Brautin - 15.12.1959, Síða 7
+"—1
JÓLABLAÐ BRAUTARINNAR
Þessi mynd er tekin frá tóftunurn á Gömlu-Gadd-
stöðum yfir Rangárvelli. Varmadal ber í Eyja-
fjallajökul.
kominn að Ægisíðu, Garðs-
auka, Hemlu, Miðey og Hólma.
Björn átti tal við þá Einar
Ingvarsson, vinnumann sinn,
Torfa Einarsson í Varmahiíð og
Jón Stefánsson í Gerðakoti og
bað þá að koma með sér fram
eftir og fregna um bræðurna.
Var það auðsótt mái við þá
alia. Þeim fannst, sem eitthvað
illt lægi í loftinu, eitthvað væri
ekki í lagi með þá bræður. Eng-
inn þeirra þriggja hafði þó orð
um þetta við Björn, en þeir
hugsuðu margt.
Ferðin að Ægisíðu gekk vei,
enda var veður mun betra og
menn og hestar allvei hvíldir.
Björn símaði svo að Garðsauka
og spurði um þá Sveinbjörn og
Gísla. Var honum þá sagt, að
þeir hefðu farið frá Garðsauka
nokkru á eítir hópnum kvöldið
áður, en síðan hafði ekkert til
þeirra spurzt að Garðsauka. Þá
Eyfellingana setti hljóða við
þessar fréttir og fannst grunur
sinn um válega viðburði styrkj-
ast mjög. Fólkinu í Garðsauka
liafði og brugðið illa við að
frétta, að þeir hefðu ekki náð
liópnum og ekki komið að
ina. Óttuðust, allir mjög um at'-
drif bræðranna, því að svo
liafði veðrið verið óskaplegt þar
um nóttina.
Björn varð nú enn áhyggju-
fyllri og þótti fullvíst, að eitt-
hvað hörmulegt hefði komið
fyrir þá, þótt hann reyndi að
hrista af sér þær hugsanir.
Hann ákvað, að hefja þegar leit
að þeim, annað kom ekki til
mála. Hann fékk sér því leitar-
menn á Ægisíðu, en þeir urðu
þar eftir, Einar, Jón og Torfi,
eftir skipun Björns, því að hon-
um buðust nógir menn til leit-
arinnar, sem óþreyttir voru.
Skömmu síðar lögðu þeir
Björn af stað í leitina og fóru
vítt um. Komust þeir t. d. fram
í Oddahverfi, því að ekki fannst
þeim ólíklegt, að bræðurna
hefði getað hrakið undan veðr-
inu langt úrleiðis. Fleiri leit-
armenn bættust og við, og var
leitað allan daginn fram á
kvöid, en allt árangurslaust.
Bræðurnir fundust ekki og ekk-
ert. spurðist til þeirra.
Um kvöldið þennan dag
lögðu þeir af stað suður frá Æg-
isíðu Einar, Jón og Torfi.
Höfðu þeim borizt fregnir um,
að þeir, sem í Varmadal hefðu
verið, hefðu lagt af stað suður
um morguninn. Vildu þeir þre
menningarnir því hraða ferð
sinni og freista þess að ná sam-
fylgd þeirra. Lögðu þeir af stað
frá Ægisíðu án þess að hafa
fengið nokkrar fregnir af Efstu-
Segir nú ekki af ferðum
þeirra þriggja, fyrr en þeir
konru út fyrir Þjórsá. Þar
mættu þeir Magnúsi Knúti, er
var á austurleið aftur með
hesta þeirra, er verið höfðu í
Varmadal. Tók Magnús nú við
hestum þeirra líka, og skildu
þar leiðir. Hélt Magnús áleiðis
austur undir Fjöll, en þeir fóru
gangandi út að Kotströnd.
Gekk sú ferð vcl, enda var kom-
ið bezta ferðaveður. Þar hitt-
ust þeir allir aftur, ferðalang-
arnir úr hrakningunum. Fréttu
þeir þrír nú, að afdrif þeirra
Efstu-Grundarbræða væru kunn
og leitinni því hætt. Hafði
fregnin verið símuð frá Ægi-
síðu að Kotströnd í veg fyrir
hópinn. Þeir bræður höfðu orð-
ið úti og fundizt frá Varmadal.
