Brautin - 07.07.1988, Side 3
BRAUTIN
Ársreikningar bæjar-
sjóós og stofnana
afgreiddir í bæjarstjórn
Ársreikningar Bæjarsjóðs
Vestmannaeyja og stofnana
hans fyrir seinasta ár voru af-
greiddir á seinasta bæjarstjórn-
arfundi. Reikningarnir bera
með sér, að verulegur árangur
hefur náðst á kjörtímabilinu í
því ætlunarverki meirihluta
bæjarstjórnar að ná tökum á
fjármálunum.
Skuldaaukning á milli ára er
langt innan við verðbólgu-
þróun. Þetta er ánægjulegt,
sérstaklega þar sem meirihlut-
inn setti sér það takmark, að ná
utan um fjármálin og koma
þeim í betra horf en þau voru í á
seinasta kjörtímabili. Þessi
stefna var sett efst á listann í
stjórnarsáttmála meirihlutans.
Þrátt fyrir að vel hafi tekist
þurfti minnihluti bæjarstjórnar
að leggja fram bókun, sem var í
senn villandi og í mörgum
atriðum röng. Það lýsti svo
bókuninni best, að þar sáu
menn ástæðu til þess að bera
þakklæti á einn ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins vegna yfirtöku
ríkisins á hluta af skuldum
Fjarhitunar Vestmannaeyja.
Meirihluti bæjarstjórnar lét
færa eftirfarandi til bókar við
afgreiðslu reikninganna, vegna
þess sem á undan var gengið:
„Fyrir liggur að reikningar
og reikningsfærslur bæjarsjóðs
og allra stofnana hans fyrir árið
1987 bera vott um góða reglu
og gott skipulag og eru til
fyrirmyndar sbr. skýrslu kjör-
inna endurskoðenda.
Þá bera reikningarnir með
sér að rekstrarstaða bæjarsjóðs
og stofnana hans hefur batnað
mjög, rekstrarafgangur hefur
hækkað og lausaskuldir
minnkað.
Þannig hefur núverandi
meirihluta orðið verulega
ágengt í því ætlunarverki sínu
að styrkja fjárhagsstöðu bæjar-
sjóðs og stofnana hans en sú
staða var bágborin eftir 4 ára
meirihlutastjórn Sjálfstæðis-
flokksins á árunum 1982-1986.
Reikningarnir og umsögn kjör-
inna endurskoðenda um þá
bera vott um að vel hefur til
tekist með ýmsa aðra mikil-
væga þætti í rekstri bæjarsjóðs
og stofnana hans. í því sam-
bandi má nefna sameiningu
Rafveitu og Fjarhitunar, inn-
heimtu o.fl. Þannig má ljóst
vera að núverandi meirihluti
Útgerðarmenn athugið
Vakin skal athygli á samþykkt bæjarstjórnar
frá 15. júní sl. sem hljóðar svo:
„Bæjarstjórn samþykkir, að áður en erindi
um yfirfærslu á kvóta úr byggðarlaginu verði
afgreidd af bæjarstjórn verði upplýst hvort
áhugi fyrir þessum kvótum er ekki fyrir hendi
hjá útgerð og fiskvinnslufyrirtækjum hér í
Eyjum.”
Og samþykkt bæjarráðs frá 20. júní sl.:
„I framhaldi af samþykkt bæjarstjórnar frá
15. júní, samþykkir bæjarráð að óska eftir því
við Útvegsbændafélag Vm. að þaö leiti eftir
upplýsingum í samræmi við samþykktina þegar
um umsóknir um kvótayfirfærslu er að ræða.”
Könnun á áhuga
Félagslegar íbúðir
Stjórn verkamannabústaða efnir til
könnunar á þörf fyrir félagslegar íbúðir í
Vestmannaeyjum. Könnun þessi er lögbundin
og niðurstaða hennar mun verða rökstuðn-
ingur við umsókn Stjórnar verkamanna-
bústaða til Húsnæðisstofnunar um fram-
kvæmdaþörf. Það er því afar brýnt, að þeir sem
eru í þörf fyrir félagslegt húsnæði, verka-
mannabústaði eða leiguíbúðir, skrái sig á
afgreiðslu Vestmannaeyjabæjar eigi síðar en
22. júlí n.k. þar sem nánari upplýsingar verða
veittar.
Þeir sem eiga inni umsóknir um verka-
mannabúsustaði þurfa ekki að skrá sig.
Stjórn Verkamannabústaða, Vm.
hefur náð góðum árangri eins
og hann raunar hefur stefnt að.
Bókun bæjarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins er í senn vill-
andi og í mörgum atriðum
röng. Nægir þar að nefna full-
yrðingar um skuldastöðu bæj-
arsjóðs sem bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins, gegn betri
vitund, segja að hafi versnað.
Bókun þeirra gengur í berhögg
við raunveruleikann í mörgum
atriðum og er hvorki í samræmi
við niðurstöður ársreikninga né
álit endurskoðenda. Þá teljum
við vægast sagt fráleitt að draga
iðnaðarráðherra sérstaklega
inn í bókunina að því er varðar
þá lausn er Vestmannaeyjabær
hefur náð vegna Fjarhitunar.
Um einstaka þætti bókunar
Sjálfstæðisflokksins sjáum við
ekki ástæðu til að fjalla.”
Guðmundur Þ. B. Ólafsson
Þorbjörn Pálsson
Andrés Sigmundsson
Jóhanna Friðriksdóttir
Ragnar Óskarsson
í SÓLINA Á
BENIDORM
BROTTFARIR:
12. júlí 1 eða 3 vikur
19. júlí 2 vikur
— MJÖG HAGSIÆTT VERÐ! —
Umboðsmaður: FRIÐFINNUR FINNBOGASON
S 11166 og 11450
Uil MKJSTOÐIIM
SUMARÁÆTLUN1988
12. maí — 12. september
frá Vm frá Þh
Alla daga nema mánud. og laugard......... 07:30 12:30
Mánudaga og laugardaga .................. 10:00 14:00
Aukaferðir:
Föstudaga og sunnudaga .................. 17:00 21:00
Auk þess í júní og júlí:
Fimmtudaga .............................. 17:00 21:00
Tierfóliur hf.
SPARISJÓÐUR VESTMANNAEYJA
vill vekja athygli á fjölþættri þjónustu:
U HEIMILISLÁN = sparnaður + lán
LAUNALÁN = engin bið eftir sparisjóðsstjóra
n NÆTURHÓLF
n GJALDEYRIR til ferðamanna og námsfólks
«• INNLENDIR gjaldeyrisreikningar
«» VISA eitt kort alls staðar
n NÝTÍSKU AFGREIÐSLUTÆKI tryggir hámarks öryggi
n PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA við alla okkar viðskiptavini
n .r_- frá 9:15—16 alla daga, auk þess síðdegisvakt
Opnunartimi á fostudogum n - kso.
AUKIN ÞJÓNUSTA
0PIÐ í HÁDEGI
4» SPARISJÓÐUR
VESTMANNAEYJA