallajökul. kominn að Ægisíðu, Garðs- auka, Hemlu, Miðey og Hólma. Björn átti tal við þá Einar Ingvarsson, vinnumann sinn, Torfa Einarsson í Varmahiíð og Jón Stefánsson í Gerðakoti og bað þá að koma með sér fram eftir og fregna um bræðurna. Var það auðsótt mái við þá alia. Þeim fannst, sem eitthvað illt lægi í loftinu, eitthvað væri ekki í lagi með þá bræður. Eng- inn þeirra þriggja hafði þó orð um þetta við Björn, en þeir hugsuðu margt. Ferðin að Ægisíðu gekk vei, enda var veður mun betra og menn og hestar allvei hvíldir. Björn símaði svo að Garðsauka og spurði um þá Sveinbjörn og Gísla. Var honum þá sagt, að þeir hefðu farið frá Garðsauka nokkru á eítir hópnum kvöldið áður, en síðan hafði ekkert til þeirra spurzt að Garðsauka. Þá Eyfellingana setti hljóða við þessar fréttir og fannst grunur sinn um válega viðburði styrkj- ast mjög. Fólkinu í Garðsauka liafði og brugðið illa við að frétta, að þeir hefðu ekki náð liópnum og ekki komið að ina. Óttuðust, allir mjög um at'- drif bræðranna, því að svo liafði veðrið verið óskaplegt þar um nóttina. Björn varð nú enn áhyggju- fyllri og þótti fullvíst, að eitt- hvað hörmulegt hefði komið fyrir þá, þótt hann reyndi að hrista af sér þær hugsanir. Hann ákvað, að hefja þegar leit að þeim, annað kom ekki til mála. Hann fékk sér því leitar- menn á Ægisíðu, en þeir urðu þar eftir, Einar, Jón og Torfi, eftir skipun Björns, því að hon- um buðust nógir menn til leit- arinnar, sem óþreyttir voru. Skömmu síðar lögðu þeir Björn af stað í leitina og fóru vítt um. Komust þeir t. d. fram í Oddahverfi, því að ekki fannst þeim ólíklegt, að bræðurna hefði getað hrakið undan veðr- inu langt úrleiðis. Fleiri leit- armenn bættust og við, og var leitað allan daginn fram á kvöid, en allt árangurslaust. Bræðurnir fundust ekki og ekk- ert. spurðist til þeirra. Um kvöldið þennan dag lögðu þeir af stað suður frá Æg- isíðu Einar, Jón og Torfi. Höfðu þeim borizt fregnir um, að þeir, sem í Varmadal hefðu verið, hefðu lagt af stað suður um morguninn. Vildu þeir þre menningarnir því hraða ferð sinni og freista þess að ná sam- fylgd þeirra. Lögðu þeir af stað frá Ægisíðu án þess að hafa fengið nokkrar fregnir af Efstu- Segir nú ekki af ferðum þeirra þriggja, fyrr en þeir konru út fyrir Þjórsá. Þar mættu þeir Magnúsi Knúti, er var á austurleið aftur með hesta þeirra, er verið höfðu í Varmadal. Tók Magnús nú við hestum þeirra líka, og skildu þar leiðir. Hélt Magnús áleiðis austur undir Fjöll, en þeir fóru gangandi út að Kotströnd. Gekk sú ferð vcl, enda var kom- ið bezta ferðaveður. Þar hitt- ust þeir allir aftur, ferðalang- arnir úr hrakningunum. Fréttu þeir þrír nú, að afdrif þeirra Efstu-Grundarbræða væru kunn og leitinni því hætt. Hafði fregnin verið símuð frá Ægi- síðu að Kotströnd í veg fyrir hópinn. Þeir bræður höfðu orð- ið úti og fundizt frá Varmadal. Hjá frú Vigdísi í Varmadai var sonur hennar og Svein- björns manns hennar, Þorvarð- ur, er síðar bjó að Stekkum. Hann var fjármaður móður sinnar. Um morguninn fór liann í fjárhús Varmadals, er stóðu fyrir framan þjóðveginn. Þegar hann nálgaðist húsin, sá hann tvo hesta skammt austur af þeim, og voru þeir bundnir sinni til hestanna, en bar þó ekki kennsl á þá. Skammt frá þeim sá liann tvo menn liggj- andi á jörðinni, og voru þeir helfrosnir. Þrátt fyrir hryllilegt útlit þeirra, þekkti hann þegar, að það voru lík bræðranna frá Efstu-Grund, Sveinbjörns og Gísla. Hafði Sveinbjörn klætt sig úr jakkanum og breitt hann yfir Gísla, en verið síðan á peys- unni einni. Hræðilegt hefur líf- ið verið hjá þeim, þar til yfir lauk, því að þarna var ekkert afdrep í þessu óveðri. Húsin hafa þeir ekki fundið vegna byl- sortans, þó að tiltölulega skammt væri til þeirra frá þeim stað, er þeir lágu. Hestarnir voru illa haldnir og útlit þeirra ægilegt vegna sands og klaka- brynju. Var ómögulegt að gera sér grein fyrir, hvort þeir voru svartir eða hvítir að lit innan ó- veðursbrynjunnar. Voru þeir al- veg að yfirbugast, er Þorvarður fann þá og leysti af streng. Þorvarði varð mjög um fund bræðranna. Komst hann þó heirn að Varmadal og sagði hvernig komið var, en aldrei varð hann samur maður eftir þetta og hlaut af sálarmein. I Varmadal var brugðið fljótt við, líkin sótt og flutt þangað heim. Höfðu þau verið mjög illa útleikin, stokkfreðin og sandrokin. Var talið líklegt, að Sveinbjörn hefði lifað lengur og reynt að hlynna að bróður sín- um til hinztu stundar. í Varmadal var svo smíðað utan um bræðurna. Voru kist- urnar síðan sóttar þangað aust- an undan Fjöllum af þeirn Eyj- ólfi Jónssyni á Miðgrund og Sigurði Ólafssyni á Núpi. Nótt- ina eftir að þeir fóru frá Varma dal, gistu þeir með kisturnar í Steinmóðarbæ. Voru þær settar þar inn í stofu. Að venju var lögð opin sálmabók sín á hvors kistu og valdir samhljóða sálm- ar í opnuna. Að því búnu var stofunni lokað og enginn um- gangur um hana meira, enda gengu merni rétt síðan til náða. Urn morguninn, er kisturnar vroru teknar út, fannst mönnum það harla einkennilegt, að þá var búið að skipta um sálrna í opnu bókanna. Voru þar komn ir allt aðrir samhljóða sálmar en verið höfðu um kvöldið. Sannanlega hafði þó enginn gengið um stofuna, fyrr en þeir Eyjólfur og Sigurður komu þar inn um morguninn. Sumir héldu því fram, að vindgustur um opinn glugga hefði orsak- Vármidalur, eins og bœrinn leit ut er slysið varð 1912. Séð frá Ægisíðu austur yfir Rangárvelli. Varmidalur til vinstri. Vannadal um kvöldið eða nótt- Grurrdarbræðrum eða leitar- vá streng (þ. e. bundnir hver mönrrum þeirra, þar eð ekkerU Jaftan í annan, eins og oft tíðk- hafði frétzt að Garðsauka frek-lríast). Þorvarður hraðaði för ar.

x

Brautin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/1411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.