Hjá frú Vigdísi í Varmadai
var sonur hennar og Svein-
björns manns hennar, Þorvarð-
ur, er síðar bjó að Stekkum.
Hann var fjármaður móður
sinnar. Um morguninn fór
liann í fjárhús Varmadals, er
stóðu fyrir framan þjóðveginn.
Þegar hann nálgaðist húsin, sá
hann tvo hesta skammt austur
af þeim, og voru þeir bundnir
sinni til hestanna, en bar þó
ekki kennsl á þá. Skammt frá
þeim sá liann tvo menn liggj-
andi á jörðinni, og voru þeir
helfrosnir. Þrátt fyrir hryllilegt
útlit þeirra, þekkti hann þegar,
að það voru lík bræðranna frá
Efstu-Grund, Sveinbjörns og
Gísla. Hafði Sveinbjörn klætt
sig úr jakkanum og breitt hann
yfir Gísla, en verið síðan á peys-
unni einni. Hræðilegt hefur líf-
ið verið hjá þeim, þar til yfir
lauk, því að þarna var ekkert
afdrep í þessu óveðri. Húsin
hafa þeir ekki fundið vegna byl-
sortans, þó að tiltölulega
skammt væri til þeirra frá þeim
stað, er þeir lágu. Hestarnir
voru illa haldnir og útlit þeirra
ægilegt vegna sands og klaka-
brynju. Var ómögulegt að gera
sér grein fyrir, hvort þeir voru
svartir eða hvítir að lit innan ó-
veðursbrynjunnar. Voru þeir al-
veg að yfirbugast, er Þorvarður
fann þá og leysti af streng.
Þorvarði varð mjög um fund
bræðranna. Komst hann þó
heirn að Varmadal og sagði
hvernig komið var, en aldrei
varð hann samur maður eftir
þetta og hlaut af sálarmein.
I Varmadal var brugðið fljótt
við, líkin sótt og flutt þangað
heim. Höfðu þau verið mjög
illa útleikin, stokkfreðin og
sandrokin. Var talið líklegt, að
Sveinbjörn hefði lifað lengur og
reynt að hlynna að bróður sín-
um til hinztu stundar.
í Varmadal var svo smíðað
utan um bræðurna. Voru kist-
urnar síðan sóttar þangað aust-
an undan Fjöllum af þeirn Eyj-
ólfi Jónssyni á Miðgrund og
Sigurði Ólafssyni á Núpi. Nótt-
ina eftir að þeir fóru frá Varma
dal, gistu þeir með kisturnar í
Steinmóðarbæ. Voru þær settar
þar inn í stofu. Að venju var
lögð opin sálmabók sín á hvors
kistu og valdir samhljóða sálm-
ar í opnuna. Að því búnu var
stofunni lokað og enginn um-
gangur um hana meira, enda
gengu merni rétt síðan til náða.
Urn morguninn, er kisturnar
vroru teknar út, fannst mönnum
það harla einkennilegt, að þá
var búið að skipta um sálrna í
opnu bókanna. Voru þar komn
ir allt aðrir samhljóða sálmar
en verið höfðu um kvöldið.
Sannanlega hafði þó enginn
gengið um stofuna, fyrr en
þeir Eyjólfur og Sigurður komu
þar inn um morguninn. Sumir
héldu því fram, að vindgustur
um opinn glugga hefði orsak-
Vármidalur, eins og bœrinn leit ut er slysið varð
1912.
Séð frá Ægisíðu austur yfir Rangárvelli.
Varmidalur til vinstri.
Vannadal um kvöldið eða nótt-
Grurrdarbræðrum eða leitar- vá streng (þ. e. bundnir hver
mönrrum þeirra, þar eð ekkerU Jaftan í annan, eins og oft tíðk-
hafði frétzt að Garðsauka frek-lríast). Þorvarður hraðaði för
ar.