Brautin - 19.05.1965, Qupperneq 2
2.
BRAUTIN
ÞANKABROT, í miöri viku.
Um fluðvöllinn, Herjólf 09 Brötíuiiötunn
AliSTFIROINGAR RÆDA SÍLDARFLUTNINGA
Það var sannarlega ánægjulegt að
sjá, hve fljótt var brugðið við og
farið að bera ofan í flugvöllinn, eft-
ir að ég tók það til umræðu hér í
þættinum. Nú er kominn nýr og
glæsilegur farkostur á flugrútuna
hingað og er því mjög nauðsynlegt,
að byggingu norður-suður brautar-
innar sé haldið áfram af fullum
krafti, þar til hún er að minnsta
kosti 1200—1300 metra löng. Skora
ég á þingmenn okkar Eyjabúa, en
einn af þeim er sjálfur flugmála-
ráðherrann, að beita sér fyrir því,
að ekki standi á fjármagni til að
fullgera brautina, og unnið verði
við hana af fullum krafti.
Oft er um það talað ,hvað Horna
fjarðarferðir Herjólfs valdi okkur
hér miklum erfiðleikum, komið hef
ur fyrir að vöntun hefur orðið á
nauðsynjum t .d. mjólk, vegna
þeirra. Eg held, að ég hafi lesið það
einhversstaðar að í reglugerð um
sölu mjólkur standi ,að ekki megi
selja t. d. hyrnumjólk eldri en
tveggja daga, eftir áfyllingu. Þegar
Herjólfur fer til Hornafjarðar,
kemur hann með mjólk á fimmtu-
dagsmorgni, sennilega sett í hyrn-
urnar á miðvikudegi, næst fáum
við svo hyrnur á þriðjudegi, í 5
daga verðum við að nota þessa
miðvikudagsmjólk. Væru ekki þess
ar Hornafjarðarferðir gætum við
alltaf fengið mjólk annan hvern
dag, annars eru þessar Hornafjarð-
arferðir skipsins víst eitt af hollráð
unum hans Eysteins.
En meðal annarra orða, var ekki
bæjarstjóranum okkar og þing-
manni falið að fá þessu breytt, að
skipið hætti að fara á Hornafjörð
og að fjölgað yrði Þorlákshafnar-
ferðum, hann væri nú vís með að
segja okkur bæjarbúum frá þessu
í næsta Fylki.
Það væri sannarlega ekki van-
þörf á að bera ofaní sumar göturn-
Fermingarúr
CERTINA,
PIERPONT.
Heimsþekkt merki. — Einnig
vönduð skólaúr.
Gísli Bryngeirsson
úrsmiður. — Sími 1568.
ar í bænum, ég skal að þessu sinni
aðeins nefna sem dæmi Bröttugöt-
una. Skyldi annars nokkurn tíma
hafa verið borið í hana síðan hún
var lögð, hér þarf að bregða við
snarlega og bera vel ofan í götuna
að öðrum kosti virðist sjálfsagt að
skíra götuna upp og kalla hana
Klapparstíg eða Grjótagötu. Við
skulum vona, að er blessaður bæj-
arstjórinn les þetta, láti hann strax
bera í götuna, hann hefur sjálfsagt
gleymt henni í öllum önnunum
uirdanfarið.
Að lokum vil ég benda viðkom-
andi aðilum á, að umferðaskiltið
við Dríganda er búið að vanta alltof
lengi, já, fjandans ári lengi.
Eyjaskeggi.
Þegar líða fer að lokum vertíðar,
færist fjör í fasteignamarkaðinn.
Nú hef ég m. a. til sölu eftirtald-
ar húseignir:
Boðaslóð 12.
Vandað ,stórt, nýlegt steinhús með
nýjum teppum og filti á stofum og
göngum.
Verzlunarhúsnæði selst sér.
Vestmannabraut 69.
Stórt og vandað hús, sem hentaði
einni stórri fjölskyldu. Getur einnig
verið tvær íbúðir, önnur 3 herb. og
eldhús, en hin 4 herbergi og eldhús,
án eldhúsinnréttingar.
íbúð að Kirkjuvegi 39A,
Hvammi, 5 herbergi og eldhús,
efri hæð og rishæð. Er nýstandsett,
útsýni glæsilegt, lóð og umhverfi
snyrtilegt.
íbúð að Fífilgötu 5,
4 herbergi og eldhús, nýstandsett
að eldhúsinnréttingu, með nýjum
gluggum í austurhlið, sérinngangur,
sérlóarréttindi og unnt að koma
upp bílskúr.
j Bessastígur 8,
austurendi, 3 herb. og eldhús, ný-
steyptur brunnur og allt í snotrasta
ásigkomulagi.
íbúð að Fífilgötu 5,
rishæð, 3 herbergi og eldhús. —
Selst ódýrt með miklu áhvílandi.
Ilúseignin Heimagata 11, Hagi.
Stórt og rúmgott, nýlega við-
byggt, járnklætt timburhús á steypt-
um kjallara. Fjölmörg herbergi,
hentugt til að leigja frá sér og láta
húsið renta sig. Nýr sjálfvirkur fýr
og ný rafmagnsvatnsdæla.
íbúð efri bæðar Landagötu 3 B,
Brautarholts. íbúðin er 3 her-
bergi og eldhús auk hálfs kjallara,
Fimmtudaginn 13. maí s. 1. var
fundur haldinn með fulltrúum sölt
unarstöðva og síldarverksmiðja í
einkaeign á Austurlandi.
Fundarboðendur voru þeir Hjalti
Gunnarsson, Reyðarfirði, Bjarni
Þórðarson, Neskaupstað, Páll Guð-
mundsson, Breiðdal, og Sveinn
Guðmundsson, Seyðisfirði.
Fundarstjóri var kjörinn Sveinn
Guðmundsson. Bjarni Þórðarson
flutti framsögu um dagskrármálefni
fundarins: Síldarflutningar af Aust
fjarðarmiðum.
Alls sóttu fundinn fulltrúar frá
26 síldariðnfyrirtækjum. Fundur-
inn samþykkti eftirfarandi ályktun:
í tilefni af fyrirætlunum, sem
uppi eru um stórfellda síldarflutn-
inga frá Austfjarðarmiðum til
vinnslu í öðrum landshlutum, vill
fundurinn leggja áherzlu á eftir-
farandi meginatriði.
1. Síldarflutningar að vissu marki
eru eðlilegir og sjálfsagðir. Þá síld,
þar sem er eitt innréttað herbergi.
Snotrasta smáíbúð í bezta standi.
Sérinngangur.
íbúð í kjallara, Bakkastíg 8,
2 herbergi og eldhús, sérinngangur
íbúð að Vestmannabraut 67 jarð-
hæð, 3herbergi og eldhús, selzt ó-
dýrt.
Margt fleira fæst af íbúðum og
húsum, sem hér er of langt upp að
telja.
Kaupendur bíða einnig margir á
skrá hjá mér, sem vantar hentugt
húsnæði.
Bifreiðar hef ég einnig nokkrar,
t. d. NSU Prinz árgerð 1963 ekinn
10 þús. km. Volkswagen, eldri gerð-
irnar, einnig Moskvitch ’57 og Daf
1963.
Bátar eru einnig á söluskrá, m. a.
tilbúnir á dragnótaveiðar, þegar
opnað verður.
Fasteign er gullsígildi, þegar
gengi peninga er fallvalt. Kaupend-
ur ættu að hafa þetta hugfast og
einnig, að hika er sama og tapa.
Vinsamlegast lítið inn og kynnist
fasteignamarkaðinum.
JÓN HJAITASON hrS-
Skrífstofa: Drífanda við Báru-
götu. Viðtalstími: kl. 4,30 — 6
virka daga nema laugardaga kl.
11 — 12 f. h. — Sími 1847.
Volkswagen
Rúgbrauð
til sölu. — Árgerð 1958. — Selzt
ódýrt ef borgað er út í hönd. —
Upplýsingar í síma 1949.
sem ekki er hægt að veita viðtöku
til vinnslu á Austfjarðarhöfnum, er
eðlilegt að flytja til vinnslu annars
staðar. Jafnframt bendir fundurinn
á, að svo getur farið, að síldar-
vinnslustöðvar á Austfjörðum
skorti hráefni ,þótt góð veiði sé á
Austfjarðarmiðum, ef um stórfellda
flutninga verður að ræða. Þess
vegna ber að takmarka flutninga
þannig, að hagur austfirskra síldar
iðnaðarfyrirtækja sé tryggður í
hvívetna.
2. Síldarflutningar í stórum stíl
hljóta að hafa áhrif á hráefnisverð
til lækkunar ,vegna mikils stofn-
kostnaðar við flutningaskip og um-
hleðslustöðvar, svo og vegna rekst-
urskostnaðar og afskrifta. Þess
vegna ber að takmarka þá sem kost
ur er, en leggja í þess stað áherzlu
á öra uppbyggingu fjölbreytts síld-
ariðnaðar á Austurlandi. Þá telur
fundurinn, að þá síld, sem flutt
verður af Austfjarðarmiðum til
vinnslu í öðrum landshlutum, eigi
að flytja til norðlenzku verksmiðju
bæjanna, en ekki til Suðvestur-
lands, þar sem hráefnisflutningar
þangað utan af landi hljóta að
auka á jafnvægisleysið í byggð
landsins.
3. Fundurinn tekur fram, og
leggur á það ríka áherzlu, að síld-
arverksmiðjur og söltunarstöðvar
á Austurlandi og í eign Austfirð-
inga taki undir engum kringumstæð
um þátt í kostnaði við flutninga
síldar af Austfjarðarmiðum til ann
arra landshluta, hvorki með verð-
jöfnunargjaldi né á annan hátt.
Fundurinn beinir þeirri ein-
dregnu ósk til þingmanna kjördæm
isins, að þeir séu vel á verði um
allt, er að þessum málum lýtur og
standi vörð um hagsmuni Austfirð-
inga.
F. h. fundarins.
K. Ingólfsson, Gunnar Hjaltason”.
(Fréttatilkynning.)
Hús fil sölu